Veikindi herja á norska liðið Ståle Solbakken, þjálfari norska fótboltalandsliðsins, segir að nokkrir leikmenn þess glími við veikindi. Noregur mætir Englandi í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins á laugardaginn. Fótbolti 8. júlí 2026 08:32
Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, brá á leik á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi og óskaði eftir liðsstyrk fyrir fótboltalandslið þjóðarinnar fyrir næsta heimsmeistaramót. Fótbolti 8. júlí 2026 08:03
Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Leikmönnum enska fótboltalandsliðsins hefur verið ráðið frá því að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir að Jordan Henderson meiddist við þá athöfn eftir sigurinn á Mexíkó í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Fótbolti 8. júlí 2026 07:33
Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Hossam Hassan, þjálfari landsliðs Egyptalands, er brjálaður eftir tap hans manna fyrir Argentínu í 16-liða úrslitum á HM karla í fótbolta. Egyptaland leiddi 2-0 þegar korter var eftir. Fótbolti 7. júlí 2026 23:16
Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sviss vann Kólumbíu 4-3 í vítaspyrnukeppni eftir markalaust jafntefli liðanna í 16-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í Vancouver í kvöld. Sviss er komið í 8-liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár. Fótbolti 7. júlí 2026 22:55
Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Folarin Balogun, framherji bandaríska landsliðsins, skilur að ákvörðun um að aflétta banni hans fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum á HM sé umdeild. Hann áréttar hins vegar að hann hafi ekkert haft með ferlið að gera. Fótbolti 7. júlí 2026 22:00
Orðspor og ímynd bíður hnekki Í þónokkurn tíma hef ég tekið til varna og jafnvel dáðst af umbótum alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA eftir hneykslismál 2015. Sambandið hefur frá þeim tíma stórbætt alla sína stjórnarhætti, stóraukið gagnsæi í allri ákvarðanatöku og upplýsingagjöf, sett á laggirnar ítarlegar siðareglur og hlítnireglur og stóreflt allt samráð við hagsmunaaðila Skoðun 7. júlí 2026 20:32
Messi hágrét eftir leik Það var tilfinningarík stund þegar ljóst var að heimsmeistarar Argentínu væru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir 3-2 sigur á Egyptalandi í kvöld. Lionel Messi gat ekki haldið aftur af tárunum. Fótbolti 7. júlí 2026 20:17
Lygilegur viðsnúningur Argentínu Argentína vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur á Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM í Atlanta í Bandaríkjunum. Ríkjandi heimsmeistarar skoruðu þrjú mörk á 15 mínútum til að snúa leiknum á haus. Fótbolti 7. júlí 2026 18:05
Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Líklegast þykir að Jorge Jesus verði næsti þjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta. Portúgal er í þjálfaraleit eftir að Roberto Martínez hætti í kjölfar tapsins fyrir Spáni, 1-0, í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær. Fótbolti 7. júlí 2026 17:32
Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Amadou Onana, leikmaður Aston Villa og belgíska fótboltalandsliðsins, verður frá næstu mánuðina eftir að hafa meiðst illa í leik Belgíu og Bandaríkjanna í sextán liða úrslitum á HM í gær. Enski boltinn 7. júlí 2026 16:02
Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Johan Manzambi hefur slegið í gegn á heimsmeistaramótinu í fótbolta og Newcastle United vill klófesta Svisslendinginn unga. Enski boltinn 7. júlí 2026 15:02
Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Víkingar eiga fyrir höndum afar erfitt verkefni í kvöld í fyrri leik sínum við Ungverjalandsmeistara Györ í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Gestirnir verða þó án síns helsta markahróks sem skoraði mark á HM í Bandaríkjunum fyrir tveimur vikum. Fótbolti 7. júlí 2026 12:02
Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Sannkölluð þjóðhátíð ríkir nú í Noregi eftir að þjóðin sló út Brasilíu í 16-liða úrslitum á heimsmeistaramótinu. Fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu lék í sex ár sem atvinnumaður í Brann og er því mikill stuðningsmaður Noregs á mótinu. Fótbolti 7. júlí 2026 11:30
Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fyrir leik Bandaríkjanna og Belgíu í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta var athyglin mikil á manninum sem Donald Trump og Gianni Infantino forðuðu frá leikbanni, Folarin Balogun. Eftir leikinn stal hins vegar Belginn Charles De Ketelaere fyrirsögnunum. Fótbolti 7. júlí 2026 10:04
Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu, segir að leikið sé of þétt í útsláttarkeppni HM. Argentínumenn mæta Egyptum í 16-liða úrslitum í dag en komist þeir alla leið í úrslitaleik mótsins munu þeir spila fimm leiki á aðeins sautján dögum. Fótbolti 7. júlí 2026 09:31
Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Það slettist upp á vinskapinn hjá Rodri og Bernardo Silva, sem svo lengi voru liðsfélagar hjá Manchester City, þegar þeir mættust í leik Spánar og Portúgals í 16-liða úrslitum á HM í fótbolta í gærkvöld. Fótbolti 7. júlí 2026 09:03
„Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Cristiano Ronaldo hefur fengið að heyra það í fjölmiðlum heima í Portúgal og um heim allan, eftir að Portúgalar féllu úr leik á HM í fótbolta í gærkvöld með 1-0 tapi gegn Spáni í 16-liða úrslitum. Fótbolti 7. júlí 2026 08:30
Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Leikmenn Belgíu sögðust eftir sigurinn gegn Bandaríkjunum í nótt hafa viljað svara ranglæti FIFA úti á vellinum. Þeir dönsuðu líka að hætti Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir pólitísk afskipti hans vegna leikbanns Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna. Fótbolti 7. júlí 2026 08:00
Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Pólitísk afskipti af yfirstandandi heimsmeistaramóti í fótbolta einskorðast ekki við Hvíta húsið. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hafði áhrif á leiktíma enska landsliðsins við Mexíkó ef marka má breska fjölmiðla. Fótbolti 7. júlí 2026 07:32
Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Spánn og Belgía mætast í 8-liða úrslitum HM í fótbolta á föstudagskvöld, eftir að Belgar slógu heimamenn út með frábærum 4-1 sigri í Bandaríkjunum í nótt. Fótbolti 7. júlí 2026 07:07
Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Carlo Ancelotti mun áfram stýra landsliði Brasilíu þrátt fyrir fall liðsins úr leik á HM karla í fótbolta fyrir Noregi í 16-liða úrslitum. Fótbolti 6. júlí 2026 23:31
Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Franska knattspyrnusambandið hefur áfrýjað til FIFA um að fella úr gildi gult spjald sem Michael Olise, kantmaður franska liðsins, fékk í sigri á Paragvæ í 16-liða úrslitum HM á laugardaginn var. Fótbolti 6. júlí 2026 22:47
Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Sérfræðingum í HM kvöldi á RÚV er lítt skemmt yfir ákvörðun FIFA að fresta leikbanni Folarin Balogun, leikmanns bandaríska landsliðsins, fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson segir trúðasamkomu vestanhafs. Fótbolti 6. júlí 2026 22:42
Martínez hættur með portúgalska landsliðið Roberto Martínez hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem þjálfari Portúgals eftir að liðið féll úr leik gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM í kvöld. Fótbolti 6. júlí 2026 22:16
Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Landslið Grænhöfðaeyja heillaði marga með frábærri frammistöðu sinni á heimsmeistaramótinu og HM-lið hefur komið eyjunum á kortið og kallar á mikinn áhuga ferðamanna. Fótbolti 6. júlí 2026 22:02
Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Spánn komst í kvöld áfram í 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta eftir dramatískan 1-0 sigur á Portúgal í slag um Íberíuskaga í Dallas í Texas. Mikel Merino var hetja Spánverja í blálok leiks. Fótbolti 6. júlí 2026 21:00
Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Kylian Mbappe hefur lýst paragvæska öldungadeildarþingmanninum Celeste Amarilla sem „fyrirlitlegum kynþáttahatara“ eftir að hún lét ljót ummæli falla um franska fyrirliðann á samfélagsmiðlum. Fótbolti 6. júlí 2026 20:24
Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Gianni Infantino, forseti FIFA, segir sjálfstæði og óhæði dómsvalda hjá sambandinu vera algjört. Hann, og ekki síður Donald Trump Bandaríkjaforseti, hafi ekki haft áhrif á ákvörðun þess efnis að leikbann Folarin Balogun fyrir leik við Belgíu í kvöld hafi verið fellt niður. Fótbolti 6. júlí 2026 19:46
FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja FIFA hefur hafnað áfrýjun Belgíu um hæfi Folarin Balogun eftir að alþjóðaknattspyrnusambandið ákvað að fresta eins leiks banni hans fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum í 16-liða úrslitum HM í kvöld. Fótbolti 6. júlí 2026 17:13