Brá í brún þegar félagið tilkynnti að hann væri látinn Portúgalska stórliðið Porto tilkynnti í gær um andlát Domingos Gomes, sem var yfirlæknir fótboltaliðs félagsins um árabil. Gomes er aftur á móti sprelllifandi. Fótbolti 29. nóvember 2022 13:30
HM í Katar „gullgæs“ fyrir Talibana sem græddu milljarða Hreyfing Talibana í Afganistan græddi andvirði milljarða króna á uppbyggingu Katara fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta sem nú stendur yfir í síðarnefnda ríkinu. Það gerðu þeir fyrir tilstuðlan greiðslna frá katarska ríkinu undir yfirskini friðaviðræðna. Fótbolti 29. nóvember 2022 12:31
Neville gapandi hissa á Thiago Silva Gary Neville, sparkspekingur og fyrrverandi landsliðsmaður Englands, botnar ekkert í því hvernig brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva fer að því að spila jafn vel og hann gerir, 38 ára að aldri. Fótbolti 29. nóvember 2022 11:31
De Bruyne, Hazard og Vertonghen slógust næstum því eftir tapið fyrir Marokkó Litlu munaði að slagsmál brytust út í búningsklefa belgíska landsliðsins eftir tapið fyrir Marokkó á HM í Katar. Fótbolti 29. nóvember 2022 10:30
Fernandes hélt að Ronaldo hefði skorað markið sem var skráð á hann Bruno Fernandes hélt að Cristiano Ronaldo hefði skorað fyrra mark Portúgals gegn Úrúgvæ en ekki hann sjálfur. Fótbolti 29. nóvember 2022 10:01
Blaðamaður sagði að Hazard væri feitur og bað svo um mynd af sér með honum Egypskur blaðamaður tjáði Eden Hazard, einni af stærstu stjörnu belgíska landsliðsins, að hann væri orðinn feitur. Hann bað síðan um mynd af sér með Hazard. Fótbolti 29. nóvember 2022 08:31
Southgate sýnir Englendingum myndband af því hvernig Walesverjar fögnuðu sigri Íslendinga 2016 Til að kveikja í sínu liði fyrir leikinn mikilvæga gegn Wales á HM í Katar í kvöld ætlar Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, að sýna sínum mönnum myndbönd af því þegar Walesverjar glöddust yfir sigri Íslendinga á Englendingum á EM 2016. Fótbolti 29. nóvember 2022 08:02
Íranskar konur telja næsta öruggt að ríkisstjórn Írans fylgist með þeim á HM Kvenkyns stuðningsmenn íranska landsliðsins í fótbolta telja að menn á vegum ríkisstjórnar landsins fylgist með þeim á leikjum liðsins á heimsmeistaramótinu sem nú fer fram í Katar. Fótbolti 29. nóvember 2022 07:30
Gunnhildur Yrsa ekki sátt með ákvarðanir FIFA: „Heimurinn er ekki öruggur fyrir samkynhneigða“ „Heimurinn er ekki öruggur fyrir samkynhneigðra, það er bara þannig, og því miður ýtir framkoma FIFA undir ástandið. Ég hef verið stolt af því að spila fótbolta, að allir væru velkomnir, en í dag líður mér ekki þannig,“ segir landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á Twitter-síðu sinni. Fótbolti 29. nóvember 2022 07:01
Einn úr starfsliði Gana smellti af sjálfu með súrum Son eftir sigur Gana á Suður-Kóreu Gana vann frábæran 3-2 sigur á Suður-Kóreu í H-riðli heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Eftir leik ákvað einn úr starfsliði Gana að smella af sjálfu með tárvotum Son Heung-min, leikmanni Tottenham Hotspur og fyrirliða Suður-Kóreu. Fótbolti 28. nóvember 2022 23:30
Agnelli, Nedvěd og öll stjórn Juventus segir af sér Þau stórtíðindi bárust í kvöld að öll stjórn ítalska knattspyrnuliðsins Juventus hafi sagt af sér. Þar á meðal er forsetinn Andrea Agnelli og varaforsetinn Pavel Nedvěd en sá síðarnefndi lék á sínum tíma með liðinu. Fótbolti 28. nóvember 2022 22:15
Bruno Fernandes skaut Portúgal í sextán liða úrslit Portúgal er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Úrúgvæ. Bruno Fernandes með bæði mörkin þó svo að Cristiano Ronaldo hafi reynt að sannfæra alla og ömmu þeirra um að hann hefði skorað fyrra mark leiksins. Fótbolti 28. nóvember 2022 21:00
Nkunku fer til Chelsea næsta sumar Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir að franski sóknarmaðurinn Christopher Nkunku fari til enska fótboltafélagsins Chelsea sumarið 2023. Nkunku á að baki 8 A-landsleiki fyrir Frakkland og var einn þeirra sem átti að fara til Katar þar sem HM fer nú fram. Hann þurfti hins vegar að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Enski boltinn 28. nóvember 2022 20:30
Dregið í þriðju umferð FA bikarsins: Manchester City mætir Chelsea Dregið var í þriðju umferð FA bikarsins á Englandi nú rétt í þessu. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Englandsmeistara Manchester City og Chelsea. Enski boltinn 28. nóvember 2022 20:01
Casemiro skaut Brasilíu í sextán liða úrslit Brasilía er komin í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-0 sigur á Sviss. Miðjumaðurinn Casemiro skaut Brasilíu áfram með marki þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma. Fótbolti 28. nóvember 2022 17:55
Hótar Messi eftir að hann sá hvað hann gerði í klefanum eftir leik Argentína vann lífsnauðsynlegan sigur á Mexíkó á heimsmeistaramótinu í Katar um helgina en tap hefði þýtt að argentínska landsliðið væri úr leik á mótinu. Fótbolti 28. nóvember 2022 16:31
KSÍ segir ráðuneytið hafa gefið grænt ljós á samning við Sáda Utanríkisráðuneytið sá ekkert athugavert við fyrirhugað samstarf og landsleik á milli Íslands og Sádi-Arabíu í fótbolta, samkvæmt svari við fyrirspurn Knattspyrnusambands Íslands á síðasta ári. Fótbolti 28. nóvember 2022 16:14
Kudus hetja Gana sem lifði af kjaftshöggið Gana fékk sín fyrstu stig í H-riðli HM karla í fótbolta þegar liðið vann Suður-Kóreu, 3-2, í bráðfjörugum leik í Katar í dag. Fótbolti 28. nóvember 2022 15:02
Hetja Þjóðverja fékk tönn inn í sig eins og Jónatan Niclas Füllkrug er á allra vörum í Þýskalandi eftir að hafa haldið góðu lífi í HM-þátttöku Þjóðverja með jöfnunarmarki sínu gegn Spáni í Katar í gær. Fótbolti 28. nóvember 2022 13:30
Eftirminnileg innkoma Aboubakars í einum besta leik mótsins Vincent Aboubakar átti eftirminnilega innkomu þegar Kamerún gerði 3-3 jafntefli við Serbíu í G-riðli heimsmeistaramótsins í Katar í dag. Fótbolti 28. nóvember 2022 12:00
Bannað að skalla boltann daginn fyrir og daginn eftir leik Skotar ætla að stíga stórt skref í átt að því að verja knattspyrnufólk sitt fyrir höfuðhöggum tengdum fótboltaiðkun. Fótbolti 28. nóvember 2022 11:00
Íranir vilja sparka Bandaríkjamönnum af HM Íranska knattspyrnusambandið hefur sent inn formlega kvörtun til FIFA vegna Bandaríkjanna. Fótbolti 28. nóvember 2022 10:00
Aðalmarkvörður Kamerún í agabann André Onana mun ekki standa í marki Kamerún í dag þegar liðið mætir Serbíu á heimsmeistaramótinu í Katar. Fótbolti 28. nóvember 2022 09:22
Réðst á markvörð með hornfána Undarlegt atvik átti sér stað í leik í tyrknesku B-deildinni þegar áhorfandi lamdi markvörð í höfuðið með hornfána. Fótbolti 28. nóvember 2022 08:31
Belgíska pressan harðorð: „Getur einhver hrist De Bruyne til lífsins?“ Fjölmiðlar í Belgíu fóru ófögrum orðum um frammistöðu belgíska landsliðsins gegn Marokkó á HM í Katar í gær. Kevin De Bruyne fékk sérstaklega að finna fyrir því. Fótbolti 28. nóvember 2022 08:01
Sjáðu hópslagsmálin þegar allt sauð upp úr í leik Zenit og Spartak Zenit St. Pétursborg og Spartak Moskva áttust við í rússneska bikarnum í knattspyrnu á sunnudag. Það væri ekki frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að það sauð allt upp úr í leiknum og á endanum fengu sex leikmenn rautt spjald eftir hópslagsmál undir lok leiks. Þá höfðu alls tíu gul spjöld farið á loft í venjulegum leiktíma. Fótbolti 28. nóvember 2022 07:01
Landsliðsmarkvörðurinn Sandra um HM í Katar: „Þetta er högg í magann“ Sandra Sigurðardóttir, markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals sem og íslenska landsliðsins, var gestur í Silfrinu á RÚV í dag. Hún segir það högg í magann fyrir baráttu samkynhneigðra að heimsmeistaramót karla í knattspyrnu sé haldið í Katar. Fótbolti 27. nóvember 2022 23:00
Messi færist nær Miami Lionel Messi mun að öllum líkindum ganga í raðir Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í sumar. Hann yrði launahæsti leikmaður í sögu deildarinnar. Messi er ekki eini leikmaðurinn orðaður við Inter Miami en Sergio Busquets, fyrirliði spænska landsliðsins, er einnig sagður vera á leiðinni til félagsins. Fótbolti 27. nóvember 2022 22:01
Þjóðverjar halda í vonina eftir jafntefli við Spán Spánn og Þýskaland gerðu 1-1 jafntefli í stórleik dagsins á HM í fótbolta. Að liðin deili með sér stigunum þýðir að Spánn er í kjörstöðu til að fara áfram í 16-liða úrslit þökk sé ótrúlegum 7-0 sigri á Kosta Ríka í fyrstu umferð mótsins. Þýskaland þarf hins vegar sigur gegn Kosta Ríka í lokaumferðinni sem og að treysta á að Spánn vinni Japan. Fótbolti 27. nóvember 2022 21:00
Dagný skoraði og Glódís Perla hélt hreinu Fyrirliðinn Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað mark West Ham United í 2-0 sigri á Birmingham City í enska deildarbikarnum í fótbolta í dag. Þá stóð Glódís Perla Viggósdóttir vaktina í hjarta varnar Bayern München sem vann sannfærandi 2-0 sigur á Essen í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 27. nóvember 2022 18:46