Hefur náð mögnuðum tökum á málinu á skömmum tíma „Ég hef lært íslensku í þrjú ár. Nú á dögum er ég að læra meira af því að ég er í vinnu í grunnskóla, þar sem ég hef verið að tala við krakkana allan tímann,“ segir hinn kínverski Yi Hu, sem rætt var við í Íslandi í dag í síðustu viku. 13.9.2022 09:01
„Gamaldags skattahækkun“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, gagnrýnir áform stjórnvalda um að hækka vörugjöld á bifreiðum. Hann segir að reikna megi að verð á rafbílum hækki um 600.000 krónur til milljónar á bifreið á næsta ári. 12.9.2022 22:30
Útgjaldaaukning mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála Útgjaldaaukning til velferðarmála er mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála að sögn fjármálaráðherra sem kynnti fjárlög ársins 2023 í dag. Ráðherra kom það að sögn á óvart hve góðar og langt umfram spár efnahagshorfurnar eru á þessari stundu. 12.9.2022 11:09
Efni úr ofskynjunarsveppum lofar góðu: „Allt öðruvísi en öll önnur lyf sem við höfum verið að nota við þunglyndi“ Nýjar rannsóknir á notkun virka efnisins í ofskynjunarsveppum í lækningarskyni við þunglyndi lofa mjög góðu að sögn læknis. Það er þó langt í land þar til hægt er að mæla með meðferðinni, enda sé psílósýbín allt öðruvísi en öll önnur lyf sem notuð hafi verið við þunglyndi til þessa. Þingmaður vill að Ísland verði leiðandi í rannsóknum á þessum efnum. 11.9.2022 19:27
Bjarni ekki stressaður fyrir skýrslunni um Íslandsbanka Fjármálaráðherra kveðst enn þeirrar skoðunar að íslenska ríkið eigi að selja þann 100 milljarða króna hlut sem það á eftir í Íslandsbanka. Hann segir að færð hafi verið ágæt rök fyrir því að rannsókn Ríkisendurskoðunar hafi tekið sinn tíma og vonast eftir uppbyggilegum ábendingum úr væntanlegri skýrslu. 11.9.2022 16:01
Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. 10.9.2022 23:19
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. 10.9.2022 21:28
Veiddi lax nokkur sumur á Íslandi Karl þriðji Bretakonungur lagði leið sína til Íslands nokkur sumur á áttunda og níunda áratugi síðustu aldar til þess að veiða hér lax. Konungurinn er mikill laxveiðimaður og í grunninn Íslandsvinur. 10.9.2022 14:58
Ráðherrar vísa hver á annan um franskarnar: Sigmar segir Bjarna þurfa að taka nefið upp úr stórfyrirtækjunum Veitingamaður segir yfirvöld hygla erlendum neytendum en skattpína þá íslensku, með því að leggja háan toll á franskar kartöflur. Það gæti munað miklu fyrir landsmenn ef verndartollur sem ekkert verndar lengur yrði afnuminn - en ráðherrar vísa hver á annan. 9.9.2022 21:30
Grípa til mjög sérstakrar aðgerðar vegna fækkunar í íþróttafélaginu Vogar á Vatnsleysuströnd voru heimsóttir í Íslandi í dag, þar sem menn hafa hleypt af stokk átaki sem hefur vakið nokkra athygli. Í „ástarmánuði“ Þróttar í Vogum eru íbúar hvattir til að leggja sitt af mörkum svo börnum fjölgi á ný í bæjarfélaginu. Allt um málið í innslaginu hér að ofan. 9.9.2022 08:01