Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa. Innlent 5.6.2026 12:01
Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk. Innlent 5.6.2026 08:33
Hvað veistu um... Snæfellsnes? Snæfellsnes er langt og fallegt nes á Vesturlandi með Faxaflóa sunnanmegin og Breiðafjarðar fyrir norðan. Meðfram nesinu eru svo fjallgarður og þar yst má finna Snæfellsjökul og þjóðgarðinn þar um kring. Lífið 3.6.2026 20:02
Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Erlendur ferðamaður sem féll tæpa tuttugu metra við foss nærri Selvallavatni á Snæfellsnesi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Þrátt fyrir hátt fall var maðurinn með meðvitund. Innlent 13. febrúar 2026 14:51
Sturla Böðvarsson er látinn Sturla Böðvarsson, fyrrverandi bæjarstjóri, ráðherra og forseti Alþingis, er látinn, áttatíu ára að aldri. Sturla lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 10. janúar. Innlent 12. janúar 2026 06:01
Sauðburður er hafinn í Helgafellssveit „Lambið kom í heiminn í morgun okkur öllum á óvörum en svona er lífið í sveitinni, alltaf eitthvað spennandi að gerast. Ærin heitir Svanhildur, lambið heitir Tígull og faðirinn heitir Máni. Svanhildur bar snemma í morgun,” segir Guðmundur Karl Magnússon á bænum Gríshóli í Helgafellsveit á Snæfellsnesi aðspurður um lambið, sem fæddist þar snemma í morgun, 4. janúar, sem er mjög óvenjulegur tími fyrir sauðburð, sem er jú alltaf á vorin. Innlent 4. janúar 2026 19:04
Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Svo mikil aðsókn og troðningur var á sýningu í Stykkishólmi á laugardaginn að listakonan ætlar að endurskoða fyrirkomulagið fyrir næstu sýningu. Eftirspurn var mikil og dæmi um að hlutir hafi brotnað í troðningnum. Listakonan segir líklega tilefni til að hækka verðið á verkum sínum. Lífið 27. október 2025 15:57
Farþegi á bak og burt þegar björgunaraðilar mættu Alls voru tíu fluttir á sjúkrahús eftir rútuslys á Snæfellsnesi í gær. 44 voru um borð í rútunni sem valt en enginn slasaðist alvarlega. Einn farþega var farinn af vettvangi þegar viðbragðsaðilar mættu á staðinn. Betur fór en á horfðist en töluverður bratti er niður af veginum þar sem rútan fór útaf. Lögreglan hvetur vegfarendur til að keyra sérstaklega varlega um vegi Snæfellsness, sem séu víða slæmir. Innlent 7. október 2025 12:22
Enginn slasaðist alvarlega þegar rútu hvolfdi á Snæfellsnesi Tveir farþegar í rútu sem valt í Seljafirði á norðanverðu Snæfellsnesi á sjötta tímanum í dag voru fluttir með þyrlu á Landspítalann í Reykjavík. Átta voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Enginn er talinn alvarlega slasaður. Innlent 6. október 2025 17:44
Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO Snæfellsnes varð í dag fyrsta svæðið á Íslandi til að vera skilgreint sem vistvangur af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Björg Ágústsdóttir, formaður stjórnar Svæðisgarðsins og bæjarstjóri í Grundarfirði, segir þetta afrakstur áralangs starfs sem Snæfellingar hafa verið í, í umhverfis- og samfélagsmálum. Innlent 27. september 2025 13:48
Lögregla kölluð til eftir að bremsuvírar voru klipptir á reiðhjólum barna Óprúttnir aðilar eru sagðir hafa klippt bremsuvíra á reiðhjólum barna í Stykkishólmi. Lögregla hyggst auka eftirlit við grunnskóla bæjarins vegna þessa og vera þar sýnilegri. Þá hefur verið bætt í öryggismyndavélakerfið á skólalóðinni. Innlent 5. september 2025 21:16
Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur svarar starfsbróður sínum fullum hálsi og sendir „dylgjur“ til föðurhúsanna um að spá sín um eldgos á Snæfellsnesi innan þriggja ára sé órökstudd. Hann telur að gos geti hafist á Snæfellsnesi með skömmum fyrirvara. Innlent 5. ágúst 2025 11:58
Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur er gagnrýndur af öðrum vísindamanni, Haraldi Sigurðssyni eldfjallafræðingi, fyrir að spá því að ekki sé langt í eldgos í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi. Innlent 4. ágúst 2025 07:27
Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Frá og með morgundeginum hefst gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi. Parka mun sjá um rekstur, greiðslulausnir og innheimtu gjalda. Innlent 29. júlí 2025 12:30
Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Lögreglan á Vesturlandi er með slys sem varð í rennibrautinni í Stykkishólmi um miðja síðustu viku til rannsóknar. Börn voru þar að leik og var ungur drengur fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Innlent 11. júlí 2025 14:04
Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þriggja daga þungarokkshátíðin Sátan fer fram Stykkishólmi um helgina en þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Fremstu þungarokkshljómsveitir landsins troða upp á hátíðinni ásamt vel völdum erlendum hljómsveitum. Lífið 7. júní 2025 14:06
Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin öðru sinni í Stykkishólmi um helgina og er stemningin gríðarlega góð að sögn skipuleggjenda. Herlegheitin hefjast á fimmtudaginn og er undirbúningur á lokametrunum. Lífið 4. júní 2025 10:02
Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Ferjuleiðir ehf. taka við rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs frá og með deginum í dag. af Sæferðum í Stykkishólmi. Fyrsta ferð Baldurs undir nýjum rekstraraðila verður farin klukkan ellefu á morgun, mánudaginn 2. júní. Viðskipti innlent 1. júní 2025 13:16
Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Tugir jarðskjálfta hafa mælst síðustu klukkustundir í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi, á milli Grjótárvatns og Langavatns á Vesturlandi. Innlent 12. apríl 2025 19:35
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11. mars 2025 23:17
Eldstöðvar sem ógnað gætu Vestlendingum minna á sig Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur í Ljósufjallakerfinu til þessa, upp á 3,2 stig, varð þar í gærkvöldi og fylgdi honum skjálftahrina í nótt og fram eftir morgni. Eldstöðvakerfið teygir sig í gegnum byggðir á Vesturlandi. Innlent 19. desember 2024 22:00
Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Í fjögur ár hefur Gulli Byggir fylgst með lygilegum framkvæmdum á Snæfellsnesi. Lífið 20. nóvember 2024 14:03
Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi í Stykkishólmi í gær. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Innlent 12. október 2024 14:24
Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Lögreglan á Vesturlandi hefur alvarlegt slys sem varð í gær til rannsóknar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang í gær en afturkölluð áður en hún komst á leiðarenda. Innlent 12. október 2024 10:02