Fótbolti

Hópurinn sem gæti komið Ís­landi á EM

Sindri Sverrisson skrifar
Íslenska liðið kom sér í umspilið með frábærum leikjum gegn Frakklandi, Sviss og Færeyjum.
Íslenska liðið kom sér í umspilið með frábærum leikjum gegn Frakklandi, Sviss og Færeyjum. vísir/Guðmundur

Lúðvík Gunnarsson og Ólafur Helgi Kristjánsson hafa valið leikmannahóp U21-landsliðs karla í fótbolta sem mætir Grikklandi í tveimur umspilsleikjum um sæti í lokakeppni EM.

Tvær breytingar eru á hópnum frá hinni frábærlega heppnuðu síðustu landsleikjatörn þegar Ísland gerði jafntefli við Frakkland og vann Sviss og Færeyjar.

Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Excelsior í Hollandi, og Logi Hrafn Róbertsson úr Varnamo í Svíþjóð koma inn en liðsfélagarnir hjá Brann, þeir Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson, detta út.

Fyrri leikur Íslands og Grikklands verður á Pepsi-vellinum í Laugardal eftir rúma viku eða fimmtudaginn 12. nóvember. Leikurinn hefst afar snemma, klukkan 13:00. Seinni leikurinn verður svo í Aþenu 16. nóvember.

U21-hópur Íslands gegn Grikklandi:

Markmenn:

  • Ásgeir Orri Magnússon – Keflavík
  • Halldór Snær Georgsson – KR
  • Lúkas J. Blöndal Petersson – Hoffenheim

Aðrir leikmenn:

  • Amin Cosic – Viking FK
  • Ágúst Orri Þorsteinsson – Excelsior
  • Baldur Kári Helgason – FH
  • Benoný Breki Andrésson – Stockport FC
  • Daníel Freyr Kristjánsson – Lyngby
  • Daníel Tristan Guðjohnsen – Malmö FF
  • Davíð Helgi Aronsson – Lyngby
  • Freyr Sigurðsson – Fram
  • Galdur Guðmundsson – KR
  • Haukur Andri Haraldsson – ÍA
  • Helgi Fróði Ingason – Helmond Sport
  • Hilmir Rafn Mikaelsson – SK Sigma Olomouc
  • Hlynur Freyr Karlsson – Breiðablik
  • Hlynur Þórhallsson – Þróttur R.
  • Júlíus Mar Júlíusson – Kristiansund BK
  • Logi Hrafn Róbertsson – IFK Varnamo
  • Nóel Atli Arnórsson – Aalborg BK
  • Stígur Diljan Þórðarson – Víkingur
  • Tómas Orri Róbertsson – FH
  • Viktor Bjarki Daðason – FC Köbenhavn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×