Ísrael og Líbanon hefja viðræður um umdeilt hafsvæði Yfirvöld í Ísrael og Líbanon hafa samþykkt að hefja viðræður sem ætlað er að binda enda á deilur um lögsögu ríkjanna. Erlent 1. október 2020 16:53
Ríkisstjórnarmyndun í Líbanon farin út um þúfur Tilraunir til þess að mynda nýja ríkisstjórn í Líbanon eru farnar út um þúfur eftir að Mustapha Adib, tilnefndur forsætisráðherra, sagðist ekki vilja leiða ríkisstjórn sem væri dæmd til þess að springa. Erlent 26. september 2020 13:58
Fjörutíu milljóna króna framlag vegna neyðarinnar í Lesbos og Líbanon Íslensk stjórnvöld veita tuttugu milljónum króna til neyðaraðstoðar vegna eldsvoða í búðum hælisleitenda á grísku eynni Lesbos. Tuttugu milljónum króna verður einnig varið til mannúðarstarfs í Líbanon vegna sprenginganna í Beirút. Heimsmarkmiðin 15. september 2020 12:51
Annar stór eldsvoði blossar upp á höfninni í Beirút Eldur logar nú í olíu- og dekkjageymslu á hafnarsvæðinu í Beirút, aðeins mánuði eftir að gríðarlega öflug sprenging þar olli mannskaða og eignartjóni. Engar fréttir hafa borist af mannskaða nú en eldurinn er sagður hafa slegið borgarbúa óhug. Erlent 10. september 2020 12:27
Konur í Beirút berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi Konur og stúlkur í Líbanon berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi. Sprengingarnar í Beirút , COVID-19 og djúpstæð efnahagskreppa veikja stöðu kvenna og stúlkna. Heimsmarkmiðin 4. september 2020 14:00
UNICEF kallar eftir stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút svo öll þau börn sem ættu að hefja nýtt skólaár njóti réttinda sinna til menntunar. Heimsmarkmiðin 4. september 2020 10:14
Sala hafin á Fokk Ofbeldi bol með mynd frá Önnu Maggý og ljóði GDRN UN Women á Íslandi hefja í dag sölu á glænýjum Fokk ofbeldi bol. Allur ágóði rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon. UN Women á Íslandi fengu GDRN til leggja átakinu lið en FO langerma bolurinn skartar ljóði GDRN sem er táknrænt fyrir baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi á bakhlið bolarins. Lífið 3. september 2020 09:15
Macron biðlar til Líbanon að mynda ríkisstjórn í flýti Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur biðlað til nýs forsætisráðherra Líbanon að mynda nýja ríkisstjórn í flýti. Erlent 31. ágúst 2020 23:00
Líklegt að sendiherra verði næsti forsætisráðherra Líbanon Mustapha Adib, sendiherra Líbanon í Þýskalandi, er reiðbúinn til þess að taka við forsætisráðherrastólnum í Líbanon. Erlent 30. ágúst 2020 23:30
Vonar að faraldrinum verði lokið innan tveggja ára Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), segist vona að kórónuveirufaraldrinum verði lokið innan tveggja ára. Erlent 21. ágúst 2020 22:39
Einn fundinn sekur um morðið á Hariri Sérstakur dómstóll, sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefur sakfellt einn af þeim fjórum sem ákærðir voru fyrir aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í Beirút árið 2005. Erlent 18. ágúst 2020 13:56
Engar sannanir fyrir aðkomu Sýrlands að dauða Hariri Engar sannanir eru fyrir því að forsvarsmenn Sýrlands eða Hezbollah-samtakanna hafi látið myrða Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanon, þó þessir aðilar hafi talið sig hagnast á dauða hans. Erlent 18. ágúst 2020 12:03
Rúmlega 16 milljónir söfnuðust fyrir Beirút hjá Rauða krossinum Neyðarsöfnun Rauða krossins fyrir íbúa Beirút vegna sprengingarinnar sem varð þar í síðustu viku er lokið. Rúmlega 16 milljónir söfnuðust og renna til Rauða krossins í Líbanon. Innlent 14. ágúst 2020 13:17
Líbanski herinn fær aukin völd Líbanska þingið hefur framlengt neyðarástandið landinu sem felur meðal annars í sér að herinn fær nú aukin völd. Erlent 13. ágúst 2020 12:15
Varaðir við hættunni í síðasta mánuði Forsætisráðherra og forseti Líbanon voru varaðir við því í síðasta mánuði að 2.750 tonn af ammóníum nítrati, sem finna mátti í vöruskemmu við höfn Beirút, væri ógn við borgina. Erlent 10. ágúst 2020 23:51
Sleit ríkisstjórn Líbanon: Segir spillinguna stærri en ríkið Hassan Diab, forsætisráðherra Líbanon, hefur slitið ríkisstjórn sinni og stigið úr embætti. Það gerði hann vegna sprengingarinnar í Beirút en mikil reiði ríkir í Líbanon vegna langvarandi spillingar, vanrækslu stjórnvalda og efnahagsörðugleika. Erlent 10. ágúst 2020 17:47
Reiknað með að líbanska ríkisstjórnin segi af sér vegna sprengingarinnar Búist er við því að ríkisstjórn Líbanon muni segja af sér síðar í dag, innan við viku frá því að gríðarstór sprenging lagði hluta Beirút, höfuðborgar Líbanons, í rúst. Erlent 10. ágúst 2020 15:47
Tvö hundruð talin af eftir sprenginguna Sífellt fleiri finnast látin í rústum Beirút eftir sprenginguna þar í liðinni viku. Erlent 10. ágúst 2020 10:54
Fyrst ráðherra til að segja af sér eftir sprenginguna Upplýsingamálaráðherra Líbanons, Manal Abdel Samad, tilkynnti um afsögn sína í morgun og varð þar með fyrst ráðherra til að segja af sér embætti eftir sprenginguna í höfuðborginni Beirút á þriðjudag. Erlent 9. ágúst 2020 09:46
Gígurinn í Beirút 43 metra djúpur Fjöldi leiðtoga ríkja heims munu í dag ræða saman á símafundi og skipuleggja fjársöfnun fyrir Líbani sem glíma nú við afleiðingar sprengingarinnar. Erlent 9. ágúst 2020 08:28
Ætlar að boða til snemmbúinna kosninga Kröftug mótmæli hafa brotist út í líbönsku höfuðborginni Beirút eftir sprenginguna sem varð í borginni síðasta þriðjudag. Sprengingin kostaði að minnsta kosti 158 manns lífið og má rekja hana til ammóníum-nítrats sem hafði verið geymt í miklu magni í geymslu á hafnarsvæði borgarinnar. Erlent 8. ágúst 2020 21:14
Beita táragasi gegn mótmælendum í Beirút Líbönsk óreirðalögregla hefur beitt táragasi á mótmælendur í höfuðborginni Beirút eftir að þeir reyndu að brjóta sér leið inn í þinghús landsins. Erlent 8. ágúst 2020 14:15
Alvarlegt ástand og reiði í Beirút innst 149 eru látnir en talið er að þeim muni fjölga þar sem margra er enn saknað. Erlent 7. ágúst 2020 15:35
Lögregla beitti mótmælendur í Beirút táragasi Lögreglan beitti fólk sem safnast hafði saman hjá þinghúsinu táragasi. Erlent 7. ágúst 2020 07:02
Í miðri brúðarmyndtöku þegar sprengingin varð Hin 29 ára gamla Israa Seblani var í miðri brúðarmyndatöku við Le Gray hótelið í Beirút þegar gríðarstór sprenging varð á hafnarsvæði borgarinnar á þriðjudag. Erlent 6. ágúst 2020 21:01
Án umbóta muni íbúar Líbanon þjást áfram Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að án umbóta muni íbúar Líbanon halda áfram að þjást. Landið gangi nú í gegnum pólitíska og efnahagslega krísu og þörf sé á skjótum viðbrögðum. Erlent 6. ágúst 2020 12:14
Íbúar Beirút krefjast réttlætis eftir sprenginguna Íbúar í Beirút, höfuðborg Líbanon, hafa lýst reiði sinni í garð ríkisstjórnar landsins vegna sprengingarinnar sem varð við höfn borgarinnar á þriðjudag. Erlent 6. ágúst 2020 06:35
Hefja neyðarsöfnun vegna sprenginganna í Beirút Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna hamfarasprenginganna í Beirút. Á annað hundruð manns fórust í sprengingunum að minnsta kosti og þúsundir slösuðust. Innlent 5. ágúst 2020 17:46
Forseti og borgarstjóri senda samúðarkveðjur til Líbanon Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafa sent kollegum sínum í Líbanon samúðarkveðjur. Innlent 5. ágúst 2020 15:59
Farþegaskip á hliðinni og stærðarinnar gígur í höfninni Gervihnattamyndir frá höfninni í Beirút sýnir að sprengingin í gær skildi eftir sig stærðarinnar gíg. Erlent 5. ágúst 2020 14:13