„Ein alversta frammistaða hjá markmanni sem ég hef orðið vitni að“ Hrafnkell Freyr Ágústsson, oftast þekktur sem Keli í hlaðvarpinu Dr. Football, hefur getið sér gott orð í fótboltaumfjöllun á Íslandi. Færri vita þó að Hrafnkell Freyr átti merkilegan feril sjálfur eins og hlustendur fá að kynnast í nýju hlaðvarpi á Tal, Ástríðan – Hetjur Neðri Deildanna. Íslenski boltinn 24. apríl 2023 09:30
Chelsea með augastað á Neymar Eins ótrúlegt og það hljómar þá gæti enska knattspyrnufélagið Chelsea reynt að festa kaup á Brasilíumanninum Neymar í sumar. Enski boltinn 24. apríl 2023 08:30
„Vorum staðráðnir í að vinna þennan leik“ Erik Ten Hag og lærisveinar hans eru komnir í úrslit ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu, þeirrar elstu og virtustu. Tapið gegn Sevilla á fimmtudagskvöld sat þó enn í Ten Hag er hann ræddi við blaðamenn eftir sigur Manchester United á Brighton & Hove Albion eftir vítaspyrnukeppni á Wembley. Enski boltinn 24. apríl 2023 07:30
Þögull sem gröfin varðandi framtíðina: „Verð að passa mig hvað ég segi“ Belgíski framherjinn Romelu Lukaku vill lítið gefa upp um það hvað taki við hjá sér að yfirstandandi tímabili loknu. Lukaku er á láni hjá Inter Milan á Ítalíu frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Fótbolti 23. apríl 2023 22:31
Dagný og stöllur biðu afhroð gegn Manchester City Íslenska atvinnu- og landsliðskonan í knattspyrnu, Dagný Brynjarsdóttir, var í byrjunarliði West Ham United sem steinlá gegn Manchester City í efstu deild Englands í dag. Lokatölur 6-2 sigur Manchester City. Fótbolti 23. apríl 2023 21:45
Napoli með níu fingur á titlinum eftir sigur á Juventus Það er fátt sem getur komið í veg fyrir að Napólí standi uppi sem ítalskur meistari en liðið vann í kvöld dramatískan sigur á Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 23. apríl 2023 20:56
Íslendingalið FCK greip ekki gæsina þegar að hún gafst Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson komu báðir við sögu í liði FC Kaupmannahafnar í dag þegar að liðið þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli við AGF í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 23. apríl 2023 19:27
Jón Dagur fór á kostum gegn Standard Liege Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Jón Dagur Þorsteinsson lék á alls oddi í liði OH Leuven sem vann 3-2 sigur á Standard Liege í belgísku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 23. apríl 2023 19:05
Í beinni: Juventus - Napoli | Mæta toppliðinu eftir stigastökkið Juventus tekur á móti toppliði Napoli eftir að hafa endurheimt, í bili að minnsta kosti, stigin fimmtán sem dæmd voru af liðinu í vetur. Leikurinn er sýndur á Stöð 2 Sport 2. Fótbolti 23. apríl 2023 18:15
Valgeir hafði betur gegn Aroni í Íslendingaslag Það var sannkallaður Íslendingaslagur í boði í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar að Sirius, með Aron Bjarnason í fararbroddi, tók á móti Svíþjóðarmeisturum Hacken með Valgeir Lunddal innanborðs. Fótbolti 23. apríl 2023 17:32
Brynjar Ingi hafði betur í Íslendingaslag Brynjar Ingi Bjarnason og félagar hans í Ham-Kam unnu góðan 2-0 sigur er liðið tók á móti Ara Leifssyni og félögum hans í Strømsgodset í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 23. apríl 2023 16:58
Sveindís skoraði og lagði upp en allt jafnt fyrir seinni leikinn Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg tóku á móti Arsenal í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. Sveindís skoraði og lagði upp fyrir Wolfsburg, en niðurstaðan varð 2-2 jafntefli og því er allt jafnt fyrir seinni leikinn. Fótbolti 23. apríl 2023 15:23
Amanda og Hlín skoruðu báðar í stórsigri | Ingibjörg lagði upp fyrir Vålerenga Amanda Andradóttir og Hlín Eiríksdóttir skoruðu sitt markið hvor fyrir Kristianstad er liðið vann öruggan 4-0 sigur gegn IK Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Á sama tíma lagði Ingibjörg Sigurðardóttir upp fyrsta mark Välerenga er liðið vann 3-2 endurkomusigur gegn Brann í norsku deildinni. Fótbolti 23. apríl 2023 15:01
Willum skoraði í sigri Go Ahead Eagles Willum Þór Willumsson skoraði fyrra mark Go Ahead Eagles er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 23. apríl 2023 14:33
Segir „hárblásarameðferð“ Fergusons stundum nauðsynlega Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segist ekki vera hræddur við að nota hina frægu „hárblásarameðferð“ á leikmenn sína. Sir Alex Ferguson notaði meðferðina í ófá skipti og Ten Hag segir hana stundum nauðsynlega til að koma skilboðum til leikmanna til skila. Fótbolti 23. apríl 2023 11:45
Segja Jóhann Berg og félaga sæta rannsókn fyrir hagræðingu úrslita Enski miðillinn The Daily Mail fullyrðir að Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley sæti nú rannsókn fyrir hagræðingu úrslita eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Reading í ensku B-deildinni fyrr í mánuðinum. Fótbolti 23. apríl 2023 10:30
Guðlaugur lagði upp í öðrum sigri DC United í röð Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í DC United unnu góðan 3-1 útisigur er liði heimsótti Orlando City í MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Guðlaugur Victor lagði upp þriðja mark liðsins. Fótbolti 23. apríl 2023 10:01
Telja sig hafa leyst ráðgátuna um grímuklædda rapparann Grímuklæddur rappari sem rappar um það að vera leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur valdið því að margir reyna nú að átta sig á því hver maðurinn á bak við grímuna sé í raun og veru. Nú telja samfélagsmiðlanotendur að þeir séu búnir að ráða gátuna. Fótbolti 23. apríl 2023 09:01
Sjáðu myndbandið: Settu hljóðnema á Hildi og niðurstaðan vekur athygli Fortuna Sittard, félagslið íslensku knattspyrnukonunnar Hildar Antonsdóttur, birti á dögunum ansi áhugavert myndband á YouTube rás sinni þar sem búið er að taka saman klippur frá leik liðsins gegn Feyenoord. Nánar tiltekið klippur af Hildi sem var með hljóðnema á sér í leiknum. Fótbolti 23. apríl 2023 08:01
Fantaskapur varð til þess að leikur Andra í Hollandi var flautaður af Leikur Groningen og NEC Nijmegen í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld var flautaður af eftir að flösku var kastað í aðstoðardómara leiksins. Fótbolti 22. apríl 2023 22:30
Miloš búinn að gera Rauðu Stjörnuna að serbneskum meisturum Rauða Stjarnan, sem leikur undir stjórn Miloš Milojević fyrrum þjálfara íslenskra liða á borð við Breiðablik og Víking Reykjavík, er serbneskur meistari. Þetta varð ljóst eftir 4-1 sigur liðsins á TSC í kvöld. Fótbolti 22. apríl 2023 21:45
Real Madrid komið aftur á skrið í spænsku deildinni Real Madrid vann í kvöld öruggan 2-0 sigur á Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni Fótbolti 22. apríl 2023 21:25
Sviptingar á toppnum: Dortmund nýtti sér tap Bayern Það urðu heldur betur vendingar á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag og eftir úrslit dagsins er það Borussia Dortmund sem situr á toppi deildarinnar. Bayern Munchen missteig sig á útivelli gegn Mainz. Fótbolti 22. apríl 2023 19:06
Sjáðu mörkin: Sveinn Aron Guðjohnsen reyndist hetja Elfsborg Sveinn Aron Guðjohnsen reyndist hetjan í liði Elfsborg sem vann 2-1 sigur á Degerfors í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 22. apríl 2023 17:26
Sara Björk spilaði allan leikinn í tapi gegn toppliðinu Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan með Juventus í dag þegar að liðið þurfti að sætta sig við 3-2 tap gegn Roma á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 22. apríl 2023 17:05
Naumur sigur Liverpool gegn nýliðunum Liverpool vann nauman 3-2 sigur er liðið tók á móti nýliðum Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 22. apríl 2023 16:00
Genoa nálgast efstu deild eftir sigurmark Alberts Albert Guðmundsson skoraði eina mark leiksins er Genoa vann mikilvægan 1-0 útisigur gegn Cittadella í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Albert og félagar þurfa nú aðeins sex stig í viðbót til að tryggja sér sæti í efstu deild. Fótbolti 22. apríl 2023 15:01
Íslendingalið Bayern endurheimti toppsætið með risasigri Íslendingalið Bayern München skaust aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann sannkallaðan risasigur gegn Freiburg í dag. Lokatölur 8-2, en heimakonur voru búnar að gera út um leikinn í fyrri hálfleik. Fótbolti 22. apríl 2023 14:16
Annar sigur Fulham í röð Eftir fimm tapleiki í röð í öllum keppnum vann Fulham sinn annan sigur í röð er liðið vann 2-1 sigur gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 22. apríl 2023 13:31
Börsungar taka forystuna með sér til Spánar Barcelona vann góðan 1-0 útisigur er liðið heimsótti Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í dag. Fótbolti 22. apríl 2023 13:25