Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

„Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venju­legt fólk“

Leiðir Kristínar Svafarsdóttur og Þorbjargar Valgeirsdóttur lágu fyrst saman fyrir um áratug þegar Þorbjörg starfaði á Landspítalanum og Kristín var þar, afar veik af fíknisjúkdómi. Í dag er Kristín edrú, að læra til sjúkraliða og vill miðla reynslu sinni í þeirri von að aðrir sem veikir eru sjái að þau eigi möguleika til betra lífs.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fundu mikið magn vímu­efna og peninga við leit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann mikið magn vímuefna og fjármuna í bifreið manns sem stöðvaður var við hefðbundið umferðareftirlit í umdæmi stöðvar 1, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi.

Innlent
Fréttamynd

Það þarf heilt þorp

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma í gær að endurvekja íslenska forvarnarmódelið í Reykjavík. Með ákvörðuninni er mikilvægt skref stigið í þá átt að nýta gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni markvisst í grunnskólum borgarinnar, greina stöðuna í nærumhverfi barna og ungmenna og byggja upp sameiginlegar aðgerðir til lengri tíma.

Skoðun
Fréttamynd

Stað­ráðnar í að koma sterkari til baka

„Þetta er ein af stærri áskorunum sem við höfum þurft að takast á við, ekki bara í þessum rekstri heldur líka bara almennt,“ segir Steinunn Hrólfsdóttir, annar eigenda tískuverslunarinnar Andrá Reykjavík. Eldur kom upp í kjallara í rými verslunarinnar í byrjun september og átti eftir að hafa gríðarleg áhrif.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Karl Th. Birgis­son borinn til grafar

Ritstjórinn Karl Th. Birgisson var borinn til grafar í dag, þriðjudaginn 29. september, en útförin var gerð frá Hallgrímskirkju og var það séra Davíð Þór Jónsson sem söng yfir hinum látna.

Lífið
Fréttamynd

Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi þess í morgun verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir sem á að rísa í Laugardal. Áætluð verlok eru 2030 en Ísland á að vera meðal þjóða sem halda HM í handbolta árið 2031.

Sport
Fréttamynd

Nýtt tíma­bil í skipu­lags­málum Reykja­víkur

Skipulagsmál hafa lengi verið eitt heitasta umræðuefnið á kaffistofum borgarbúa. Það er ekkert skrítið. Fáar ákvarðanir borgarinnar hafa jafn bein áhrif á daglegt líf okkar. Skipulagið ræður miklu um það hvort við komumst greiðlega til vinnu, finnum bílastæði við heimilið, njótum birtu í íbúðinni og hvort uppbygging íbúða haldi í við þarfir borgarbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Vinnu­vél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú

Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang.

Innlent
Fréttamynd

Ný göngu­brú vígð

Ný göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal í morgun. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Krakkar úr Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni. 

Innlent
Fréttamynd

Grateful Dead á Sæ­brautinni

Það var heiðskírt í Reykjavík á föstudagskvöldið, sem telst orðið nægilegt tilefni til að menn taki eftir veðrinu, og um tíuleytið hafði Sæbrautin breyst í útileikhús. Ferðamenn stóðu þar með þrífætur og síma á lofti, sumir í nýjum dúnúlpum sem líklega höfðu verið keyptar fyrr um daginn með þeirri hugarró sem fylgir því að sjá ekki kortareikninginn fyrr en heim er komið.

Skoðun
Fréttamynd

Til­kynnt um tvær líkams­á­rásir

Einn var í nótt eða gærkvöldi handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 105. Greint er frá því í dagbók lögreglu í dag. Þar kemur fram að maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa. Einnig var óskað aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar í hverfi 101. Í dagbók kemur fram að gerandi hafi flúið af vettvangi áður en lögregla kom.

Innlent
Fréttamynd

Góð­kunningi lög­reglunnar grunaður um líkams­á­rás

Lögreglu á stöð eitt barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun eða í dag. Þegar laganna verði bar að garði var gerandinn farinn af vettvangi en þó telur lögreglan sig vita um hvern ræðir og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlega áverka var að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Beitti úðavopni á veg­far­endur

Í nótt kom til átaka milli fólks eftir að einn beitti úðavopni á vegfarendur í miðborg Reykjavíkur. Sá var handtekinn vegna málsins og reyndist hann eftirlýstur af lögreglu. 

Innlent
Fréttamynd

Skemmti­stað lokað í mið­borginni vegna fjölda ung­menna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að afskipti voru höfð af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum, segir í dagbók lögreglu. Að auki voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa, hvor vegna sinnar líkamsárásarinnar, annar í miðborg Reykjavíkur og hinn í hverfi 221 í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Þyrlan lenti við Hörpu

Landhelgisgæslan hélt upp á aldarafmæli sitt í dag með pomp og prakt. Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins.

Innlent
Fréttamynd

Daði spreytir sig í Gettu betur

Fjármálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og útvarpsstjóri etja kappi við sigurlið MH í Gettu betur í dag. Viðureignin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni sextíu ára afmælis Menntaskólans við Hamrahlíð.

Innlent