Heilbrigðismál
44 45 46 47 48 49 50 51 52 … 222 ›
Vill strangara eftirlit með úkraínsku kjöti vegna sýklalyfjaónæmra baktería Bráðabirgðaákvæði sem heimilar tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu rennur út í lok morgundagsins. Læknir segir að þó innflutningurinn hafi mikil áhrif á íslenskan markað megi ekki gleyma lýðheilsusjónarmiðum. Bakteríur, sem meðal annars eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og hafa hingað til verið óþekktar hér á landi, finnist í miklu magni í úkraínsku kjöti. Innlent 30.5.2023 11:25
Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi. Skoðun 28.5.2023 07:01
Fólk bíði með bullandi sýkingar fram að mánaðamótum Tugir leita til Hjálparstarfs kirkjunnar í hverjum mánuði til að fá aðstoð með lyfjakaup. Í mörgum tilfellum er fólk að bíða með bullandi sýkingu fram að mánaðamótum til að geta greitt sýklalyf. Innlent 27.5.2023 09:00
Endurtekið efni – eða hvað kæri heilbrigðisráðherra Nú eru 542 nætur eða svo frá því að núverandi heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson tók við ráðuneyti heilbrigðismála. Skoðun 27.5.2023 08:00
Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim. Skoðun 27.5.2023 07:01
Segir stórsókn í heilbrigðismálum helst felast í fjárfestingum í steypu Stjórn Læknafélags Íslands krefst þess að gripið verði til markvissra aðgerða í heilbrigðiskerfinu í ákalli til stjórnvalda. Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir stöðuna alvarlega um allt kerfið. Innlent 26.5.2023 23:00
Gervigreind gæti sparað tíma og pening í heilsugæslunni Ný rannsókn fjögurra íslenskra vísindamanna sýnir að gervigreind getur aðstoðað við að raða sjúklingum eftir einkennum. Einkenni margra ganga yfir af sjálfu sér án inngrips á heilsugæslu. Innlent 26.5.2023 15:43
Á Íslandi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabbamein Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum. Skoðun 26.5.2023 15:00
Landspítalinn „með puttana“ í lykilþáttum málsins Verjandi hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild sakaði Landspítalann um að vera með puttana í lykilgögnum málsins og skipta sér af framburði lykilvitna. Ákæruvaldið hafi skautað létt fram hjá ábyrgð spítalans sjálfs á andlátinu. Innlent 26.5.2023 14:37
Virðist hafa tekið pirring út á sjúklingnum Hjúkrunarfræðingur sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans tók pirring vegna aðstæðna á deildinni út á sjúklingnum, að mati saksóknara í málinu. Þrátt fyrir að hann hafi ekki ætlað að drepa sjúklinginn hafi hann gengið fram af offorsi og mátt vera ljóst hverjar afleiðingarnar yrðu. Innlent 26.5.2023 13:34
„Lögreglan getur ekki veitt neina þjónustu ef hún veit ekki af ofbeldinu“ Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn skýra heimildir þeirra til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu segir þetta lið í nýju verklagi sem verið er að innleiða hér á landi. Innlent 26.5.2023 13:21
Áminnt fyrir að segja frá tíu ára stúlku sem fór í þungunarrof í kjölfar nauðgunar Læknayfirvöld í Indiana í Bandaríkjunum hafa áminnt kvensjúkdóma- og fæðingalækninn Caitlin Bernard fyrir að hafa rætt við blaðamann um mál tíu ára stúlku sem fékk þungunarrofsþjónustu hjá Bernard í kjölfar nauðgunar. Erlent 26.5.2023 11:44
Undirmönnun, álag og fyrirmæli sem komust ekki til skila Forstjóri Landspítalans staðfesti að aðstæður á geðdeild hafi verið ófullnægjandi þegar kona lést þar fyrir tæpum tveimur árum í framburði fyrir dómi í morgun. Innri rannsókn spítalans leiddi í ljós að vaktin var undirmönnuð, mikið álag var á starfsfólki, fyrirmæli skiluðu sér ekki og sjúklingurinn ekki vistaður á heppilegum stað. Þá hafði ákærða unnið nítján vaktir á sextán dögum fyrir andlát sjúklingsins. Innlent 26.5.2023 11:10
Segja kerfið ekki búið undir fjölgun krabbameinstilvika Krabbameinsfélagið skorar á stjórnvöld að setja af stað undirbúning vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar krabbameinstilvika og þeirra sem sigrast á krabbameini eða lifa með krabbameini. Innlent 26.5.2023 07:24
Talin hafa kafnað vegna vökva sem teppti lungun Réttarlæknir telur að kona sem lést á geðdeild Landspítalans árið 2021 hafi kafnað vegna vökva sem náði djúpt ofan í lungu hennar. Hjúkrunarfræðingur er ákærður fyrir að valda dauða konunnar með því að hella ofan í hana næringardrykkjum. Innlent 26.5.2023 06:01
Greiningarprófi að þakka að Fentanýl fannst í kristölum sem sagðir voru hreinir Fentanýl fannst nýlega í MDMA kristölum sem voru í umferð hér á landi og sagðir hreinir. Þetta kom í ljós þegar notandi gerði greiningu á efninu og hætti af þeim sökum við að nota það. Stofnendur fyrirtækis sem flytur inn greiningarpróf vonast til að stjórnvöld hafi áhuga á samstarfi til að tryggja betur öryggi notenda. Innlent 25.5.2023 21:23
Var send alvarlega veik aftur á undirmannaða geðdeild Kona sem lést á geðdeild Landspítalans fyrir tæpum tveimur árum var send alvarlega líkamlega veik til baka af bráðadeild í Fossvogi vegna erfiðra aðstæðna þar. Mönnun á geðdeildinni var engu að síður talin ófullnægjandi til að sinna hjúkrunarverkefnum þar. Innlent 25.5.2023 16:23
Nýtt bóluefni gegn meningókokkum vekur miklar vonir Nýtt bóluefni gegn meningókokkum hefur vakið vonir um að hægt verði að koma í veg fyrir nær öll tilfelli heilahimnubólgu af völdum bakteríusýkinganna, sem eru taldar valda 250 þúsund dauðsföllum í heiminum á ári hverju. Erlent 25.5.2023 06:56
10 til 30 prósent Covid-greindra glími við langvarandi einkenni Á árunum 2018 til 2023 hafa verið skráðar 3.017 komur á heilsugæslur landsins í tengslum við langvarandi einkenni Covid-19. Þar af voru heimsóknir karla 1.040, kvenna 1.982 og kynsegin fimm. Innlent 25.5.2023 06:35
Þurfa að loka göngudeildum yfir sumartímann í miðjum ópíóðafaraldri Göngudeildum SÁÁ og meðferðarstöðinni í Vík verður lokað í sumar vegna fjárskorts á sama tíma og fréttir berast af ópíóðafaraldri. Yfirlæknir segist ekkert hafa heyrt frá heilbrigðisráðherra eftir að hann boðaði aukna fjárveitingu fyrir rúmum tveimur vikum. Innlent 24.5.2023 19:00
Orð gegn orði um andlát sjúklings á geðdeild Grundvallarmunur er á lýsingum hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans og starfsmanna sem voru á vaktinni á því hvað gerðist. Hjúkrunarfræðingurinn neitaði að hafa hellt næringardrykk í sjúklinginn þar til hann missti meðvitund við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 24.5.2023 15:52
Þetta reddast ekki! Í tímaritinu „The Economist“ var nýverið birt grein sem bar fyrirsögnina ,,Why health-care services are in chaos everywhere. Now is an especially bad time to suffer a heart attack“. Þar er fjallað um þann mikla vanda sem steðjar að heilbrigðiskerfum flestra vestrænna landa í kjölfar Covid. Skoðun 24.5.2023 15:30
Réttað yfir geðhjúkrunarfræðingi sem er sakaður um manndráp Aðalmeðferð í máli geðhjúkrunarfræðings á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Umfjöllun um það sem fram kemur við þinghaldið er bönnuð þar til í lok dags. Innlent 24.5.2023 08:33
Í hvernig samfélagi viljum við búa? Sláandi niðurstöður könnunar um lífskjör og heilbrigðisþjónustu sem Rúnar Vilhjálmsson prófessor við HÍ og ÖBÍ réttindasamtök fólu Félagsvísindadeild HÍ að framkvæma, voru kynntar í dag, þriðjudaginn 23. maí. Skoðun 23.5.2023 17:00
Ráðherra verður við áskorun þingmanns og ljósmóður Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að leggja til að heimaþjónusta ljósmæðra verði veitt nýjum foreldrum og börnum óháð því hve lengi þau dvöldu á fæðingarstofnun. Innlent 23.5.2023 16:15
Fresta læknisheimsóknum og leysa ekki út lyf vegna kostnaðar Ný könnun Félagsvísindastofnunar sýnir að læknis og lyfjakostnaður sé mörgum öryrkjum um megn. Prófessor í félagsfræði segir að staðan hafi versnað síðan árið 2015. Innlent 23.5.2023 14:01
Kristján Jóhannsson hefur háð harða baráttu við krabbamein Kristján Jóhannsson óperusöngvari greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli í september síðastliðnum. Hann hefur nú undirgengist hormóna- og lyfjameðferð og segist læknaður. Hann gat ekki sungið á meðan meðferðunum stóð en stefnir á að vera kominn í fyrra form eftir nokkrar vikur. Innlent 23.5.2023 09:02
Írar fyrstir til að krefjast viðvarana á áfengisumbúðir Stjórnvöld á Írlandi hafa ákveðið að skikka áfengisframleiðendur til að setja viðvörunarmerkingar á vörur sínar þar sem gert er grein fyrir áfengisinnihaldi, kaloríufjölda og áhrifum áfengisneyslu á aukna áhættu á krabbameinum og lifrarsjúkdómum. Erlent 22.5.2023 12:09
Lömuð sænsk kona föst á Bretlandseyjum vegna skrifræðis Sænsk kona sem hefur verið búsett í Lundúnum í 25 ár lamaðist í hjólaslysi fyrir um ári síðan og hefur verið send á milli sjúkrahúsa á Bretlandseyjum í ár. Maðurinn hennar vill flytja hana heim til Svíþjóðar en þar neita yfirvöld að taka við henni þar sem hún er ekki skráður íbúi. Erlent 22.5.2023 07:42
„Það er ekki búið að biðja okkur fyrirgefningar“ Framkvæmdastjóri HIV Ísland vill að stjórvöld biðjist afsökunar á framgöngu sinni gagnvart HIV smituðum undir lok síðustu aldar. Sagan megi ekki endurtaka sig en fjörutíu ár eru nú liðin frá því að þeir fyrstu greindust með HIV á Íslandi. Innlent 21.5.2023 21:31