Innlent

Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir

Jakob Bjarnar skrifar
Pawel skaut föstum skotum á stjórnarandstöðuna í ræðu sinni á þingi nú rétt í þessu.
Pawel skaut föstum skotum á stjórnarandstöðuna í ræðu sinni á þingi nú rétt í þessu. vísir/egill

Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar fór yfir aðgerðir ríkisstjórnarinnar hvað varðar brottvísanir erlendra brotamanna og hélt því fram að meðan stjórnarandstaðan vildi umræður þá léti ríkisstjórnin verkin tala.

Pawel kvaddi sér hljóðs í dagskrárliðnum Störf þingsins nú fyrir stundu og fór yfir stöðuna eins og hún horfði við honum. Hann sagði ný lög um fullnustu refsinga vera verulega íþyngjandi en þau væru farin að virka. Alls hefði 89 verið vísað af landi, 40 föngum hefði verið vísað af landi brott eftir að hafa afplánað þriðjung fangelsisdóms síns og 117 aðilum hefði verið vísað af landi brott vegna ólögmætrar dvalar. Allt þetta á fyrstu níu mánuðum ársins.

Pawel sagði þetta ekkert sérstakt gleðiefni, þetta væru erfið mál en það væri frumskylda ríkisins að tryggja öryggi íbúanna og gæta landamæranna og það væru stjórnvöld nú að gera með aukinni löggæslu, bættu landamæraeftirliti og skilvirkara kerfi.

Þá sagði þingmaðurinn að öll höfum við heyrt kallað eftir umræðunni en vandinn við hana væri hins vegar sá að hún væri oft skautuð og bitnaði á þeim hinum saklausu. Þeir sem hingað komi til að stunda skipulagða brotastarfsemi óttist ekki neikvæða umræðu. Þeir skilji hins vegar refsingar, brottvísanir og endurkomubann á Schengen-svæðið.

Við lok ræðu sinnar lauk Pawel sérstöku lofsorði á Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra Viðreisnar og sagði hana hafa náð raunverulegum árangri. Stjórnarandstaðan vilji hins vegar sitja hjá; hún vilji umræðu meðan stjórnin geri.


Tengdar fréttir

Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi

Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Einn úr hópnum var stuttu síðar handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×