„Erum alltaf okkar helsti gagnrýnandi“
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, er til staðar fyrir þá leikmenn sem vilja leita til hennar en segir mikilvægt að vera ekki yfirþyrmandi. Gunnhildur nýtur sín sem þjálfari í teymi landsliðsins og segir það ekki kitla að sprikla með á æfingum.