Ísland í dag - Maturinn gjörunninn í grunnskólum borgarinnar

Er maturinn í grunnskólum borgarinnar gjörunninn? Og þar með ekki eins hollur og vonast er til? Iðjuþjálfinn Sólveig Kristín Björgólfsdóttir hefur vakið gríðarlega athygli fyrir skrif sín og gagnrýni á skólamat barnanna í grunnskólum borgarinnar. Og Instagram síðan hennar solskins.lif er mjög vinsæl og þar póstar hún ýmsum upplýsingum um skólamatinn og hvað má betur fara þar. Sólveig og maður hennar Páll Aðalbjörnsson segjast neyðast til að búa til allan mat barnanna heima og senda með í skólann því þau eru ekki sátt við að í skólamatnum eru svo mörg ónauðsynleg aukaefni sem ekki eru góð fyrir þau. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og hitti Sólveigu og fékk að heyra betur um málið. 

2457
12:23

Vinsælt í flokknum Ísland í dag