„Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin. Innlent 18. maí 2026 19:51
Stuð í kosningavökum flokkanna Stjórnmálaflokkar héldu kosningavökur um land allt á laugardagskvöldið til að fagna niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga. Fréttastofa Sýnar kíkti í fjölmargar kosningavökur á höfuðborgarsvæðinu og var gríðarleg stemming víða. Lífið 18. maí 2026 16:46
„Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Reykjavíkurborg, segir í pistli að örðugt gæti reynst fyrir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna, að ganga til meirihlutasamstarfs við Miðflokkinn í ljósi þess hvernig þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir létu í aðdraganda kosninga. Innlent 18. maí 2026 16:10
„Ætlið þið í pottinn?“ Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, spurði glettin hvort Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, ætluðu saman í pottinn þegar verið var að ræða um opnunartíma sundlauga í Silfrinu í gær. Grínið vakti hugrenningatengsl við Vítalíu-málið sem skók þjóðina fyrir fjórum árum. Lífið 18. maí 2026 13:27
Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík. Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka. Innlent 18. maí 2026 13:01
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18. maí 2026 12:02
Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. Innlent 18. maí 2026 12:02
Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkur hafa hafið óformlegar meirihlutaviðræður í Skagafirði. Verði af því samstarfi lýkur um tuttugu ára samfelldri sögu Framsóknarflokksins í meirihluta í sveitarfélaginu. Innlent 18. maí 2026 10:01
Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Kjörstjórn Reykjavíkur las upp rangar lokatölur um talin atkvæði á laugardag. Í tilkynningu frá kjörstjórn kemur fram að við yfirferð breyttra atkvæðaseðla hafi komið í ljós misræmi á milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða sem helgaðist af mistökum í innslætti í talningarskjal. Innlent 18. maí 2026 08:22
Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Mánudagurinn eftir kosningar. Búmm! Niðurstöður liggja fyrir og samfélagið í heild sinni getur andað aðeins léttar. Á meðan fjölmiðlar draga fram helstu eftirlegukindur helgarinnar og sérfræðingar halda áfram að rýna í mögulegar útkomur viðræðna. Atvinnulíf 18. maí 2026 07:00
Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur var strikað út 1.161 sinni á seðlum greiddum Samfylkingunni í Reykjavík sem nemur 9,12% atkvæða til Samfylkingar. Það hafði ekki áhrif á uppröðun listans. Innlent 17. maí 2026 21:09
„Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Hjónin Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Davíð Birkir Tryggvason fengu bæði sæti í sveitarstjórn Skagastrandar, Eydís sem oddviti Framsóknar og Davíð í öðru sæti fyrir Samfylkinguna. Eydís segir þau hjón aldrei hafa verið sammála um stjórnmál en búi þar af leiðandi að góðri æfingu af því að rökræða þau og miðla málum. Innlent 17. maí 2026 19:42
Áttu góðan og langan fund í dag Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fundaði í dag með sínu fólki. Hún segir fundinn hafa verið bæði langan og góðan, þar hafi auðvitað verið fagnað en mögulegir meirihlutar einnig ræddir. Innlent 17. maí 2026 18:43
Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Meirihlutaviðræður eru hafnar á Akureyri í dag, daginn eftir sveitarstjórnarkosningar, þar sem L-listinn og Sjálfstæðisflokkurinn vilja skipta út Miðflokknum fyrir Framsókn til þess að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram. Innlent 17. maí 2026 17:55
Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Meirihlutasamstarf flokka hélt í 25 sveitarstjórnum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga en féll í þrettán. Það var helst Sjálfstæðisflokkurinn sem náði að halda meirihlutasamstarfinu. Innlent 17. maí 2026 17:13
Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir slæmt gengi flokksins í Reykjavík ekki þýða endalok hans. Flokkurinn missti báða fulltrúa sína. Innlent 17. maí 2026 16:32
Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur K-listi Dalvíkurbyggðar hlaut tæplega helming atkvæða í Dalvíkurbyggð og þar með þrjá kjörna fulltrúa. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og K-listans heldur. Innlent 17. maí 2026 15:57
Hreinn meirihluti Vegvísis G-listi Vegvísis hlaut tæplega helming atkvæða í Strandabyggð og fær því þrjá kjörna fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 15:26
Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Sextán nýir fulltrúar taka sæti í borgarstjórn Reykjavíkur. Konum fækkar víða en hlutfallið helst það sama annars staðar. Þær eru í nokkrum sveitarfélögum meirihluti fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 14:55
Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist á Facebook-síðu sinni hafa beðið Guðmund Árna Stefánsson, varaformann Samfylkingarinnar og oddvita flokksins í Hafnarfirði afsökunar á orðum sínum í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins þess efnis að hann hefði kannski mátt íhuga stöðu sína fyrr. Innlent 17. maí 2026 14:04
Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segja niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna áfellisdóm yfir ríkisstjórninni og vísbendingu um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer. Innlent 17. maí 2026 12:43
Samfélagið eftir kosningar Eftir kosningar hverfa skiltin, loforðin þagna, umræðan hægir á sér og lífið heldur áfram sinn vanagang. Börn mæta aftur í skólann á mánudagsmorgni, foreldrar fara í vinnuna og fólk heldur áfram að lifa inni í samfélaginu sem við höfum sameiginlega ákveðið að byggja. Kannski er það einmitt þess vegna sem kosningar skipta meira máli en bara út frá stjórnmálum. Þær snúast ekki eingöngu um framkvæmdir, fjármál eða hver situr við völd næstu árin. Þær snúast líka um það hvernig samfélag við viljum vera og hvernig manneskjur við viljum hjálpa til við að móta. Skoðun 17. maí 2026 12:35
„Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Borgarlínan gæti verið skipt öllu máli þegar næsti borgarstjórnarmeirihluti verður skrúfaður saman. Það segja þau Björg Magnúsdóttir hjá Viðreisn, Einar Þorsteinsson hjá Framsókn og Sanna Magdalena Mörtudóttur hjá Vinstrinu, sem mættu á Sprengisand og fóru yfir niðurstöður í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Innlent 17. maí 2026 11:24
Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta K-listinn á Bolungarvík, Máttur meyja og manna, tapaði manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og þar með meirihlutanum. O-listinn Betri Bolungarvík hlaut 57,6 prósent atkvæða en K-listinn 42,4 prósent. Innlent 17. maí 2026 10:57
Meirihlutaviðræður í vikunni Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hyggst funda með oddvitum hinna flokkanna í vikunni með meirihlutaviðræður í huga eftir að flokkurinn vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Oddviti Samfylkingarinnar er „drullusvekktur“ á meðan oddviti Miðflokksins hampar honum fyrir varnarsigur. Innlent 17. maí 2026 10:52
Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Staðan er óbreytt í Sveitarfélaginu Stykkishólmur eftir kosningar en H-listinn er enn með fjóra menn og Í-listinn þrjá, þrátt fyrir að H-listinn hafi bætt við sig 5,5 prósenta fylgi. Innlent 17. maí 2026 10:19
Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Egill Helgason sjónvarpsmaður segir ljóst, nú að loknum sveitarstjórnarkosningum, að hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar sé endanlega lokið. Innlent 17. maí 2026 09:44
Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta D-listinn í Húnabyggð bætti við sig manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og á nú fimm sveitarstjórnarmenn af níu. Hann ræður þannig meirihluta. Innlent 17. maí 2026 09:40
Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Hjónin Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Davíð Birkir Tryggvason komust bæði inn í sveitarstjórn Skagastrandar, en þau voru á sitthvorum framboðslistanum. Eydís leiddi Framsókn í sveitarfélaginu en Davíð var á lista Samfylkingarinnar og óháðra. Innlent 17. maí 2026 09:31
Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Oddviti Langanesbyggðar, Sigurður Þór Guðmundsson, var síðasti maður sem komst inn í sveitarstjórn í kosningunum í gær. Kosningarnar í Langanesbyggð voru óbundnar en þá eru engir framboðslistar lagðir fram heldur geta kjósendur kosið hvaða kjörgenga íbúa sem er. Innlent 17. maí 2026 09:23