Grindavík

Grindavík

Mannfjöldi: 1.246 (2025). Flatarmál: 423 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Tungl­skot og til­rauna­stofa

Þann 10. nóvember 2023 var Grindvíkingum skotið út í geim. Ekki með undirbúningi. Heldur inn í algjöra óvissu. Síðan þá höfum við spurt: hvenær koma þau aftur heim? En kannski er stærri spurningin sú hvort við séum enn í sambandi við þau.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fá valdið aftur

Yfir þrjátíu prósent þeirra sem verða á kjörskrá í Grindvík í sveitarstjórnarkosningum í vor eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi. Oddvitar þeirra tveggja flokka sem tilkynnt hafa framboð telja húsnæðismál eitt stærsta málið og íbúarnir vilja völdin aftur í hendur bæjaryfirvalda.

Innlent
Fréttamynd

Mesta kvikusöfnun til þessa

Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos.

Innlent
Fréttamynd

Vonast til að náttúran verði þeim hlið­holl

Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna.

Innlent
Fréttamynd

Auka við­búnað í Grinda­vík vegna veðurs

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samráði með Almannavörnum, varar við vondu veðri á morgun. Appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi fyrripart dags. Viðbúnaður verður aukinn sérstaklega í Grindavík.

Innlent
Fréttamynd

„Þessi Kane er stór­hættu­legur“

DeAndre Kane heillaði sérfræðinga Körfuboltakvölds með frammistöðu sinni gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar á föstudaginn síðastliðinn. Frammistaðan sem hann sýndi fram á þar er sá Kane sem Grindavík þarf til að taka næsta skref. 

Körfubolti