Ragnar vann sér inn samning: „Hann er enn mjög hungraður“ „Ég ætlaði að sjá til þess að ég verðskuldaði nýjan samning svo ég er afar ánægður með að geta haldið áfram hérna,“ sagði Ragnar Sigurðsson sem verður leikmaður FC Kaupmannahafnar fram á næsta sumar hið minnsta. 31.7.2020 09:00
Íslandsvinur sér eftir grimmúðlegum þjálfunaraðferðum „Ég myndi aldrei orða það þannig að hann hafi niðurlægt mig sem iðkanda, aldrei,“ segir Sif Pálsdóttir, fyrrverandi afrekskona í fimleikum, um hollenska þjálfarann Gerrit Beltman. Beltman kveðst sjá eftir grimmúðlegum þjálfunaraðferðum á sínum ferli. 31.7.2020 08:30
Stuðningsmenn Newcastle í öngum sínum Stuðningsmenn Newcastle segjast vera gjörsamlega miður sín eftir að ljóst varð að ekkert yrði af kaupum Sádí-Araba á enska knattspyrnufélaginu. 31.7.2020 08:00
LeBron tryggði sigur í toppslagnum þegar NBA hófst að nýju Keppnistímabilið í NBA-deildinni í körfubolta verður klárað í Disney World í Flórída þar sem lokakafli deildakeppninnar hófst að nýju í nótt eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins. 31.7.2020 07:30
Valsmenn vildu spila í kvöld en Skagamenn ekki Leikið verður í Mjólkurbikar karla í fótbolta í kvöld þrátt fyrir ákvörðun um að hertar aðgerðir til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins taki gildi í hádeginu á morgun. Einn leikur mun standa út af borðinu. 30.7.2020 15:51
FRÍ frestar mótum og varar við frekari röskun Frjálsíþróttasamband Íslands hefur frestað mótum vegna tilmæla um að íþróttaviðburðum verði frestað til 10. ágúst hið minnsta. 30.7.2020 15:15
Telur knattspyrnulið áfram geta æft Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, telur að æfingar knattspyrnuliða geti farið fram með sama hætti og undanfarnar vikur þrátt fyrir hertar aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins. 30.7.2020 14:07
Algjör óvissa um Íslandsmótið í golfi - „Búið að gera miklar ráðstafanir“ „Auðvitað förum við bara eftir þeim tilmælum sem okkur eru veitt,“ segir Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands. Íslandsmótið í golfi átti að fara fram 6.-9. ágúst en nú ríkir algjör óvissa um mótið. 30.7.2020 12:10
Leikið í kvöld og KSÍ ræður ráðum sínum Knattspyrnusamband Íslands fékk engan fyrirvara um þau tilmæli sem íþróttahreyfingunni er nú gert að fara eftir, þess efnis að kappleikjum fullorðinna skuli frestað um viku, og starfsfólk sambandsins ræður nú ráðum sínum. 30.7.2020 11:39
Sjáðu þegar eyrnalokkar komu í veg fyrir víti Margrétar - Hefði skotið í rangt horn Margrét Árnadóttir fékk ekki að taka vítaspyrnu sem hún fékk fyrir Þór/KA gegn KR vegna þess að hún var með eyrnalokka. Hún var þó fegin eftir á. 29.7.2020 14:26