Ísland standi frammi fyrir hamfarakólnun verði ekkert gert Breytingar í veltihringrás Atlantshafsins af sökum loftslagsbreytinga gætu valdið því að hringrás Golfstraumsins rofni og verulega kólni á Íslandi. Fagstjóri loftslagsmála hjá Veðurstofu Íslands segir Ísland standa frammi fyrir hamfarakólnun. Innlent 31.8.2025 11:32
Ósammála því að jarðvarmavirkjanir séu í losunarbókhaldinu Forsvarsmenn HS orku eru ósammála því að losun frá jarðvarmavirkjunum ætti að falla undir losunarbókhald Íslands á gróðurhúsalofttegundum. Eldvirknin á Reykjanesi sé ástæða þess að losun virkjunarinnar í Svartsengi hafi aukist um meira en sextíu prósent á milli ára. Innlent 31.8.2025 07:02
Skoða að endurheimta votlendi til að stöðva loftslagsbreytingar og Rússa Yfirvöld í Eistlandi kanna nú möguleikann á að endurheimta framræstar mómýrar og slá með því tvær flugur í einu höggi. Annars vegar til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar til þess að efla varnir landsins gegn mögulegri innrás Rússa. Erlent 29.8.2025 13:49
Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Íslensk stjórnvöld þurfa að setja sér sitt eigið losunarmarkmið gagnvart Parísarsamkomulaginu eftir að í ljós kom að þau gátu ekki látið duga að vísa til samstarfs síns við Evrópusambandið. Þau nýta sér jafnframt ýtrasta frest til þess að uppfæra markmiðið sem átti að skila síðasta vetur. Innlent 26. ágúst 2025 08:51
Fótboltastelpan sem fór í verkfræði: „Höfum eiginlega verið saman að eilífu“ Pind nafnið vekur forvitni. Eruð þið Lóa Pind – hin fræga - þá skyldar? „Já,“ svarar Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix. „Við erum systkinabörn,“ útskýrir hún svo en Edda er dóttir hjónanna Ara Skúlasonar og Jönu Pind, sem er dönsk en var þó sjálf uppalin á Íslandi. Atvinnulíf 25. ágúst 2025 07:01
Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Lögreglumenn báru hóp loftslagsmótmælenda, þar á meðal Gretu Thunberg, út úr norska seðlabankanum í morgun. Hópurinn hefur mótmælt á ýmsum stöðum í vikunni, þar á meðal við stærstu olíuhreinsistöð Noregs. Erlent 22. ágúst 2025 08:44
Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Mikill vöxtur í framleiðslu sólarorku átti þátt í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Kína um eitt prósent á milli ára á fyrri helmingi ársins. Ný vind og sólarorkuver sem bætast við í ár gætu annað allri orkuþörf Þýskalands og Bretlands samanlagt ef áætlanir ganga eftir. Erlent 21. ágúst 2025 11:55
Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Ísland stendur á tímamótum í umhverfismálum og það er kominn tími til að grípa til aðgerða. Á tímum óvissu í alþjóðamálum, aukins þrýstings á orkumarkaði og hnattrænna áskorana í loftslagsmálum höfum við ekki efni á að bíða. Skoðun 21. ágúst 2025 08:30
Nýtt landsframlag – og hvað svo? Innan fárra vikna þarf Ísland að skila inn nýju landsframlagi gagnvart Parísarsamningnum og gera grein fyrir stefnu sinni í loftslagsmálum fram til ársins 2035. Skoðun 19. ágúst 2025 14:31
Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Fyrrverandi innflytjendamálaráðherra Noregs og leiðtogi Framfaraflokksins vill vísa Gretu Thunberg, sænska aðgerðasinnanum, úr landi vegna þess að hún tók þátt í mótmælum við norska olíuhreinsistöð. Forsætisráðherrann hafnar því. Erlent 19. ágúst 2025 09:00
Hvaða framtíð bíður barna okkar árið 2050? Árið er 2050.Dóttir mín, sem nú er að fara í 10. bekk, verður þá orðin fertug – í blóma lífsins, rétt að komast á miðjan aldur. Ég hugsa oft til framtíðar hennar. Hvernig mun daglegt líf hennar líta út? Skoðun 18. ágúst 2025 07:32
Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Öldur gætu náð alla leið að styttunum frægu á Páskaeyju fyrir árið 2080 vegna hækkandi yfirborðs sjávar sem er ein af afleiðingum loftslagsbreytinga af völdum manna. Stytturnar laða tugi þúsunda ferðamanna að eyjunni árlega en ferðaþjónusta er undirstöðuatvinnugrein þar. Erlent 14. ágúst 2025 09:21
Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Hitamet falla nú hvert af öðru í Evrópu, meðal annars í suðurhluta Frakklands og Króatíu. Á sama tíma geisa gróðureldar víða um álfuna og hafa farið yfir 4.000 ferkílómetra. Erlent 13. ágúst 2025 09:03
Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Á næstu vikum rennur út lokafrestur sem ríki hafa til að uppfæra landsframlag sitt gagnvart Parísarsamningnum. Skoðun 13. ágúst 2025 07:01
Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Virkjanakostir í Héraðsvötnum í Skagafirði, þar á meðal 156 megavatta Skatastaðavirkjun, fara ekki í verndarflokk heldur í biðflokk rammaáætlunar. Þetta er samkvæmt tillögu sem Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra orku- og umhverfismála, hyggst leggja fyrir Alþingi í haust og hann kynnir núna í samráðsgátt stjórnvalda. Ennfremur leggur hann þar til að Urriðafossvirkjun í Þjórsá verði í nýtingarflokki en ekki í biðflokki. Innlent 11. ágúst 2025 09:29
„Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Eldri kona er látin og að minnsta kosti eins er saknað í gróðureldum sem nú geisa í suðurhluta Frakklands. Forsætisráðherrann François Bayrou heimsótti Aude í gær, þar sem eldarnir hafa brunnið á svæði sem er stærra en París. Erlent 7. ágúst 2025 07:24
Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Olís hefur verið sektað um 250 þúsund krónur fyrir að fullyrða í appinu sínu að olíufélagið kolefnisjafni allan sinn rekstur. Fullyrðingarnar eru ekki studdar af fullnægjandi gögnum að sögn Neytendastofu. Neytendur 3. ágúst 2025 21:02
„Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Noregur, Svíþjóð og Finnland hafa fundið fyrir „fordæmalausri“ hitabylgju síðustu vikur. Júlímánuður var sá hlýjasti í Svíþjóð frá upphafi mælinga og norðan við Norðuheimskautsbaug mældist hiti yfir þrjátíu stigum þrettán daga í júlí. Erlent 2. ágúst 2025 12:45
Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Vindorkuver á fjöllunum ofan Gilsfjarðar á Vestfjörðum fær grænt ljóst, samkvæmt tillögu sem ráðherra umhverfis- og orkumála hyggst leggja fram á Alþingi í haust. Þetta gæti orðið fyrsti stóri vindmyllugarðurinn á Íslandi sem rís á vegum einkaaðila. Innlent 24. júlí 2025 21:21
Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Alþjóðadómstóll Sameinuðu þjóðanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríki mættu höfða mál hvert gegn öðru vegna loftslagsbreytinga, meðal annars vegna sögulegrar losunar gróðurhúsalofttegunda. Erlent 23. júlí 2025 16:59
Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Flug lítillar rafmagnsflugvélar í gær frá Sønderborg á sunnanverðu Jótlandi til Kaupmannahafnar þykir marka þáttaskil í dönsku flugsögunni. Fullyrt er að þetta teljist fyrsta græna innanlandsflugið í Danmörku á flugvél sem eingöngu er rafknúin. Erlent 10. júlí 2025 23:33
Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Tilraunaverkefni um að fanga og binda koltvísýringslosun kísilmálmvers Elkem var valinn staður í Noregi frekar en á Íslandi þrátt fyrir að bindingarlausn Carbfix væri sú hagkvæmasta. Forstjóri Elkem á Íslandi segir ástæðuna nýsköpunarstyrki í Noregi sem íslensk stjórnvöld geti ekki keppt við. Viðskipti innlent 10. júlí 2025 07:03
Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir stefna í viðvarandi orkuskort í landinu. Umhverfis- og orkuráðherra boðar hins vegar að nýjum virkjanakostum verði bætt í nýtingarflokk á hverju ári. Innlent 8. júlí 2025 22:50
Evrópuríkjum leyft að nota kolefnisjöfnun erlendis í fyrsta skipti Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til nýtt markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 90 prósent fyrir árið 2040 í dag. Umdeilt ákvæði um að ríki geti greitt fyrir kolefnisjöfnun í þróunarríkjum til þess að ná markmiðum sínum er í fyrsta skipti að finna í áætluninni. Erlent 2. júlí 2025 16:01