Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Senda flagg­skip breska flotans á norður­slóðir

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu.

Erlent
Fréttamynd

WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild

Íslenski fjárfestirinn Auðunn Már Guðmundsson hefur unnið dómsmál í Bretlandi þar sem fyrrverandi eiginkona hans, breska listakonan Hsiao-Mei Lin, reyndi að halda eftir fasteign þeirra hjóna. Dómari við efra dómstig (e. High Court of Justice) í Lundúnum komst að þeirri niðurstöðu að WhatsApp-skilaboð frá Auðuni Má væru ekki löglega bindandi og gætu því ekki talist framsal á hans hluta í eigninni.

Innlent
Fréttamynd

Lokar hringnum eftir tíu ár er­lendis

Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið.

Lífið
Fréttamynd

Ör­láti tannálfurinn Zayn aldrei ást­fanginn af Gigi

Popparinn Zayn Malik sagðist í nýlegu viðtali aldrei hafa verið ástafanginn af barnsmóður sinni, ofurfyrirsætunni Gigi Hadid, en þau voru saman í sex ár. Zayn rifjaði upp í sama viðtali skammirnar sem hún veitti honum fyrir að hafa dekrað dóttur þeirra með hárri fjárhæð frá tannálfinum.

Lífið
Fréttamynd

Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana

Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

Hvetur Starmer til að segja af sér

Leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi kallar eftir breytingum á þingi og vill að forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, segi af sér. Þingmenn stíga fram og lýsa yfir stuðningi við forsætisráðherrann.

Erlent
Fréttamynd

Prinsinn fyrr­verandi deildi trúnaðar­upp­lýsingum með Ep­stein

Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC.

Erlent
Fréttamynd

Nánasti ráð­gjafi Starmers segir af sér

Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. 

Erlent
Fréttamynd

Prinsinum hafi verið hent út á mið­nætti

Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins.

Lífið
Fréttamynd

Alan Carr á Ís­landi

Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga.

Lífið
Fréttamynd

Star­mer gagn­rýndur af sam­flokksmönnum sínum

Þrýstingur eykst nú á Keir Starmer forsætisráðherra Breta en lægra settir þingmenn í Verkamannaflokki hans eru sagðir afar ósáttir við hvernig foringi þeirra tók á máli Peters Mandelsons fyrrverandi ráðherra og sendiherra Breta í Bandaríkjunum sem nú hefur verið rekinn úr flokknum.

Erlent
Fréttamynd

Lög­regla hefur rann­sókn á sam­skiptum Mandelson og Epstein

Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa hafið rannsókn á framgöngu stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem er grunaður um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson, þá viðskiptamálaráðherra, er meðal annars grunaður um að hafa lekið upplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.

Erlent
Fréttamynd

Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng.

Erlent
Fréttamynd

„Ó­skiljan­leg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar

Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða.

Neytendur
Fréttamynd

Ís­lenskur tón­listar­maður í lykil­hlut­verki

Samstarf sem hófst í Reykjavík varð kveikjan að endurkomu einnar þekktustu jaðarrokkhljómsveitar Bretlands, Arcane Roots. Þar er íslenski tónlistarmaðurinn Bjarni Biering í lykilhlutverki en blaðamaður tók púlsinn á honum og hljómsveitinni.

Tónlist
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana

Victoria Hart, 33 ára gömul þriggja barna móðir frá Bretlandi, var stungin til bana á heimili sínu á Spáni um helgina. Börn hennar voru heima þegar móður þeirra var ráðinn bani, en elsti sonur hennar sem er ellefu ára, mun hafa kallað eftir aðstoð. Sex ára tvíburadætur Hart voru einnig í húsinu en meintur árásarmaður er sagður hafa sjálfur gefið sig fram við lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

At­vinnu­laus aumingi trompar dauðakölt

Fjölskyldufaðir sem missir vinnuna hjá pappírsfyrirtæki eftir áratuga starfsferil grípur til blóðugra örþrifaráða. Ungur drengur lendir í félagsskap satanísks gengis sem ráfar um uppvakningahrjáð England. Mennirnir tveir glíma við ólíka djöfla en lenda báðir í kröppum dansi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum

Tónlistarkonan Lily Allen hefur greinilega valið sér fylkingu í deilum innan Beckham-fjölskyldunnar sem hafa gerjast um nokkurra ára bil og sprungu í loft upp þegar Brooklyn Beckham, frumburður Victoriu og Davids, sagðist ekki vilja sættast við fjölskyldu sína.

Lífið
Fréttamynd

Fagna tíu árum af ást

Heimsfræga og stundum umdeilda ofurparið Meghan Markle og Harry Bretaprins fagna tíu árum af ást í ár. Þegar þau felldu hugi saman átti bókstaflega allt eftir að breytast í lífi þeirra en ástin virðist blómstra sem aldrei fyrr.

Lífið