Forseti Íslands

Finnlandsforseti segir innrás Rússa vandamálið en ekki aðild Finnlands að NATO
Forseti Finnlands segir aðildarumsókn og síðar aðild Finna að Atlantshafsbandalaginu ekki skapa hindranir í samskiptum Finna við Rússa. Það geri innrás þeirra í Úkraínu hins vegar. Finnsku forsetahjónin komu í tveggja daga heimsókn til Íslands í dag.

Allt stopp á meðan beðið var eftir Finnlandsforseta
Ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í morgun þurftu margir hverjir að bíða lengi á rauðu ljósi án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Í ljós kom að lögregla var að greiða leið Finnlandsforseta á leið í heimsókn til Bessastaða.

Finnsku forsetahjónin til Íslands í vikunni
Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Jenni Haukio forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í vikunni ásamt fylgdarliði. Heimsóknin stendur yfir dagana 19. til 20. október en gestirnir halda af landi brott föstudag. Á fimmtudag munu finnsku forsetahjónin meðal annars heimsækja ísgöngin á Langjökli, Húsafell og Þingvelli.

Guðni og krónprinsinn ganga að gosstöðvunum
Hákon, krónprins Noregs, er staddur á Íslandi til þess að vera viðstaddur Hringborð norðurslóða sem hefst í Hörpu á morgun. Forseti Íslands tók á móti honum og eru þeir nú á göngu í átt að Fagradalsfjalli.

„Ef við tökum leikmennina stöðu fyrir stöðu þá eigum við að hafa betur“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands er sigurviss fyrir úrslitaleik okkar kvenna um sæti á HM 2023 gegn Portúgal. Leikið verður þar ytra í Portó og er forsetinn á meðal um 150 stuðningsmanna íslenska landsiðsins sem Guðni segir munu styðja stelpurnar frá fyrstu mínútu.

Mikil tilhlökkun í stuðningsmönnum á leið til Porto
Mikil tilhlökkun var í stuðningsmönnum íslenska kvennalandsliðsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun þar sem þeir biðu eftir að fara um borð í vél Icelandair á leið til Porto í Portúgal. Stelpurnar okkar mæta landsliði Portúgal síðar í dag.

Mjólkaði á umhverfis- og heilsuveislu í Hörpu
Lifum betur er svokölluð umhverfis- og heilsuveisla í Hörpu sem hefur staðið yfir frá föstudegi og lýkur hátíðinni í dag, sunnudag

Stressuð að byrja í íslenskum skóla
Hin fimmtán ára Yeva frá Úkraínu kveðst stressuð fyrir því að byrja í íslenskum skóla. Hún byrjar á mánudaginn og bindur vonir við að skólagangan verði góð. Úkraínumenn á Íslandi blésu í dag til hátíðar í Kolaportinu í Reykjavík í þakkarskyni fyrir góðar móttökur og stuðning Íslendinga.

Nýr sendiherra Bandaríkjanna afhenti forseta trúnaðarbréf
Carrin Patman, nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, afhenti Guðna Th. Jóhannessyni forseta trúnaðarbréf í gær. Sendiherralaust hefur verið frá því að umdeildur forveri Patman lét af embættinu í janúar í fyrra.

Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins
Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag í Norðurljósasal Hörpu í Reykjavík undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind.

Trump skipar Íslandi í flokk þriðja heims ríkja
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, gagnrýnir að Bandaríkjaforseta hafi verið skipað á bekk með þriðja heims leiðtogum við útför Bretadrottningar í gær. Bandarísku forsetahjónin sátu rétt fyrir aftan þau íslensku í kirkjunni. Trump telur að Bandaríkin hafi mátt þola vanvirðu sökum þessa.

Söguleg og tilfinningaþrungin athöfn: „Elísabet Bretlandsdrottning stóð sína plikt“
Íslensku forsetahjónin segja það heiður að hafa fengið að vera viðstödd útför Elísabetar II drottningar sem fór fram í dag. Það hafi verið tilfinningaþrungið og sögulegt, sjötíu ár Elísabetar í embætti hafi einkennst af þjónustu, samviskusemi og virðingu. Um fimm hundruð fulltrúar um tvö hundruð þjóða heims voru viðstaddir. Forsetafrúin náði að kasta kveðju á gamla kunningja, bandarísku forsetahjónin Jo og Jill Biden.

Riddaraskjöldur Guðna afhjúpaður
Riddaraskjöldur Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, var afhjúpaður við hátíðalega athöfn í Riddarakapellu Friðriksborgarhallar í Kaupmannahöfn síðastliðinn mánudag. Guðni var sæmdur riddaraorðu fílareglunnar árið 2017.

Forsetinn telur bagalegt að Siri skilji ekki íslensku
Forseti Íslands gerði stöðu íslenskunnar og fortíðarþrá meðal annars að umtalsefni þegar hann setti Alþingi í dag. Tryggja þyrfti stöðu tungumálsins í stafrænum heimi og sýna þeim sem hingað flyttu og vildu læra íslensku umburðarlyndi.

Sögulegt minni megi hvetja okkur til dáða
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson ávarpaði alþingismenn við 153. setningu Alþingis nú fyrr í dag. Hann sagði vel vera hægt að tryggja framtíð íslenskunnar en mikilvægt væri að sýna þeim sem hana vilji læra umburðarlyndi.

Forsetahjónin fögnuðu með Margréti Þórhildi
Í dag fagnaði Margrét Þórhildur Danadrottning fimmtíu ára valdaafmæli sínu. Hún bauð þjóðhöfðingjum Norðurlandanna til veislu og forsetahjónin íslensku létu sig ekki vanta.

Ný innsetning íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða
Formleg opnun nýrrar innsetningar íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða fór fram í gær að viðstöddum forseta Íslands, fulltrúum Samtaka iðnaðarins, hönnuðum og framleiðendum.

Danski lakkrísgerðarmaðurinn segist hafa sótt innblástur til Íslands
Danski lakkrísgerðarmaðurinn Johan Bülow segir að vörur hans, sem eru hinar ýmsu útfærslur á súkkulaðihúðuðum lakkrís, hafi verið innblásnar af íslensku sælgæti.

Nýtt tríó hluti af sextettnum sem ákveður hverjir fái fálkaorðuna
Ákveðið hefur verið að skipa Drífu Hjartardóttur, fyrrverandi alþingismann, Sigríði Snævarr, fyrrverandi sendiherra, og Sigurbjörn Árna Arngrímsson, skólameistara, í orðunefnd. Orðunefnd fer með málefni hinnar íslensku fálkaorðu.

Forsetinn segir Dönum að súkkulaðihúða smurbrauðið
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur blandað sér í umræðuna um súkkulaðihúðaðan lakkrís, og hvort um sé að ræða danska eða íslenska uppfinningu, sem hefur farið hátt síðustu daga.

Forsetahlaupið vakti mikla lukku
Forsetahlaup UMFÍ var haldið í fyrsta sinn með pompi og prakt á Álftanesi í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson hljóp í báðum hlaupunum sem stóðu þátttakendum til boða og veitti verðlaun að þeim loknum. UMFÍ vonast með hlaupinu til þess að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira í góðum félagsskap.

Útgáfuhóf forsetans fór fram í Sjóminjasafninu
Sögufélag hefur nú gefið út bókina Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 eftir Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðing og forseta Íslands.

Skrifar sögu landhelgismálsins til þess að slaka á
Fimmtíu ár eru liðin síðan landhelgin var færð út í fimmtíu mílur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sem er jafnframt sagnfræðingur hefur nú skrifað bók um sögu landhelgismálsins sem spannar árin 1961 til 1971.

Hlaupið með Guðna í Forsetahlaupi UMFÍ og UMSK
Forsetahlaup UMFÍ og UMSK fer fram á laugardaginn. Hlaupið er lokahnykkurinn á Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK. Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Kjalarnesþings reiknar með frábærri þátttöku.

Jón Baldvin hunsaður og lítilsvirtur nú sem endranær
Bryndís Schram rithöfundur og eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir Jón Baldvin hafa verið hunsaðan og lítilsvirtan frá upphafi og nú sé sagan að endurtaka sig.

Jón Baldvin segir boðið hafa borist of seint
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem hann segir forsetaembættið fara með rangt mál þegar það segir hann hafa afþakkað boð á hátíðarsamkomu um sjálfstæði Eystrasaltsríkja.

Segir ósatt með öllu að Jóni Baldvin hafi ekki verið boðið
Ósatt er með öllu að ekki hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, til hátíðarviðburðar í tilefni þess að rúm þrjátíu ár séu liðin frá því að Ísland hafi á ný tekið upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslöndin þrjú.

Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél
Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum.

Samúðarkveðjur berast víða að til íbúa Blönduóss
Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum.

Forsetahjónin reimuðu á sig hlaupaskóna
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í dag og létu forsetahjónin sig ekki vanta. Ásamt þeim hefur mikill fjöldi ákveðið að reima á sig hlaupaskóna og taka þátt.