Svíþjóð

Sænskur draumur eftir hvatvísa ákvörðun Ásu og Leos
Ferðaljósmyndarinn og ævintýrakonan, Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar, Leo Alsved, festu kaup á rómantísku gulu timburhúsi í Svíþjóð.

Baráttan við glæpagengin: Börn taka fjögur ár á kassann til að verða hundraðkall
Afleiðingar átaka innan hins alræmda Foxtrot-glæpagengis og átaka liðsmanna þeirra við önnur glæpagengi hafa skotið Svíum skelk í bringu á síðustu mánuðum. Forsætisráðherra landsins segir ástandið fordæmalaust og stöðuna grafalvarlega. Stigmögnun árása glæpagengja er svo mikil að Svíum er fyrir löngu hætt að standa á sama. Börn afplána með glöðu geði fjögur ár í fangelsi til að afla sér virðingar.

Segir börn hafa samband við glæpagengin og bjóðast til að drepa
Ríkislögreglustjóri Svíþjóðar segir að ofbeldisalda af áður óþekktri stærðargráðu gangi nú yfir landið og allar líkur séu á að fréttir muni berast af nýjum árásum á næstu dögum og vikum. Hann segir lögreglu hafa upplýsingar um að börn setji sig í samband við glæpagengin og bjóðist til að drepa.

Segir allt koma til greina til að kveða niður glæpaölduna
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir stjórnvöld þar í landi munu beita öllum sínum ráðum til þess að kveða niður glæpaölduna sem riðið hefur yfir landið. Hann ávarpaði sænsku þjóðina vegna málsins nú síðdegis og kynnti breytingar á lögum landsins.

Stríð glæpagengja í Svíþjóð: Vill fá herinn til að aðstoða lögregluna
Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra Jafnaðarmanna og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur hvatt til þess að sænski herinn verður kallaður til til að aðstoða lögregluna í baráttu sinni við glæpagengin í landinu.

Kona látin eftir sprengingu í Uppsölum
Tuttugu og fimm ára kona er látin eftir að sprengja sprakk í íbúahverfi í Fullerö, norður af Uppsölum í Svíþjóð, í nótt. Talið er að árásin tengist átökum glæpahópa í landinu, en samkvæmt heimildum SVT á konan ekki að hafa tengst hópunum og ekki verið skotmark árásarinnar.

Enn lítið um svör, ári frá sprengingunum
Ár er liðið frá því Nord Stream gasleiðslurnar voru skemmdar í sprengingum á botni Eystrasalts. Skemmdarverkið er til rannsóknar í nokkrum ríkjum en enn er ekki búið að varpa ljósi á því hverjir sprengdu leiðslurnar.

Unglingar fórnarlömb á gjörbreyttum fíkniefnamarkaði
Stjórnmálafræðingur sem búsettur var í um áratug í Svíþjóð segir sturlungaöld ríkja í undirheimum landsins. Svíar hafi miklar áhyggjur af ástandinu.

Hraðbraut í Svíþjóð í sundur vegna jarðsigs
Mildi má telja að engin slasaðist alvarlega þegar stór hluti E6 hraðbrautarinnar nærri Stenungssund norðan af Gautaborg fór í sundur sökum jarðsigs í nótt.

Tveir skotnir til bana á krá í Svíþjóð
Tveir voru skotnir til bana á krá í sænska bænum Sandviken í gærkvöldi.

Rússar segja sig úr Barentsráðinu
Yfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að segja sig úr Barentsráðinu og saka nágranna sína um að hafa gert ráðið óstarfhæft. Rússar segja Finna ekki hafa viljað afhenda þeim forsæti ráðsins.

Sprenging í íbúðarhúsnæði við Stokkhólm
Sprenging varð í íbúðarhúsnæði í Bro, bæ í útjaðri Stokkhóms í Svíþjóð í nótt. Engan sakaði vegna sprengingarinnar.

Guðni og Eliza fagna fimmtíu árum með Karli Gústaf
Karl XVI. Gústaf Svíakonungur fagnar í dag hálfrar aldar krýningarafmæli og eru forsetahjón Íslands ásamt öðrum norrænum þjóðhöfðingjum í Svíþjóð í tilefni af því.

Óvissa uppi um næstu skref hjá Ara Frey: „Eina sem ég hef lifað fyrir“
Samningur Ara Freys Skúlasonar, atvinnumanns og fyrrum landsliðsmanns Íslands í fótbolta, við sænska úrvalsdeildarfélagið IFK Norrköping rennur út eftir yfirstandandi tímabil. Óvissa er uppi um framhaldið.

Forsetahjónin á leið í krýningarafmæli Karls Gústafs konungs
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid halda á morgun til Stokkhólms í Svíþjóð þar sem þau munu taka þátt í hátíðahöldum í tilefni hálfrar aldar krýningarafmælis Karls XVI. Gústafs Svíakonungs.

Sænsk kona grunuð um að hafa myrt barnið sitt og slasað annað
Lögreglan í Vallentuna í Svíþjóð handtók á laugardag konu sem grunuð er um að hafa myrt barnið sitt og slasað annað alvarlega. Bæði börnin eru yngri en fimmtán ára.

„Við héldum satt að segja að þetta gæti ekki gerst í dag“
„Ég óska þess heitast að ég eigi aldrei í lífinu eftir að gera svo stór mistök í starfi eða daglegu amstri að það eigi eftir að kosta einhvern lífið. Hvað þá svona fallegt og saklaust barn,“ segir Sigurjón K. Guðmarsson. Einkadóttir hans, hin 22 ára gamla Jana Sif, lést í kjölfar hjartaaðgerðar í Svíþjóð síðastliðið vor.

„Hef fundið knýjandi þörf til að móta fjölmiðil eftir eigin höfði“
Viðskiptablaðamaðurinn Þorsteinn Friðrik Halldórsson hefur hleypt nýjum vefmiðli, Hluthafanum, í loftið.

Sjö særðir eftir sprengingu í fjölbýlishúsi í Norrköping
Sjö eru særðir, þar á meðal eitt barn, eftir sprengingu í íbúðarhúsi í Norrköping í Svíþjóð snemma í morgun. Tilkynning barst viðbragðsaðilum um sprenginguna klukkan sex að staðartíma og þurftu þá 150 íbúar fjölbýlishússins að rýma það. Tveir hafa verið handteknir.

Hætta við að bjóða Rússum, Írönum og Hvít-Rússum
Forsvarsmenn Nóbelsverðlaunanna hafa dregið boð til sendiherra Rússlands, Írans og Belarús (eða Hvíta-Rússlands) á afhendingu verðlaunanna í Stokkhólmi i ár til baka. Það er eftir að upprunaleg ákvörðun þeirra var harðlega gagnrýnd víða um heim og í Svíþjóð.

Segir orðróm um yfirvofandi skilnað hafa haft miklar afleiðingar
Daníel prins segir að þrálátur orðrómur um yfirvofandi skilnað hans og Viktoríu, krónprinsessu Svíþjóðar, hafa haft miklar afleiðingar.

Mögulega engir áhorfendur á HM í handbolta vegna hryðjuverkaógnar
Ef allt fer á versta veg gætu leikir á HM í handbolta kvenna í Svíþjóð farið fram án áhorfenda.

Fimm látnir eftir bílslys í Svíþjóð
Fimm létust þegar vörubíll og fólksbíll rákust saman á vegi milli Falköping og Skara í Svíþjóð í gær. Fólksbíllinn varð alelda eftir áreksturinn en allir fimm sem létust voru í honum.

Segir Svíþjóð forgangsskotmark íslamista
Yfirmaður sænsku öryggislögreglunnar segir að Svíþjóð sé forgangsskotmark íslamskra öfgamanna. Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka var hækkað upp á næsthæsta stig í dag í kjölfar umdeildra Kóranbrenna í landinu.

Hækka viðbúnað vegna hryðjuverka í Svíþjóð
Sænska öryggislögreglan SÄPO ætlar að hækka viðbúnað vegna hryðjuverkaógnar upp á næsthæsta stig í dag. SAPO boðar til blaðamannafundar síðar í dag til þess að ræða versnandi stöðu öryggismála í landinu.

Al-Qaeda lýsir Danmörku og Svíþjóð stríð á hendur
Íslömsku hryðjuverkasamtökin Ríki íslams kalla eftir árásum á Danmörk og Svíþjóð vegna nýlegra Kóranbrenna í löndunum tveimur. Fyrrverandi leyniþjónustumaður segir að taka verði hótanir samtakanna grafalvarlega.

Óveðrið Hans veldur usla á Norðurlöndum
Yfirvöld í Noregi og Svíþjóð hafa sagt íbúum að búa sig undir gríðarmikið úrhelli næsta sólarhringinn, þegar óveðrið Hans gengur yfir. Miklar rigningar og öflugar vindhviður hafa nú þegar valdið aurskriðum sem truflað hafa vegasamgöngur og þá hafa tilkynningar borist um að þök hafi rifnað af húsum.

Danir og Svíar íhuga bann á Kóranbrennum
Utanríkisráðuneyti Danmerkur hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem það segist íhuga að banna mótmæli sem ganga út á að brenna Kóraninn eða önnur trúarleg rit. Mótmælin ógni öryggi íbúa og skaði orðspor Danmerkur út á við.

Slagsmál á Gothia Cup annan daginn í röð og nú voru foreldrar með
Kalla þurfti á lögreglu annan daginn í röð eftir að slagsmál brutust út á barna- og unglingamótinu Gothia Cup í Svíþjóð.

Kveiktu í sendiráði Svía í Írak
Nokkur hundruð menn ruddust inn í sendiráð Svíþjóðar í Bagdad í Írak í morgun og kveiktu í ráðuneytinu. Ráðist var á sendiráðið eftir vegna skipulagðra mótmæla í Svíþjóð þar sem til stendur að brenna eintak af Kóraninum fyrir utan sendiráð Íraks í Stokkhólmi í dag.