HM 2018 í Rússlandi

Klopp hissa á samskiptaleysinu
Nokkra athygli vakti þegar Chris Coleman valdi hinn 17 ára gamla Ben Woodburn, leikmann Liverpool, í landsliðshóp Wales fyrir leikinn gegn Tékklandi í undankeppni HM á föstudaginn.

Strákarnir mættir til Parma og æfa á sögufrægum velli borgarinnar
Íslenska landsliðið undirbýr sig nú fyrir mikilvægan leik gegn Kósóvó í undankeppni HM 2018.

Lykilleikmenn eru lítið að spila
Íslenska landsliðið undirbýr sig nú fyrir leik gegn landsliði Kósóvó sem verður leikinn í Shkoder í Albaníu á föstudagskvöld. Leikurinn er afar mikilvægur – hann er hluti af undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi á næsta ári. Ísland er í þriðja sæti með sjö stig en Kósóvó neðst með eitt stig.

Landshópur Kósovó: Enginn Pepa en þrír nýir framherjar
Avni Pepa, fyrirliði ÍBV, var ekki valinn í landsliðshóp Kósovó fyrir leikinn gegn Íslandi í undankeppni HM 2018 á föstudaginn.

Hans mál hvað hann gerir áður en kemur í landsliðsverkefni
Á blaðamannafundi landsliðsins í gær kom fram að framherjinn Viðar Örn Kjartansson hefði komið ölvaður til móts við landsliðið í undirbúningi leiksins gegn Króatíu síðasta nóvember. Hann kom degi á undan landsliðinu til Ítalíu í æfingabúðirnar.

Heimir: Við lifum ekki í fullkomnum heimi
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari valdi í gær 24 manna leikmannahóp fyrir landsleiki gegn Kósóvó og Írlandi. Mikil meiðsli herja á íslenska hópinn og mörg ný andlit fá nú tækifæri til þess að láta ljós sitt skína.

Viðar Örn tjáir sig: Löngu hættur að drekka áður en ég mætti til móts við landsliðið
Viðar Örn Kjartansson, framherji íslenska landsliðsins og Maccabi Tel Aviv, hefur tjáð sig um mál málanna um að hann hafi mætt ölvaður til móts við landsliðið í nóvember síðastliðnum.

Sjáðu blaðamannafund KSÍ
Landsliðshópur Íslands fyrir leikinn gegn Kósovó í undankeppni HM 24. mars var tilkynntur á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Íslenskum landsliðsmönnum neitað um bjór í Króatíu
Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, var spurður út í það á blaðamannafundi landsliðsins í dag hvort leikmenn hefðu verið gripnir við áfengisneyslu á hóteli í landsliðsverkefni á síðasta ári.

Ölvaður til móts við íslenska landsliðið á Ítalíu
Viðar Örn Kjartansson er í landsliðshópi Íslands fyrir leikinn gegn Kósóvó.

Mörg ný andlit í landsliðshópi Heimis
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Kósóvó í undankeppni HM. Sá leikur fer fram 24. mars.

Ísland án Alfreðs, Birkis og Jóhanns Berg gegn Kósóvó
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verður án lykilmanna í leiknum gegn Kósóvó í undankeppni HM 2018 eftir viku.

Rooney gæti misst fyrirliðabandið hjá enska landsliðinu
Dagar Waynes Rooney sem fyrirliði enska landsliðsins gætu verið taldir.

Tímamótatáningur fyrir franska landsliðið í fótbolta
Kylian Mbappe, táningurinn í framlínu Mónakó-liðsins, er búinn að vinna sér sæti í franska landsliðinu og það þýðir um leið skemmtileg tímamót fyrir franskan fótbolta.

Tveir Liverpool-menn valdir í brasilíska landsliðið
Liverpool-mennirnir Philippe Coutinho og Roberto Firmino komust báðir í hópinn hjá Brasilíu fyrir leiki á móti Úrúgvæ og Paragvæ í undankeppni HM seinna í þessum mánuði.

Alfreð gæti verið með á móti Kosóvó
Markahrókurinn gælir við að vera klár í slaginn þegar strákarnir okkar mæta nýliðunum í lok mánaðarins.

Skeggið farið hjá landsliðsfyrirliðanum | Nánast óþekkjanlegur
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hefur látið skeggið fræga fjúka.

Lars Lagerbäck mættur í vinnuna hjá norska sambandinu
Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska fótboltalandsliðsins, á það sameiginlegt með nýjum formanni KSÍ, Guðna Bergssyni, að hafa hafið störf á nýjum stað á mánudaginn.

Skipting bónusanna vegna EM-ævintýrisins skildi eftir sig sára og svekkta landsliðsmenn
Af 1,9 milljarði króna sem KSÍ fékk vegna árangurs karlalandsliðsins fóru um 600 milljónir króna til leikmanna. Bónusgreiðslurnar eru af stærðargráðu sem aldrei áður hafa sést hér á landi en í samræmi við greiðslur annarra landsliða.

Íslensku fótboltalandsliðin á fámennum lista meðal milljónaþjóða
Íslensku karla- og kvennalandsliðin í fótbolta eru bæði í 20. sæti heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Þau eru á meðal átta margra milljóna manna þjóða sem eru með bæði landsliðin á topp 20 í heiminum.

Kóngar norðursins með enn meiri yfirburði á nýjasta heimslistanum
Íslenska fótboltalandsliðið er ekki bara besta landsliðið á Norðurlöndum samkvæmt nýjum FIFA-lista heldur það langbesta.

Gylfi um Lars Lagerbäck: Gott fyrir karlinn að hann sé ennþá í fótboltanum
Gylfi Þór Sigurðsson, lykilmaður íslenska fótboltalandsliðsins, er ekkert svekktur út í Lars Lagerbäck þótt að Svíinn hafi ráðið sig sem þjálfara norska landsliðsins.

Heimir: Þetta er miklu meira en einhver vináttuleikur fyrir Mexíkó
Íslenska landsliðið mætir Mexíkó á fimmtudaginn í Bandaríkjunum en þar eru ekki allir samlandar þeirra velkomnir lengur.

Heimir: Lars hefur áhyggjur af því að Íslendingum þyki ekki vænt um hann lengur
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck ræddu saman í morgun í fyrsta sinn eftir að Lars Lagerbäck tók við þjálfun norska landsliðsins. Lars Lagerbäck hafði áhyggjur af dómstóli götunnar á Íslandi.

Ef Norðmenn hækka sig jafnmikið undir stjórn Lars og Íslendingar þá enda þeir í 2. sæti
Lars Lagerbäck er hættur við að hætta en hann er nú tekinn við norska fótboltalandsliðinu. Norðmenn búast við örugglega við svipuðum framförum og hjá íslenska landsliðinu undir stjórn Lars. Hækki norska landsliðið sig um jafnmörg sæti að það íslenska þá kæmi Lars Norðmönnum í hóp bestu landsliða heims.

Twitter um Lars og nýja starfið: „Eins og þegar kærastan dömpar þér og hoppar beint í fangið á öðrum“
Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er Lars Lagerbäck nýr þjálfari norska karlalandsliðsins í fótbolta. Lars skrifaði undir þriggja ára samning við norska knattspyrnusambandið.

Lars Lagerbäck nýr landsliðsþjálfari Noregs
Sá sænski hvergi nærri hættur.

Neymar er miklu verðmætari en Messi
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er langverðmætasti knattspyrnumaður heims samkvæmt nýrri samantekt CIES Football Observatory á því hverjir eru hundrað verðmætustu fótboltamenn heimsins í dag.

Langt í frá týndur en mjög áhyggjufullur yfir ferlinum
Kolbeinn Sigþórsson, maðurinn sem skaut enska landsliðið af EM í Frakklandi, hefur ekki spilað fótbolta síðan í byrjun júlí. Erfið og óútskýrð hnémeiðsli hafa nú sett stórt spurningarmerki við feril hans.

Íslandslest á milli Helsinki og Tampere
Tveir landsleikir fara fram í Finnlandi þann 2. september.