Samdráttur í losun í faraldrinum sagður fordæmalaus Losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum hrundi um sautján prósent á milli ára vegna kórónuveiruheimsfaraldursins þegar mest lét í fyrri hluta apríl samkvæmt nýrri greiningu vísindamanna. Samdrátturinn er talinn verða skammvinnur og umtalsvert minni fyrir árið í heild. Erlent 19. maí 2020 15:54
Stuðningur Alþjóðabankans vegna COVID nær til hundrað þjóðríkja Alþjóðabankinn hefur frá því í mars stutt við bakið á millitekju- og lágtekjuríkjum í viðleitni þeirra við að sporna við útbreiðslu veirunnar. Heimsmarkmiðin 19. maí 2020 15:43
Sex af 748 með kórónuveiruna Niðurstöður eru komnar úr fyrsta hluta prófana fyrir kórónuveirunni í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 19. maí 2020 15:23
„Þetta blasir við okkur eins og hamfarir“ Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, segir að efnahagsþrengingarnar vegna kórónuveirunnar blasi við íbúum á svæðinu líkt og hamfarir. Í venjulegu árferði ætti meginþorri tekna sveitarfélagsins, sem heldur því á floti allt árið, að koma inn á sumarmánuðum. Sveitarfélögin geti ekki beðið mikið lengur eftir stuðningi stjórnvalda. Neyðarástandið sé hér og nú. Innlent 19. maí 2020 14:40
Isavia fær sex milljarða króna lán Evrópski fjárfestingabankinn hefur samþykkt lánaádrátt Isavia upp á 40 milljónir evra sem samsvarar um 6,3 milljörðum króna. Viðskipti innlent 19. maí 2020 14:27
Barcelona opnar strendurnar á ný Fólk sem býr innan við kílómetra frá baðströndum Barcelona á Spáni verður heimilt að snúa aftur á strendurnar til að baða sig í sólinni frá og með morgundeginum. Erlent 19. maí 2020 14:00
Ekkert smit sjötta daginn í röð og aðeins þrjú virk smit Enginn greindist með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn hér á landi, sjötta daginn í röð, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is. Innlent 19. maí 2020 13:04
Segir að „sjúklega offeitur“ Trump ætti ekki að taka inn malaríulyfið Nancy Pelosi, demókrati og forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, kveðst hafa áhyggjur af Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að hann sagðist taka inn malaríulyf gegn kórónuveirunni. Erlent 19. maí 2020 12:36
Einar sakar Hjálmar um öfund og gamalkunnan æsing Upp er risinn djúpstæður ágreiningur milli ólíkra stétta listamanna. Innlent 19. maí 2020 12:22
Stúdentar senda fjögurra milljarða króna reikning á stjórnvöld Háskólastúdentar krefjast endurgreiðslu á atvinnutryggingagjaldi sem greitt hefur verið af launum stúdenta frá árinu 2010 Innlent 19. maí 2020 12:19
Fjölnir fékk mest: 300 milljónir greiddar út til íþrótta- og ungmennafélaga Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands hefur nú greitt til íþrótta- og ungmennafélaga tæplega 300 milljónir króna af 450 milljón króna framlagi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar vegna áhrifa Covid-19. Sport 19. maí 2020 12:11
Mörg hótel muni bjóða upp á einangrunarganga Mörg hótel á landinu munu bjóða upp á einangrunarganga fyrir ferðamenn sem kunna að veikjast af kórónuveirunni hér á landi eftir opnun landamæra 15. júní. Innlent 19. maí 2020 11:40
Gagnrýnir rithöfunda harðlega fyrir sérhyggju Fyrrverandi rektor Listaháskólans sakar rithöfunda um gengdarlausa frekju vegna aukaúthlutunar listamannalauna. Innlent 19. maí 2020 10:58
Á ekki von á biðröðum af ferðamönnum þegar landið opnar Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segist ekki eiga von á því að biðraðir skapist af ferðamönnum þegar landið verður opnað á ný um miðjan næsta mánuð. Viðskipti innlent 19. maí 2020 10:53
Fyrirliði Watford mætir ekki til æfinga af ótta við veiruna Fyrirliði Watford hefur miklar áhyggjur af því að smita fjölskyldu sína af kórónuveirunni og ætlar því ekki að mæta aftur til æfinga í vikunni. Enski boltinn 19. maí 2020 10:30
Skyndiheimsóknir, GPS og myndbönd notuð svo ensku liðin svindli ekki Enska úrvalsdeildin mun setja upp viðamikið eftirlitskerfi til þess að tryggja það að ekkert af liðum deildarinnar komist upp með að brjóta strangar reglur um samskiptafjarlægð. Enski boltinn 19. maí 2020 08:30
Hik er sama og tap! Skaftárhreppur er eitt af þeim sveitarfélögum sem ljóst er að verða fyrir hlutfallslega mestu tekjutapi vegna afleiðinga Covid 19 líkt og fram hefur komið í greiningu Byggðastofnunar. Skoðun 19. maí 2020 07:30
Trump setur WHO afarkosti Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að Bandaríkin hætti fjárframlögum til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um ókomna tíð vegna viðbragða stofnunarinnar við faraldri kórónuveiru. Erlent 19. maí 2020 06:50
Merkel gefur eftir og samþykkir styrkveitingar Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynntu í kvöld að þau hefðu komist að samkomulagi um drög að 500 milljarða evra neyðarsjóð, sem nota á til að aðstoða þau ríki sem hafa orðið hvað verst úti vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 18. maí 2020 23:41
Ekki hefur verið sýnt fram á virkni lyfs sem Trump hefur tekið til varnar gegn veirunni Bandaríkjaforseti, Donald Trump, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hafi undanfarna eina og hálfa viku tekið inn malaríulyfið Hydroxychloroquine til varnar gegn faraldri kórónuveirunnar. Erlent 18. maí 2020 23:25
Kátína hjá fastagestum að komast aftur í sundlaugina Landsmenn voru greinilega orðnir óþreyjufullir að komast í sund, miðað við biðraðirnar sem mynduðust á miðnætti í Reykjavík þegar laugarnar voru opnaðar, eftir nærri tveggja mánaða lokun. Innlent 18. maí 2020 20:37
Katrín um opnun landsins: „Má ekki snúast um þrýsting“ Forsætisráðherra segir af og frá að verið sé að láta undan þrýstingi ferðaþjónustunnar með því að stefna að opnun landsins fyrir ferðamenn í júní. Varfærnasta leiðin hafi orðið fyrir valinu og heilbrigðisyfirvöld hafi ekki verið beitt þrýstingi um að láta það ganga upp. Innlent 18. maí 2020 19:16
Segir heilbrigðiskerfið hafa staðist álagið vel „Íslenska heilbrigðiskerfið hefur staðist álagið vel. Við búum að sterkri, samhæfðri opinberri heilbrigðisþjónustu sem hefur sýnt aðdáunarverðan sveigjanleika og aðlögunarhæfni.“ Innlent 18. maí 2020 18:38
Erfitt fyrir suma að stíga aftur út í samfélagið vegna heilsukvíða Margir eiga erfitt með að snúa aftur út í samfélagið nú þegar allt virðist á réttri leið eftir kórónuveirufaraldurinn. Sumir fundu fyrir létti þegar takmarkanir voru sem mestar, að sögn sálfræðings, sem segir of mikla varkárni geta valdið kvíða og haft áhrif á andlega heilsu. Innlent 18. maí 2020 18:30
Atvinnuleysisbætur stúdenta: Jafnræði, öryggi og hugarró Kalli stúdenta eftir atvinnuleysisbótum hefur ekki verið svarað. Skoðun 18. maí 2020 17:00
Mælir með því að fólk haldi sig við reglubundna bólfélaga Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir er frekar á því að Íslendingar, sem og aðrir, eigi að halda sig við sína reglubundnu bólfélaga um þessar mundir. Innlent 18. maí 2020 15:00
Þórólfur ósammála þeim sem eru ósammála „Ég er bara ekkert sammála þessari skoðun og vænti þess að ég geti rætt við þessa góðu kollega mína,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir um gagnrýni sem læknar hafa sett fram á áætlanir um að opna aftur fyrir komu ferðamanna hingað til lands Innlent 18. maí 2020 14:40
Vilja hljóðnema á hliðarlínuna og sýna beint úr klefanum Sjónvarpsrétthafar af ensku úrvalsdeildinni vilja bæta í útsendingar sínar frá deildinni á meðan áhorfendur mega ekki vera viðstaddir leiki. Enski boltinn 18. maí 2020 14:30
Xi varði viðbrögð Kína við faraldrinum, WHO lofar rannsókn Kínversk stjórnvöld eru opin fyrir óháðri úttekt á viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum eftir að ríkjum tekst að hafa hemil á honum. Xi Jinping, forseti Kína, varði viðbrögð ríkisstjórnar sinnar á fundi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í dag þar sem forstjóri stofnunarinnar lofaði rannsókn eins fljótt og auðið yrði. Erlent 18. maí 2020 14:04
Ensku úrvalsdeildarliðin samþykkja að hefja æfingar á morgun Æfingar hjá öllum ensku úrvalsdeildarliðunum í knattspyrnu hefjast á morgun, þriðjudaginn 19. maí. Enski boltinn 18. maí 2020 13:47
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent