Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir að ákvörðun sem kom til framkvæmda 2018 um ókeypis námsgögn í skólum hafi verið í alla staði jákvætt mál og þýtt aukinn jöfnuð og jafnræði meðal barna. Það komi á óvart að einhver vilji tala þetta niður, „jafnvel frá Sjálftæðisflokknum.“ Innlent 10. ágúst 2024 09:41
Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Lögreglan var kölluð til vegna hópslagsmála í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Eftir slagsmálin var einn einstaklingur líklega nefbrotinn og þá hafði annar verið sleginn í rot. Þrír voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna málsins. Innlent 10. ágúst 2024 07:26
Mælir með að muna eftir sólarvörn og gleðinni í göngunni Yfir fjörutíu atriði taka þátt í gleðigöngunni í miðborg Reykjavíkur á morgun. Götur umhverfis gönguleiðina verða lokaðar fyrir bílaumferð frá átta í fyrramálið til sex annað kvöld. Göngustýra hvetur alla sem vilja til að gera sér ferð í bæinn og taka þátt í gleðinni. Lífið 9. ágúst 2024 14:33
Umferðartafir vegna áreksturs Smávægilegur árekstur varð á Kringlumýrarbraut til norðurs, með þeim afleiðingum að tafir hafa orðið á umferð þar og á Hafnarfjarðarvegi. Innlent 9. ágúst 2024 13:23
Hinsegin Reykjavík – Stolt er styrkur Góð borg er frjálslynd og jafnréttissinnuð borg þar sem íbúar eru jafnir, án tillits til kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, kyneinkenna eða annars. Það er góð tilfinning að koma að stjórn borgar með borgarstjórn sem leggur áherslu á mannréttindi og velsæld allra íbúa sinna. Skoðun 9. ágúst 2024 08:01
Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Borgarstjóri segist finna fyrir miklum skilningi foreldra barna á leikskólanum Brákarborg. Hann gefur lítið fyrir orð borgarfulltrúa um gettóumhverfi í Ármúla þar sem börnin fá inni til bráðabirgða. Borgin hafi til skoðunar að leita réttar síns. Innlent 8. ágúst 2024 20:49
Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Það er ekki boðlegt að börn séu í leikskóla í „gettó-umhverfi“ að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Verkefnisstjóri segir aftur á móti að gengið hafi vonum framar að umbreyta skrifstofuhúsnæði í leikskóla áður en skólastarf hefst í næstu viku. Innlent 8. ágúst 2024 19:10
Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum Tíu ára fangelsisdómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir hlaut í síðasta mánuði í Bátavogsmálinu svokallaða hefur verið birtur á vefsvæði dómstólana. Í honum segir að Dagbjört hafi frá því að málið kom upp leynt veigamiklum upplýsingum og reynt að koma í veg fyrir að hægt væri að varpa ljósi á málið. Innlent 8. ágúst 2024 14:46
Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu sinnti í hádeginu útkalli vegna elds á Hallgerðargötu í Reykjavík. Tilkynning barst um eld í íbúðarhúsnæði klukkan 12. Slökvistarf gekk hratt og örugglega fyrir sig. Ekki þurfti að flytja neinn á slysadeild. Innlent 8. ágúst 2024 12:19
Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir orð Einars Þorsteinassonar borgarstjóra um að ráðist verði í „alvöru úttekt“ á máli leikskólans Brákarborgar. Innlent 7. ágúst 2024 23:06
„Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist hafa óskað eftir því að óháð úttekt verði gerð á málefnum leikskólans Brákarborgar og komist að því hvar ábyrgðin liggi. Innlent 7. ágúst 2024 17:11
Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Sérsveitin var kölluð til í lögregluaðgerð í Vogahverfi í Reykjavík í dag. Innlent 7. ágúst 2024 16:56
Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Rauði kross Íslands opnaði í dag nýtt neyslurými í Borgartúni undir nafninu Ylja. Notendur vímuefna geta leitað þangað og sprautað sig eða reykt vímuefni undir eftirliti og aðstoð heilbrigðisstarfsfólks. Innlent 7. ágúst 2024 15:06
Staðbundið neyslurými: Stórt skref í skaðaminnkun Í nokkur ár hefur Rauði Krossinn rekið færanlegt skaðaminnkandi úrræði í bíl, Frú Ragnheiði, sem þjónustað hefur fjölda fólks sem glímt hefur við fíknisjúkdóma. Markmið Frú Ragnheiðar, sem ekur um götur borgarinnar og sækir fólk heim, er að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem kann að hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða. Skoðun 7. ágúst 2024 11:30
Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Snæbjörn Brynjarsson safnstjóri og leikhúsgagnrýnandi hefur verið ráðinn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói. Hann tekur við starfinu af Söru Martí Guðmundsdóttur sem hefur gegnt hlutverkinu undanfarin tvö ár. Menning 7. ágúst 2024 11:24
Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur á hendur karlmanni á fimmtugsaldri sem er grunaður um tilraun til manndráps í janúar á þessu ári. Hann hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann af tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík. Innlent 6. ágúst 2024 17:26
Varanlegur regnbogafáni við Barónstíg Hinsegin dagar voru formlega settir í hádeginu þegar hinsegin fáninn var málaður fyrir framan Hinsegin félagsmiðstöð S’78 og Tjarnarinnar við Barónsstíg. Borgarstjóri tók lagði hönd á plóg. Lífið 6. ágúst 2024 15:13
Skemmtistaðurinn 22 opnaður á nýjan leik Eftir átján ára hlé hefur skemmtistaðurinn 22 verið opnaður á nýjan leik á horni Laugavegs og Klapparstígs. Staðurinn verður samrekinn Kiki queer club, sem er á efri hæð hússins. Margrét Erla skemmtanastjóri segir hinseginsamfélagið hafa vantað rólegan bar, til viðbótar við dansklúbbinn Kiki. Viðskipti innlent 6. ágúst 2024 10:41
Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Teitur Atlason, íbúi í vesturbæ Reykjavíkur, kom að sorptunnum við nýlegar stúdentaíbúðir þar sem Hótel Saga var áður í vægast sagt illa hirtu ásigkomulagi. Innlent 4. ágúst 2024 15:18
Kajakræðarar í hættu hífðir upp Þyrla Landhelgisgæslunnar sinnti fyrir skömmu útkalli við Skildinganes þar sem tveir kajakræðarar ráku frá landi. Heppileg staðsetning þyrlunnar skipti sköpum. Innlent 3. ágúst 2024 19:18
Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Maður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa valdið tjóni á þremur bifreiðum fyrir utan slysadeild. Maðurinn hafði fram að því gengið berserskgang að sögn lögreglu. Innlent 3. ágúst 2024 17:57
Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Maður var handtekinn vegna elds í ruslagámi í miðborg Reykjavíkur sem lögregla segir að hafi mátt litlu muna að bærist í nærliggjandi hús. Slökkviliði tókst að slökkva fljótt í gámnum. Innlent 3. ágúst 2024 07:22
„Við munum ekki eldast saman“ „Fyrsta tilfinningin var bara: „Nei, þetta getur ekki verið,“ segir Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamaður. Hann og unnusta hans, Sunna Kristín Hilmarsdóttir voru rétt byrjuð að búa sér til líf saman og stefndu á barneignir þegar Sunna Kristín var greind með ólæknandi krabbamein. Lífið 3. ágúst 2024 07:00
Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmælagöngu klukkan 14 á morgun, þar sem gengið verður með barnavagna frá Hallgrímskirkju að Austurvelli. Í kerrunum verða myndir af börnum sem hafa verið drepin á Gasa, og spiluð verða hljóð frá sprengjuregni á Gasa. Innlent 2. ágúst 2024 22:40
Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður á fertugsaldri, sem er einn sakborninga í stórfelldu fíkniefnamáli, sem kennt hefur verið við potta og skemmtiferðaskip, er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Honum er gefið að sök að hafa tekið annan mann kyrkingartaki, eins og segir í ákæru, og þrengt að öndunarvegi hans í að minnsta kosti sjö mínútur. Innlent 2. ágúst 2024 11:49
Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til þegar tilkynnt var um slagsmál tveggja hópa í Mjódd í Breiðholti í gærkvöldi. Um var að ræða hópa unglinga, sem fóru sína leið eftir að lögregla hafði rætt við þá. Engin kæra hefur verið lögð fram vegna slagsmálanna. Innlent 2. ágúst 2024 10:27
Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Talsverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, ef marka má dagbókarfærslu lögreglu. Þar segir meðal annars frá manni sem gistir fangaklefa á Hverfisgötu vegna gruns um að hafa brotið rúðu með því að kasta steini í hana og fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Innlent 2. ágúst 2024 06:42
Ók á mann og stakk af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þremur útköllum í gærkvöldi þar sem slys höfðu orðið á fólki í umferðinni. Þar á meðal var tilkynning um að ekið hefði verið á mann á hlaupahjóli og ekið á brott. Innlent 1. ágúst 2024 06:30
Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Skólastjóri Rimaskóla segist í áfalli eftir að skólinn var lagður í rúst í nótt. Hún hvetur foreldra til að velta fyrir sér hvort barn þeirra sé á góðum stað. Sumarið sé viðkvæmur tími og mikil lausung á börnum. Innlent 31. júlí 2024 11:18
Rúður brotnar í Rimaskóla Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um brothljóð frá Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að fjöldi rúða í skólanum hafði verið brotinn og einhverju tjónið valdið inni í skólanum. Innlent 31. júlí 2024 06:42