Þurfti að fara í hjartaaðgerð eftir Ólympíuleikana Ítalski skíðaskotfimimaðurinn Tommaso Giacomel gekkst undir hjartaaðgerð eftir að hafa hætt keppni í 15 kílómetra skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Sport 24.2.2026 22:33
Finnland skrópar á opnunarhátíð Ólympíumóts fatlaðra Finnland mun ekki taka þátt í opnunarhátíð Ólympíumóts fatlaðra í Mílanó Cortina þann 6. mars næstkomandi. Sport 24.2.2026 17:31
Rússneskur hermaður sem særðist í stríðinu gæti keppt á Ólympíumótinu Fjöldi hermanna hefur fallið og enn fleiri hafa slasast á þeim fjórum árum sem nú eru liðin frá innrás Rússlands í Úkraínu. Um fimm hundruð þeirra Rússa sem særðust æfa nú íþróttir og stefna sumir á að keppa fyrir hönd Rússlands á Ólympíumótum fatlaðra. Sport 24.2.2026 13:32
Kvörtuðu yfir of miklum snjó á Vetrarólympíuleikunum Kanadamenn kenndu veðrinu um að hafa ekki náð meiri árangri í skíðaati á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu, jafnvel þó að allir keppendur kepptu í sama veðri. Sport 23. febrúar 2026 08:03
Vonn svarar fyrir sig: „Sveið þegar fólk sagði að ég væri eigingjörn“ Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn hefur svarað þeim sem gagnrýndu þátttöku hennar á Vetrarólympíuleikunum fullum hálsi. Henni sárnaði að vera sökuð um eigingirni. Sport 23. febrúar 2026 07:02
Hetjan missti tönn: „Ég elska Bandaríkin“ Jack Hughes var einni tönn fátækari en einum gullverðlaunum ríkari eftir úrslitaleikinn í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Sport 22. febrúar 2026 23:18
Vann gull og frétti svo af andláti ömmu sinnar: „Lofaði henni að ég yrði hugrökk“ Skömmu eftir að ein skærasta stjarna Vetrarólympíuleikanna 2026 vann gullverðlaun fékk hún vondar fréttir. Sport 22. febrúar 2026 21:43
Fyrsta íshokkígull Bandaríkjanna frá Kraftaverkinu 1980 Dramatíkin var mikil þegar Bandaríkin urðu Ólympíumeistarar í íshokkí karla í fyrsta sinn í nær hálfa öld. Sport 22. febrúar 2026 19:46
Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina lýkur í dag og höfum við fengið að fylgjast með mögnuðum afrekum íþróttafólks í algjörum heimsklassa. Leikarnir hafa líka boðið upp á athyglisverðar fréttir sem hafa vakið töluverða athygli. Hér eru þær dregnar saman í einn pakka. Sport 22. febrúar 2026 12:16
Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Pólska skautakonan Kamila Sellier hefur gengist undir aðgerð eftir að hafa skorist á auga á Vetrarólympíuleikunum í gær. Sport 21. febrúar 2026 23:16
Enn lengist rúmlega aldar bið Breta eftir krullugulli Bretland laut í lægra haldi fyrir Kanada í úrslitaleik í krullu karla á Vetrarólympíuleikunum í kvöld. Bretar hafa ekki unnið gullverðlaun í greininni síðan 1924. Sport 21. febrúar 2026 22:32
Sex gull af sex mögulegum: Sögulegur sigur Klæbo á Vetrarólympíuleikunum Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo vann sögulegan sigur í fimmtíu kílómetra skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum í dag. Þetta voru sjöttu gullverðlaun Klæbo í jafnmörgum greinum á leikunum og slær hann þar með met yfir flest gullverðlaun á einum og sömu Vetrarólympíuleikunum. Sport 21. febrúar 2026 12:07
„Hægt að ná langt með því að vera hress og skemmtilegur“ Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson er nú kominn heim eftir frábært gengi á Vetrarólympíuleikunum. Þar vakti hann athygli fyrir jákvætt og hressandi viðhorf en þurfti einnig að leiðrétta misskilning sem fór á kreik þegar sumir töldu hann hreinlega vera að skemmta sér of mikið. Sport 21. febrúar 2026 09:31
Vinna að nýrri mæliaðferð eftir „typpahneykslið“ Orðrómur um typpastækkanir hefur valdið fjaðrafoki í skíðastökksheiminum á Vetrarólympíuleikunum í ár. Nú vinnur Alþjóðaskíðasambandið að því að koma í veg fyrir slíka möguleika á svindli í framtíðinni. Sport 20. febrúar 2026 23:16
Sú sigurstranglegasta í einangrun fyrir lokagrein sína á Ólympíuleikunum Svíar hafa miklar áhyggjur af einni af stærstu stjörnum sínum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Skíðagöngustjarnan Frida Karlsson er í einangrun frá sænska hópnum fyrir fimmtíu kílómetra gönguna á Ólympíuleikunum á sunnudag. Sport 20. febrúar 2026 22:46
Fékk skauta í augað á Ólympíuleikunum Hræðilegt slys varð í skautakeppni á stuttri braut á Vetrarólympíuleikunum á föstudag. Nokkrir keppendur rákust saman og féllu og pólska skautakonan Kamila Sellier fékk skauta í augað. Sport 20. febrúar 2026 21:38
Nýjasta aðgerð Lindsey Vonn tók sex klukkutíma Alpagreinakonan Lindsey Vonn hefur gengist undir langa aðgerð í Bandaríkjunum eftir skelfilegt fótbrot sitt á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Sport 20. febrúar 2026 19:03
Sofnaði í aftursætinu á leið á Ólympíuleikana og komst aldrei alla leið Þær eru margar sögurnar í kringum íþróttafólkið á Vetrarólympíuleikunum og mörg þeirra vinna stóra sigra þótt þau fái ekki verðlaun um hálsinn. Sport 20. febrúar 2026 06:33
Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Alysa Liu varð í kvöld Ólympíumeistari í listdansi á skautum og batt þar með enda á tuttugu ára verðlaunaþurrð bandarískra kvenna í þessari grein. Hún varð líka fyrsta bandaríska konan til að vinna Ólympíugull á listskautum í 24 ár. Sport 19. febrúar 2026 22:31
Ísraelskir Ólympíuforkólfar vilja banna sjónvarpslýsanda Ísraelska Ólympíunefndin hefur lagt fram formlega kvörtun til svissneskrar sjónvarpsstöðvar og krefst þess að metið verði hvort lýsanda skuli meinað að starfa frekar á Ólympíuleikum. Sport 19. febrúar 2026 19:07
Noregur jafnaði gullverðlaunametið sitt á Ólympíuleikum Gullverðlaun í norrænni tvíkeppni sem Andreas Skoglund og Jens Lurås Oftebro unnu sá til þess að Noregur jafnaði eigið gullverðlaunamet á Ólympíuleikunum í dag. Sport 19. febrúar 2026 17:30
Rann á blásara utangátta starfsmanns Mildi þótti að ekki færi verr þegar hinn bandaríski Ben Loomis renndi sér af stað í skíðastökki, á Vetrarólympíuleikunum, og á snjóblásara starfsmanns sem ekki fylgdist nægilega vel með. Sport 19. febrúar 2026 14:17
„Day of fun“ fól ekki í sér áfengi hjá Jóni Erik Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson vakti mikla athygli þegar hann birti „Day of fun“ myndband með vinum sínum degi áður en hann keppti á Vetrarólympíuleikunum. Jón Erik áréttar að hann drekkur ekki áfengi. Sport 19. febrúar 2026 13:45
Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Ein þekktasta íþróttafréttakona Ástralíu hefur beðist afsökunar á því að hafa verið drukkin í beinni útsendingu frá Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Forsætisráðherra Ástralíu sýndi henni fullan skilning. Sport 19. febrúar 2026 11:31