Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Craig Gordon, markvörður Hearts í Skotlandi og elsti leikmaður HM í sumar, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna. Fótbolti 16. júlí 2026 17:03
Saliba frá í nokkra mánuði Franski varnarmaðurinn William Saliba verður frá keppni næstu 4-5 mánuðina vegna bakmeiðsla. Enski boltinn 16. júlí 2026 15:45
Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, stefnir á að halda áfram að þjálfa liðið fram yfir Evrópumótið 2028. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir skiptingarnar sínar þegar England reyndi að halda forystunni á móti Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 15:16
Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ „Það var bara erfitt að horfa á þetta,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands og sparkspekingur, um endalok Englands á HM. Hann tekur undir gagnrýni á kollega sinn Tomas Tuchel en segir þjálfara þurfa að taka ákvarðanir fljótt og það geti leitt til mistaka. Fótbolti 16. júlí 2026 13:03
Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar. Innlent 16. júlí 2026 12:36
Argentíska landsliðið má búast við sekt Argentína vann England í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Argentíska liðið má þó búast við sekt þar sem leikmenn liðsins veifuðu fána með pólitískum skilaboðum eftir leik. Fótbolti 16. júlí 2026 12:30
„Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Cristian Romero, varnarmaður argentínska landsliðsins og Tottenham á Englandi, skaut föstum skotum á sjónvarpsmanninn og fyrrverandi fótboltamanninn Gary Neville eftir sigur Argentínu á Englandi í undanúrslitum á HM í gærkvöld. Fótbolti 16. júlí 2026 12:01
Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Yfirburðir Argentínumanna voru algjörir á þeim tæplega 40 mínútum sem enn voru eftir af leiknum, eftir að England komst í 1-0 í undanúrslitum á HM í fótbolta í gær. Fótbolti 16. júlí 2026 11:32
Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Það voru bara fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma og England enn 1-0 yfir þegar flúraði miðjumaðurinn Enzo Fernández sýndi í gærkvöld eina af ástæðum þess að hann er dýrasti Argentínumaður í sögu fótboltans. Fótbolti 16. júlí 2026 10:01
Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Micah Richards fékk þær harmafréttir að faðir hans væri látinn skömmu áður en bein útsending BBC frá leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta hófst. Fótbolti 16. júlí 2026 09:34
Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 07:35
Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Þriðjudagskvöldið var frábært fyrir spænska undrabarnið Lamine Yamal en nú er komið í ljós að óprúttnir aðilar ætluðu að nýta sér fjarveru hans á heimsmeistaramótinu hinum megin við Atlantshafið. Fótbolti 15. júlí 2026 23:15
De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Luis de la Fuente, þjálfari Spánar, sagði að lið sitt „teldi sig vera ósigrandi“ eftir að hafa komist í úrslitaleik heimsmeistaramótsins með 2-0 sigri á Frakklandi. Fótbolti 15. júlí 2026 22:46
„Mig dreymdi þetta“ Lautaro Martínez var hetja Argentínumanna í kvöld en hann kom inn á völlinn sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Englandi í undanúrslitaleik HM þegar hann skoraði með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Lionel Messi. Fótbolti 15. júlí 2026 22:15
Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Argentínska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á Englandi í leik sem var ekki bara fótboltaleikur. Fótbolti 15. júlí 2026 21:51
„Miður mín fyrir hönd allra“ Harry Kane, fyrirliði Englands, sá sætið í úrslitaleiknum í hillingum þegar sex mínútur voru eftir og England 1-0 yfir. Argentínumenn skoruðu tvö mörk í lokin og sáu til þess að sextíu ára bið Englendinga eftir úrslitaleiknum lengist enn. Fótbolti 15. júlí 2026 21:35
Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Heimsmeistarar Argentínu eru komnir í úrslitaleikinn á öðru heimsmeistaramótinu í röð eftir 2-1 endurkomusigur á Englendingum í undanúrslitaleik HM í fótbolta í Atlanta í kvöld. Fótbolti 15. júlí 2026 21:03
„Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Frönsku stjörnurnar fengu harða útreið í heimalandinu þegar franskir fjölmiðlar gerðu upp tapið í undanúrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu. Fótbolti 15. júlí 2026 19:15
FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er ekki hætt að reyna að græða peninga á heimsmeistaramótinu í fótbolta og nú geta áhugasamir greitt fyrir að mæta á blaðamannafundinn fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Fótbolti 15. júlí 2026 18:52
Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, gaf lítið fyrir gagnrýni á spilamennsku liðsins á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu fyrir undanúrslitaleikinn gegn Englandi í kvöld. Enski boltinn 15. júlí 2026 16:47
Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska Ef enska fótboltalandsliðið kemst í úrslitaleik heimsmeistaramótsins gæti það haft áhrif á annan stóran íþróttaviðburð, Opna breska meistaramótið í golfi, sem fer fram sama dag. Fótbolti 15. júlí 2026 15:01
„Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ „Þetta er sennilega dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum, sem er merkilegt í ljósi þess að þessar þjóðir hafa sjaldan mæst og hafa ekki leikið landsleik núna í rúm tuttugu ár,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og fótboltaáhugamaður, um undanúrslitaviðureign Englands og Argentínu sem fram fer í kvöld. Fótbolti 15. júlí 2026 14:45
Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Kobbie Mainoo, leikmaður enska landsliðsins, hefur boðið Tyler Adams, sem greindist með heilabilun, á leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Adams eyddi nær öllu sparifénu sínu til þess að komast til Atlanta. Fótbolti 15. júlí 2026 14:15
Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Folarin Balogun, einn umtalaðasti maður heimsmeistaramótsins í fótbolta, segir að allt fjaðrafokið í kringum leikbann hans sem var aflétt hafi haft truflandi áhrif á undirbúning bandaríska landsliðsins fyrir leikinn gegn Belgíu í sextán liða úrslitum. Fótbolti 15. júlí 2026 12:30
Spánverjar jöfnuðu heimsmet og geta slegið það í úrslitaleiknum Með sigrinum á Frakklandi í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í gær jafnaði Spánn heimsmet. Spánverjar geta svo slegið það í úrslitaleik HM á sunnudaginn kemur. Fótbolti 15. júlí 2026 11:31
Haaland hunsaði Holland Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri. Lífið 15. júlí 2026 11:29
„Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var snöggur að skjóta niður pólitískar spurningar er tengjast deilum ríkis hans við Breta um Falklandseyjar. Utanríkisráðherra ríkisins hafði nýtt tækifærið og ýft upp gömul sár í vikunni. Fótbolti 15. júlí 2026 11:00
Maður dagsins á HM: Byrjaði hjá Barcelona en nú kominn til Real Madrid Marc Cucurella spilaði frábærlega í undanúrslitaleik milli Spánar og Frakklands þar sem Spánn bar sigur úr bítum 2-0. Hann stóð sig frábærlega í vörn Spánar og á stóran þátt í að stjörnuleikmenn á borð við Ousmane Dembele sáust varla í leiknum. Fótbolti 15. júlí 2026 10:00
Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Sérstök hálfleikssýning í anda Super Bowl, sem haldin verður í hálfleik úrslitaleiks HM í fótbolta á sunnudaginn, mun valda því að hálfleikshléið verður lengra en ætlast er til samkvæmt lögum fótboltans. Erlendir miðlar segja að hléið gæti orðið allt að hálftíma langt. Fótbolti 15. júlí 2026 08:00
„Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Didier Deschamps setti stórt spurningamerki við dómarann eftir 2-0 tapið gegn Spáni í gær, í næstsíðasta leik Frakklands undir stjórn Deschamps. Fótbolti 15. júlí 2026 07:31