Heilbrigðismál

Fréttamynd

Al­gjör sam­staða sé um að hækka bætur

Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi  líka við um aðrar launahækkanir. 

Innlent
Fréttamynd

Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“

Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni

Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni

Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til þeirra sem dvelja á sjúkrahótelum og þannig myndi legurýmum fjölga svo hægt væri að létta á álaginu á bráðamóttökunni.

Innlent
Fréttamynd

Við­brögð Ölmu mikil von­brigði

Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við.

Innlent
Fréttamynd

Vinna að því að fækka sjúk­lingum og flytja annað

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 

Innlent
Fréttamynd

Starfs­fólk bráða­mót­töku óttist um heilsu sína og öryggi

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala óttast um öryggi sitt og sjúklinga þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Vinnuaðstæður séu óboðlegar. Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar hafa boðað til fundar síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Stoltur yfir arf­leifð Bryn­dísar Klöru en söknuðurinn sár

Starfsemi Bryndísarhlíðar, sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala, mun hefjast innan tíðar. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár.

Innlent
Fréttamynd

Takk læknar!

Lára G. Sigurðardóttir læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, er kona að mínu skapi. Hún hefur skrifað nokkrar flottar greinar um afleiðingar óhóflegrar áfengisneyslu og áfengisstefnu Íslands upp á síðkastið hér í skoðanagreinum. Það hafa einnig Valgerður Rúnarsdóttir, fíknlæknir, Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir og Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir, gert.

Skoðun
Fréttamynd

Heil­brigðis­kerfi sem treystir á seiglu

Í umræðu um íslenskt heilbrigðiskerfi er oft vísað til stefnumótunar, skipulags og fjármögnunar. Slík umræða er mikilvæg, en hún segir ekki alla söguna. Raunveruleg mynd birtist ekki í skýrslum eða áætlanagerð, heldur í daglegum rekstri, í starfseminni, á vöktunum, í vitjunum, hjá starfsfólkinu í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur.

Skoðun
Fréttamynd

Í kapp­hlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar

„Ég vil sjá börnin mín vaxa úr grasi. Mig langar að verða amma. Ég er ekki reiðubúin til að deyja,“ segir Ingibjörg Gísladóttir Lauvland með kökk í hálsinum í samtali við norska ljósmyndarann Olav Svaland. Ingibjörg er Íslendingur búsett í Noregi en fyrir tveimur árum greindist hún með ALS, líkt og faðir hennar á undan og fleiri skyldmenni. Pabbi hennar býr á Íslandi og hefur náð nokkrum bata með lyfjagjöf. Ingibjörg fær ekki lyfið; norska ríkið segir nei.

Innlent
Fréttamynd

Tíma­bilið sem flestir vilja gleyma

Þegar Covid-faraldurinn gekk yfir Ísland vorið 2020 breyttist samfélagið nánast á einni nóttu. Dagarnir urðu óvenju hljóðir, göturnar tómar og orð eins og „smitrakning“, „sóttarvarnir“ og „tveggja metra regla“ færðust skyndilega inn í daglegt tal. Það var eins og öll þjóðin hefði verið sett í sameiginlegt tilraunaverkefni sem enginn hafði skráð sig í.

Lífið
Fréttamynd

Ó­nýtt tæki­færi í heil­brigðis­kerfinu

Bið eftir heilbrigðisþjónustu er mörgum erfið og þungbær. Á meðan fólk bíður eftir nauðsynlegri meðferð skerðist oft starfsgeta og í sumum tilvikum verður fólk tímabundið eða varanlega óvinnufært. Afleiðingarnar snerta því ekki aðeins einstaklingana sjálfa heldur samfélagið allt.

Skoðun
Fréttamynd

Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla

Yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis segir flesta þá sem smitist af berklum aldrei veikjast af berklasjúkdómi. Áhyggjur séu fyrir hendi að fleiri gætu veikst í viðkvæmum hópum sem séu líklegri til að veikjast en aðrir. Enginn hefur látist á Landspítala á þessu eða síðasta ári af völdum berkla.

Innlent
Fréttamynd

Skapi ó­öryggi þegar lög­regla sé allt í einu mætt á svæðið

Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands kallar eftir því að sett verði á stofn sérstök nefnd, sem samsvari rannsóknarnefnd samgönguslysa, til að rannsaka andlát og alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu. Það valdi heilbrigðisstarfsfólki óöryggi þegar lögregla sé farin að skoða mál án þess að það hafi verið metið af sérfræðingum innan heilbrigðiskerfisins.

Innlent
Fréttamynd

Berkla­smitaður maður lést á Land­spítalanum

Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur.

Innlent
Fréttamynd

„Hve­nær í ó­sköpunum er botninum náð á þessum vinnu­stað?“

Slæmar vinnuaðstæður og þrengsli á bráðamóttöku Landspítalans geta útsett starfsfólk og sjúklinga fyrir ýmsum sýkingum að mati framkvæmdastjóra hjá Landspítalanum. Formaður Læknafélags Íslands segir starfsstéttina í töluverðu uppnámi í kjölfar berklasmits sem átti sér mögulega stað á bráðamóttökunni.

Innlent