Guðlaugur segist ekki hafa hótað Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson orkumálaráðherra segir allsendis ósatt að hann hafi verið reiðubúinn að falla frá áformum sínum um formannsframboð gegn því að Bjarni myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 31. október 2022 17:19
Leynd yfir sætaskiptingu á landsfundi í Laugardalshöll Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um helgina í Laugardalshöll. Mikil spenna er meðal meðlima flokksins enda fer formannskjör fram á sunnudeginum. Þá kemur í ljós hvort Bjarni Benediktsson fái að halda áfram að leiða flokkinn eða hvort Guðlaugur Þór Þórðarson steypi formanni til þrettán ára af stóli. Innlent 31. október 2022 15:45
Guðlaugur vildi verða fjármálaráðherra gegn því að falla frá framboði Guðlaugur Þór Þórðarson, orku- og loftlagsráðherra, var reiðubúinn að falla frá áformum sínum um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn því að Bjarni Benediktsson, núverandi formaður flokksins, myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra. Innherji 31. október 2022 15:02
Gulli plús Kata talið ganga illa upp Framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins teflir ríkisstjórnarsamstarfinu í tvísýnu að mati stjórnarþingmanna. Þeir óttast margir að líftími ríkisstjórnarinnar verði talinn í vikum nái Guðlaugur Þór kjöri. Innlent 31. október 2022 13:36
Gott fjarskiptasamband er forsenda búsetuöryggis Við fögnum þeim skrefum sem stigin eru í að bæta farsímasamband í sveitum landsins. Aukinn kraft þarf hins vegar að setja í þá sjálfsögðu innviðauppbyggingu. Það er órofa hluti búsetuöryggis að fá notið fjarskipta en einnig að taka þátt í nútíma samfélagi. Skoðun 31. október 2022 13:31
Íslandsbankaskýrslunni enn og aftur frestað Afhendingu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka hefur verið frestað á ný. Til stóð að afhenda skýrsluna fyrir helgi en ekkert verður úr því. Innlent 31. október 2022 12:40
Styðjum konur í Íran Í síðustu viku var efnt til sérstakrar umræðu á Alþingi um stöðuna í Íran. Þar voru áhyggjur og hugmyndir viðraðar um stöðu kvenna í Íran, og tók undirrituð þátt í þeim umræðum. Fregnir af hrottalegum aðstæðum í Íran berast um allan heim. Skoðun 31. október 2022 11:31
„Það angrar mig að verið sé að taka stöðuna á valdafólki í flokknum“ „Það angrar mig að verið sé að taka stöðuna á valdafólki í flokknum,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Ég er búin að fara á landsfund síðan ég var unglingur. Ég var að fara þangað til að gefa kjörnum fulltrúum línuna, ekki fá línur frá þeim.“ Innlent 31. október 2022 10:59
Framboð Guðlaugs krókur á móti bragði Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, telur að hægt sé að tengja framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar við orðróm um að ráðherrastóll hans væri í hættu. Hann segir að erfitt sé að spá fyrir um úrslit kosninganna. Innlent 31. október 2022 10:42
Munaði einungis tveimur atkvæðum Kristrún Frostadóttir hlaut 94,59 prósent atkvæða er hún var kjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um helgina. Jón Grétar Þórsson hlaut 139 atkvæði í kosningu til gjaldkera flokksins en Stein Olav Romslo 137 atkvæði. Innlent 31. október 2022 09:11
Setur Viðreisn í vanda Með breyttri nálgun Samfylkingarinnar gagnvart Evrópusambandinu, þar sem ekki verður lengur litið á inngöngu í sambandið sem forgangsmál, er ljóst að möguleikar flokksins á þátttöku í ríkisstjórnarsamstarfi hafa aukizt verulega hvort sem horft er til hægri eða vinstri. Hins vegar er ljóst að staða Viðreisnar, hins flokksins í íslenzkum stjórnmálum sem hlynntur er inngöngu í sambandið, er á sama tíma orðin þrengri en áður. Skoðun 31. október 2022 09:00
Fólkið í flokknum Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst nk. föstudag í Laugardalshöll. Ég býð mig fram í embætti ritara flokksins. Í því skyni að fylgja framboðinu eftir hef ég á undanförnum vikum ferðast víða um landið. Á þessum ferðalögum hef ég notið þeirra forréttinda að kynnast öflugu fólki sem með óeigingjörnu framlagi hefur stuðlað að vexti og viðgangi sjálfstæðisstefnunnar. Skoðun 31. október 2022 07:01
Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokks styðja Bjarna Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins styðja Bjarna Benediktsson í formannsslagnum sem framundan er í aðdraganda landsfundar flokksins um næstu helgi. Innlent 31. október 2022 06:36
Fylgið muni ekki rjúka upp þótt skipt yrði um formann Stjórnmálafræðingur telur að mannabreytingar í forystu Sjálfstæðisflokksins myndu ekki duga til að færa fylgi flokksins nær því sem það var fyrir rúmlega áratug síðan. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur tilkynnt um framboð til formanns flokksins, gegn Bjarna Benediktssyni, formanni og fjármálaráðherra. Innlent 30. október 2022 23:00
„Plan Bjarni er alltaf að vinna“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir tímasetningu framboðs Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra, til formanns Sjálfstæðisflokksins koma sér nokkuð á óvart. Hann segist þó hvorki kvíða fyrir né kvarta undan því að fá mótframboð. Innlent 30. október 2022 19:30
Samfylkingin skuldi þjóðinni að gefa Sjálfstæðisflokknum frí Formaður þingflokks Samfylkingarinnar útilokar ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn á komandi árum. Gefa þurfi Sjálfstæðisflokknum frí. Samfylkingin sé hins vegar fjöldahreyfing og þetta aðeins hennar skoðun. Innlent 30. október 2022 18:07
„Við erum ólíkir menn“ Guðlaugur Þór Þórðarson ákvað í gærmorgun að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann tilkynnti mótherja sínum í formannsslagnum, Bjarna Benediktssyni, ákvörðun sína í morgun en gefur ekkert upp um það hvað fór þeim á milli áður en hann tilkynnti ákvörðun sína opinberlega. Innlent 30. október 2022 16:27
Stefnuræða Kristrúnar Frostadóttur á landsfundi Flokkur undir nýrri forystu: Nú hefst tími breytinga. Landsfundur — kæra jafnaðarfólk. Allt hefur sinn tíma. Öllu er afmörkuð stund. Og nú gengur í hönd tími breytinga í Samfylkingunni. Skoðun 30. október 2022 15:31
Guðlaugur Þór tekur slaginn við Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. Ljóst er að slagurinn við Bjarna Benediktsson, sitjandi formann, verður harður á landsfundi flokksins næstu helgi. Innlent 30. október 2022 13:11
Guðlaugur Þór ávarpaði Sjálfstæðismenn Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ætlar að taka slaginn gegn Bjarna Benediktssyni. Innlent 30. október 2022 12:09
„Þá er mínum tíma í stjórnmálum bara lokið“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ef hann muni tapa væntanlegum formannaslag í Sjálfstæðisflokknum sé tíma hans í íslenskum stjórnmálum lokið. Bjarni segist hafa rætt við Guðlaug Þór Þórðarson, orkumálaráðherra, um það hvort sá síðarnefndi ætli að bjóða sig fram til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins. Innlent 30. október 2022 11:30
Velti vöngum yfir því af hverju stjórnarflokkarnir væru í ríkisstjórn Ríkisbáknið vex og vex og ekki bara regluverkið heldur líka umfang ríkissjóðs. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í ræðu sinni á flokksráðsfundi sem haldinn var á Egilsstöðum í gær. Innlent 30. október 2022 11:13
Guðlaugur boðar til fundar í Valhöll Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur boðað til opins fundar í Valhöll í dag. Þar er hann sagður ætla að tilkynna hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna Benediktssyni. Innlent 30. október 2022 09:21
Útilokar ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og setur velferðarkerfið í fyrsta sæti Algjör endurnýjun varð á forystu Samfylkingarinnar á Landsfundi flokksins um helgina. Nýr formaður boðar endurreisn velferðarkerfisins og breytingar í flokknum. Hún svarar því ekki beint hvort hún útiloki ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum, en fór þó hörðum orðum um hann í stefnuræðu. Innlent 29. október 2022 20:27
Tilkynnir á morgun hvort hann taki slaginn Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra mun tilkynna á morgun hvort hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 29. október 2022 18:56
„Við fórum ekki í pólitík til að vera í stjórnarandstöðu“ Í fyrstu stefnuræðu sinni sem nýr formaður Samfylkingarinnar segir Kristrún Frostadóttir að nú sé genginn í hönd tími breytinga í Samfylkingunni. Breytingar innan flokksins hefjist strax í dag með nýrri forystu flokksins. Innlent 29. október 2022 16:22
Fyrsta stefnuræða Kristrúnar Kristrún Frostadóttir tók við embætti formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í gær. Í dag flytur hún sína fyrstu stefnuræðu sem formaður. Hlýða má á ræðuna í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 29. október 2022 15:46
Bein útsending: Ræða Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mun flytja ræðu sína á flokksráðsfundi Miðflokksins klukkan 13:10. Hægt verður að fylgjast með ræðunni í beinni útsendingu í spilaranum að neðan. Innlent 29. október 2022 12:41
„Það er sóknarkraftur í jafnaðarmönnum, meðan höfuðandstæðingurinn logar stafna á milli“ Nýr formaður Samfylkingarinnar ætlar að endurreisa velferðakerfið. Varaformaðurinn segir á dagskrá að sækja um aðild að Evrópusambandinu, kanna þurfi þjóðarvilja. Algjör endurnýjun er á forystu Samfylkingarinnar. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram á Grand hótel í dag. Innlent 29. október 2022 12:13
Guðmundur Ari felldi Kjartan Guðmundur Ari Sigurjónsson er nýr formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. Hann felldi sitjandi formann, Kjartan Valgarðsson, með ríflega sjötíu prósent greiddra atkvæða. Innlent 29. október 2022 12:02