Holland

Ajax hollenskur meistari
Ajax tryggði sér í gær sigur í hollensku deildinni með 4-0 sigri gegn Emmen á Johan Cruyff Arena. Þetta er í 35. skipti sem Ajax vinnur deildina.

Ajax bikarmeistari í 20. sinn eftir dramatískan sigur
Ajax varð í kvöld hollenskur bikarmeistari í knattspyrnu í 20. sinn eftir 2-1 sigur á Vitesse í úrslitum í kvöld. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins.

3.500 áhorfendur fá að vera viðstaddir Eurovision
Hollensk stjórnvöld hafa gefið heimild fyrir því að 3.500 áhorfendur fái að vera viðstaddir Eurovision söngvakeppnina sem fram fer í Rotterdam í maí. Eurovision féll niður í fyrra, í fyrsta sinn í sögu keppninnar, vegna kórónuveirunnar.

Stefnir í annað kjörtímabil Mark Rutte þrátt fyrir hneykslismál
Flokkur Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, er sigurvegari þingkosninga þar í landi, ef marka má útgönguspár. Fari svo mun Rutte og VVD flokkurinn líklega hefja fjórða kjörtímabil sitt við stjórnvölinn.

Fimm þúsund áhorfendur á leik Hollands og Lettlands
Það verða allt að fimm þúsund áhorfendur á leik Hollands og Lettlands í undankeppni HM í Katar 2022.

Hollendingar að kjörborðinu í skugga heimsfaraldurs
Kjörstöðum í Hollandi verður lokað í kvöld, en þingkosningar hafa staðið yfir í landinu síðan á mánudag. Forsætisráðherra landsins til tíu ára, hinn 54 ára Mark Rutte, sækist þar eftir því að framlengja stjórnartíð sína.

Bætist í hóp þeirra sem hætta tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca
Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Holland bættust í dag við hóp þeirra landa sem hafa ákveðið að hætta tímabundið notkun á bóluefni AstraZeneca vegna á fjórða tug tilkynninga sem hafa borist um blóðtappa eftir notkun efnisins í Evrópu í síðustu viku.

Hollendingar gera hlé á notkun bóluefnis AstraZeneca
Hollendingar hafa ákveðið að fara sömu leið og fleiri þjóðir, Íslendingar þar á meðal, og gera hlé á notkun bólefnis frá AstraZeneca gegn kórónuveirunni.

Beittu vatnsþrýstidælum á mótmælendur
Lögreglan í Hollandi beitti vatnsþrýstidælum á mótmælendur ríkisstjórnarinnar, og sóttvarnaaðgerðum þeirra, í almenningsgarði í Haag í dag. Um tvö þúsund manns voru saman komin í miðborginni til að mótmæla sóttvarnaaðgerðum og öðrum stefnumálum ríkisstjórnarinnar.

Upphafsmaður snældunnar er látinn
Hollenski verkfræðingurinn Lou Ottens, sem hefur verið eignaður heiðurinn að því að vera uppfinningamaður kasettunnar, er látinn. Hann varð 94 ára.

Lögðu hald á sextán tonn af kókaíni í Þýskalandi
Tollayfirvöld í Þýskalandi hafa lagt hald á sextán tonn af kókaíni sem falin voru í gámum sem komu til landsins frá Paragvæ. Handlagningin er sögð vera sú mesta í sögunni í Evrópu.

Útgöngubann stjórnvalda stangast á við stjórnarskrá
Dómstóll í Haag í Hollandi hefur beint því til þarlendra stjórnvalda að aflétta útgöngubanni sem komið hafði verið á til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Stöðva ættleiðingar frá erlendum ríkjum
Yfirvöld í Hollandi hafa ákveðið að banna ættleiðingar frá erlendum ríkjum og tekur bannið gildi tafarlaust. Ákveðið var að grípa til þessa úrræðis eftir að umfangsmikil rannsókn leiddi í ljós of mörg tilvik ofbeldis og misnotkunar.

Eurovision verður ekki haldin með hefðbundnum hætti
Nú hafa forsvarsmenn Eurovision gefið út að ekki verði hægt að halda keppnina með hefðbundnum hætti en skipuleggjendur höfðu áður gefið út nokkrar sviðsmyndir keppninnar. Sviðsmynd A var alltaf sú að keppnin yrði haldin eins og Evrópubúar þekkja hana.

Kynlífsverkafólki gert að yfirgefa Rauða hverfið
Borgarstjórn Amsterdam hefur samþykkt tillögu um að miðstöð þeirra sem vinna kynlífsvinnu í borginni verði færð úr hinu svokallaða Rauða hverfi í miðborginni í annað hverfi fjarri miðbænum.

Fleiri hundruð mótmælendur handteknir víða um Evrópu
Nokkur hundruð mótmælendur hafa verið handteknir í Evrópsku borgunum Brussel, Búdapest og Vín þar sem hörðum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið mótmælt. Í austurrísku höfuðborginni Vín hefur hópur fólks úr röðum ný-nasista til að mynda komið saman til mótmæla.

Óeirðirnar endurspegli ekki hug almennings
Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga vegna hertra kórónuveirutakmarkana séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár.

Verstu óeirðir í Hollandi í fjörutíu ár
Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár. Fjöldi mótmælenda hefur komið saman í hollenskum borgum til þess að mótmæla útgöngubanni sem yfirvöld hafa sett á til þess að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Óeirðir í Hollandi vegna sóttvarnaaðgerða
Óeirðalögregla var kölluð út í Eindhoven í Hollandi í gærkvöldi vegna mótmælenda sem hópuðust á götur borgarinnar til að mótmæla nýju útgöngubanni í borginni sem tók gildi í gærkvöldi vegna útbreiðslu Covid-19 á svæðinu.

Dapurleg staða í Þýskalandi og víðar
Á meðan staðan fer batnandi hér heima heldur faraldurinn áfram að herja af fullum krafti á önnur ríki Evrópu. Takmarkanir voru hertar víða í dag.

Hollenska stjórnin segir af sér
Ríkisstjórn Hollands hefur sagt af sér. Ákvörðunin kemur í kjölfar hneykslismáls þar sem þúsundir fjölskyldna voru ranglega sakaðar um að svindla á barnabótakerfinu.

Taka skinkusamlokur af bílstjórum eftir Brexit
Vegna nýs viðskiptasamnings Evrópusambandsins og Bretlands eftir Brexit er innflutningur einstaklinga á ýmsum vörum óheimill, til dæmis þeim sem innihalda kjöt eða mjólkurvörur. Þessum reglum hafa bílstjórar sem ferðast á milli fengið að finna fyrir.

Eyþóra tilbúin að fórna ÓL vegna framgöngu fimleikasambandsins
Ólympíufarinn Eyþóra Þórsdóttir stendur í stappi við hollenska fimleikasambandið sem vill losa sig við þjálfarann Patrick Kiens. Hún er tilbúin að fórna Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar breyti sambandið ekki afstöðu sinni.

Veðmál á vitlausan hest tafði bólusetningar í Hollandi
Hollenska ríkisstjórnin hefur verið harðlega gagnrýnd vegna tafa sem orðið hafa á bólusetningu vegna Covid-19 þar í landi. Bólusetning hófst þar fyrst í dag, tíu dögum eftir að bólusetning hófst í grannríkjunum.

Nýja afbrigðið skotið upp kollinum á fleiri stöðum
Fjögur tilfelli af nýju afbrigði kórónuveirunnar hafa fundist á Spáni, sama dag og það var tilkynnt að það hefði einnig verið greint í Frakklandi. Afbrigðið, sem er betur þekkt sem breska afbrigðið, er mun meira smitandi en önnur.

Tjáði sig í fyrsta sinn eftir að hafa verið sakaður um að stinga fjölskyldumeðlim
Quincy Promes, hollenskur landsliðsmaður og leikmaður Ajax, var handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna stunguárásar. Hann tjáði sig um helgina í fyrsta skipti um ásakanirnar.

Banna flug frá Bretlandi vegna nýja afbrigðisins
Nokkur Evrópulönd hafa gripið til þeirra ráða að banna samgöngur frá Bretlandi og hefur flugi til að mynda verið aflýst. Er þetta gert vegna þess nýja afbrigðis kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi og er talið vera sjötíu prósent meira smitandi en önnur afbrigði.

Öllum skólum og flestum verslunum í Hollandi lokað
Yfirvöld í Hollandi hafa boðað hertari aðgerðir til þess að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Þetta verður í annað sinn sem svo harðar aðgerðir eru teknar í gildi en nú verður öllum skólum og verslunum lokað í minnst fimm vikur.

Hollenskur landsliðsmaður handtekinn fyrir að stinga fjölskyldumeðlim
Hollenski landsliðsmaðurinn Quincy Promes hefur verið handtekinn fyrir að stinga fjölskyldumeðlim með hníf.

Hollendingar vísa meintum njósnurum Rússa úr landi
Yfirvöld í Rússlandi hafa vísað tveimur meintum njósnurum Rússa úr landi, en báðir voru hluti af umfangsmikilli njósnastarfsemi að sögn hollensku leyniþjónustunnar. Hinir meintu njósnarar voru í landinu sem diplómatar.