Umfjöllun og viðtal: Keflavík-Höttur 71-62 | Keflavík lengdi taphrinu Hattar Keflavík og Höttur mættust fyrr í kvöld í níundu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Höttur byrjaði betur og leiddi eftir fyrsta leikhluta 8-19 en Keflavík náði yfirhöndinni undir lok annars leikhluta og var yfir 29-27 í hálfleik. Hattarmenn gáfust ekki upp og náðu að halda sér í leiknum fram í seinni hluta fjórða leikhluta en Keflavík vann að lokum níu stiga sigur 71-62. Körfubolti 8. desember 2022 23:24
Keflavík áfram á toppnum og Njarðvík valtaði yfir Breiðablik Keflavík vann 12 stiga sigur á ÍR þegar liðin mættust í Breiðholti í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 63-75. Þá vann Njarðvík stórsigur á Breiðabliki, lokatölur í Kópavogi 76-100. Körfubolti 7. desember 2022 22:45
„Við vorum aldrei að fara að búast við því að vinna alla leiki í vetur“ Það brá skiljanlega ekki fyrir brosi á vörum Harðar Axels Vilhjálmssonar, þjálfara liðs Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta, eftir að lið hans beið sinn fyrsta ósigur á þessari leiktíð gegn Val. Körfubolti 4. desember 2022 22:45
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 75-84 | Valskonur fyrstar til að leggja Keflavík að velli Sigurganga Keflavíkurkvenna í Subway deildinni var stöðvuð í kvöld. Umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi. Körfubolti 4. desember 2022 22:31
Umfjöllun, myndir og viðtal: Valur - Keflavík 75-100 | Finns-lausir Valsarar sáu aldrei til sólar Valur, topplið Subway-deildar karla í körfubolta, tapaði stórt fyrir Keflavík í einum af tveimur leikjum kvöldsins. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ekki á hliðarlínunni í kvöld og virtust leikmenn hans ekki vita í hvorn fótinn þeir ættu að stíga í. Körfubolti 2. desember 2022 23:10
Hjalti Þór: Þetta er kannski það besta sem við höfum sýnt Keflavík vann mjög öruggan 25 stiga sigur á Íslandsmeisturum Vals í Subway deild karla í körfubolta í kvöld. Hjalti Þór, þjálfari Keflavíkur, var mjög ánægður með sigurinn. Körfubolti 2. desember 2022 22:30
Glenn tekur tvær knattspyrnukonur með sér úr Eyjum Keflavík hefur samið við tvo nýja erlenda leikmenn sem báðar fylgja nýjum þjálfara liðsins úr Eyjum. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 08:46
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KR 91-75 | Keflavík aftur á sigurbraut en staðan svört hjá KR-ingum Keflavík sýndi fagmannlega og stöðuga frammistöðu þegar liðið sigldi í höfn sannfærandi 91-75 sigri í viðureign sinni við sært KR-lið í sjöundu umferð Subway-deildar karla í körfubolta í Blue Car Rental-höllinni í Keflavík í kvöld. Körfubolti 25. nóvember 2022 21:54
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 116-102 | Fyrsti sigur Þórsara á tímabilinu Þór Þorlákshöfn vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið tók á móti Keflvíkingum í Subway-deild karla í kvöld. Lokatölur 116-102, í leik þar rúmlega 30 stiga sveifla í síðari hálfleik réði úrslitum. Körfubolti 21. nóvember 2022 23:45
„Við getum brotnað niður eða eflst við þetta“ Emil Karel Einarsson, fyrirliði Þórs Þorlákshafnar, gat andað léttar eftir að liðið vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn Keflvíkingum í kvöld, 116-102. Emil dró vagninn er Þórsarar snéru leiknum sér í hag og segir það vera eins og þungu fargi sé af sér létt eftir að liðinu tókst loksins að landa sínum fyrsta sigri á tímabilinu. Körfubolti 21. nóvember 2022 22:31
Patrik kveðst bara eiga eftir að gangast undir læknisskoðun hjá Breiðablik Færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen verður leikmaður Íslandsmeistara Breiðabliks á næsta tímabili í Bestu deildinni nema hann standist ekki læknisskoðun í Kópavoginum. Fótbolti 20. nóvember 2022 12:20
Breiðablik að kaupa Johannesen á 11 milljónir Greint er frá því í hlaðvarpinu Dr.Football að framherjinn Patrik Johannesen sé á leið til Breiðabliks frá Keflavík. Talið er að Íslandsmeistararnir kaupi Johannesen á ellefu milljónir frá Keflvíkingum. Fótbolti 19. nóvember 2022 13:44
Er Keflavík óstöðvandi? Keflavík hefur farið frábærlega af stað í Subway-deild kvenna í körfuknattleik og er ósigrað eftir tíu umferðir. Velgengni Keflavíkur var rædd í síðasta þætti af Subway körfuboltakvöldi þar sem þeirri spurningu var velt upp hvort liðið væri hreinlega óstöðvandi. Körfubolti 19. nóvember 2022 10:31
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 63-68 | Keflavík með fullt hús eftir tíu leiki Keflavík vann Hauka í Ólafssal 63-68. Þetta var sannkallaður toppslagur í Subway deild-kvenna. Keflavík spilaði frábærlega í öðrum leikhluta og þrátt fyrir að Haukar komu til baka hélt Keflavík sjó og kláraði leikinn. Körfubolti 16. nóvember 2022 23:00
Ekkert fær Keflavík stöðvað og Fjölnir vann dramatískan sigur Keflavík rúllaði yfir Breiðablik í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 82-47 Ekkert virðist fá Keflavík stöðvað sem hefur unnið fyrstu níu leiki sína í deildinni. Í Grafarvogi vann Fjölnir nauman sigur á ÍR. Körfubolti 9. nóvember 2022 21:16
Keflavík mætir Njarðvík eða Tindastól eða Haukum Í dag var dregið í átta liða úrslit VÍS-bikars kvenna og karla í körfubolta. Ljóst er að Keflvíkingar þurfa að bíða nokkuð eftir því að vita nákvæmlega hvaða liði þeir mæta í karlakeppninni. Körfubolti 7. nóvember 2022 12:42
Hjalti: Við vorum þrusugóðir svona fyrstu 13-14 mínúturnar Keflvíkingar lönduðu öruggum 22 stiga sigra á heimavelli gegn Haukum í Subway-deild karla í kvöld. Hjalti Vilhjálmsson þjálfari þeirra fékkst ekki til að segja að þetta hefði verið auðveldur sigur, en tók undir fullyrðingu blaðamanns að þeir hefðu lagt grunninn að sigrinum í upphafi, þar sem þeir komu forystunni í 27 stig þegar mest var. Körfubolti 3. nóvember 2022 22:51
Umfjöllun og viðtal: Keflavík - Haukar 106-84 | Keflavík svaraði með öruggum sigri Keflavík vann góðan sigur á Haukum í Subway-deild karla í körfuknattleik í kvöld. Keflavík svaraði því vel eftir fyrsta tap liðsins í deildinni í síðustu umferð. Lokatölur 106-84 og Keflavík enn í efsta sæti deildarinnar. Körfubolti 3. nóvember 2022 22:30
Isabella Ósk: Ég fann það bara fyrir sjálfa mig og mína framtíð í körfubolta að ég vildi reyna að vera í toppslag í ár Isabella Ósk Sigurðardóttir fór beint í eldlínuna í sínum fyrsta leik með Njarðvík í kvöld, þegar liðið mætti grönnum sínum í hörkuleik. Það var hart tekist á og margar villur dæmdar, þá sérstaklega á heimakonur. Körfubolti 2. nóvember 2022 22:46
Umfjöllun og viðtal: Njarðvík - Keflavík 73-80 | Toppliðið vann meistarana í Suðurnesjaslag Topplið Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfuknattleik vann í kvöld góðan sigur á nágrönnum sínum frá Njarðvík. Lokatölur 80-73 fyrir Keflavík sem heldur áfram góðu gengi sínu í deildinni. Körfubolti 2. nóvember 2022 22:20
Adam Ægir stoðsendingakóngur: Ég þarf ekki að fá þessa fjórtándu ef ég vinn Adam Ægir Pálsson er stoðsendingakóngur Bestu deildar karla samkvæmt því sem Knattspyrnusamband Íslands hefur gefið út þrátt fyrir að vafi leiki á sigurstoðsendingunni hans. Íslenski boltinn 1. nóvember 2022 09:01
Tekur við Keflavík eftir brottreksturinn úr Eyjum Jonathan Glenn hefur samið um að taka við sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í fótbolta og var því ekki lengi án starfs eftir að knattspyrnuráð ÍBV ákvað að láta hann fara fyrir hálfum mánuði. Íslenski boltinn 31. október 2022 10:27
Umfjöllun og viðtal: Keflavík - Fram 4-0 | Aftur vann Keflavík stórsigur á Fram Keflvíkingar unnu öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Fram í lokaumferð Bestu-deildar karla í dag. Guðmundur Magnússon gat tryggt sér markakóngstitilinn með marki fyrir Framara, en hann þarf að sætta sig við það að deila titlinum með Nökkva Þey Þórissyni. Íslenski boltinn 29. október 2022 17:00
Stoðsendingakóngurinn Adam Ægir: „Hef gengið í gegnum mikið mótlæti“ Adam Ægir Pálsson, sóknarmaður Keflvíkinga, var hress eftir 4-0 sigur Keflvíkinga á Frömurum. Eftir leikinn var ljóst að hann var stoðsendingarhæstur á tímabilinu. Fótbolti 29. október 2022 16:30
Stoðsendingatitilinn undir í leik Keflavíkur og Fram á morgun Fram getur náð toppsæti af Keflavík með stórsigri í innbyrðis leik liðanna í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta en getur einnig bæði eignast markakóng og stoðsendingakóng deildarinnar. Íslenski boltinn 28. október 2022 15:01
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Keflavík 97-82 | Blikar fyrstir til að leggja Keflvíkinga Breiðablik vann í kvöld nokkuð öruggan 15 stiga sigur er liðið heimsótti Keflvíkinga í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 97-82, en fyrir leikinn var Keflvaík eitt af tveimur taplausum liðum deildarinnar. Körfubolti 27. október 2022 22:08
Topplið Keflavíkur og Hauka með góða sigra Keflavík og Haukar, toppliðin í Subway deild kvenna í körfubolta unnu góða útisigra í kvöld. Haukar gerðu góða ferð í Kópavog og unnu Breiðablik 74-54. Keflavík fór í Grafarvog og lagði Fjölni 91-72. Körfubolti 26. október 2022 21:31
Rúnar Júl skoraði síðast þegar Ferencváros kom til Íslands Valur mætir Ferencváros í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ungverska liðið kemur til Íslands en síðast þegar það gerðist skoraði einn mesti töffari Íslandssögunnar gegn því. Handbolti 25. október 2022 11:31
Keflavíkurkonur áfram með fullt hús stiga Grindavík tókst ekki að stöðva sigurgöngu Keflavíkur í Subway deildinni í körfubolta í kvöld. Körfubolti 23. október 2022 21:11
Sjáðu mörkin sem felldu Leikni, héldu veikri von ÍA á lífi og þrennu Dags á Hlíðarenda Besta-deild karla bauð upp á sannkallaða markasúpu í gær þar sem hvorki fleiri né færri en tuttugu mörk voru skoruð í þremur leikjum. Fótbolti 23. október 2022 12:01