Palestína

Seinka atkvæðagreiðslu um nýja vopnahlésályktun
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun kjósa um nýja vopnahlésályktun á mánudag, en ekki í dag, eins og lagt var upp með. Atkvæðagreiðslunni er seinkað til þess að ráðið geti rætt tillöguna betur um helgina.

Hafna tillögu um „brýnt vopnahlé“
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur hafnað ályktun um vopnahlés á Gasaströndinni. Sendiherrar Rússlands og Kína beittu neitunarvaldi ríkjanna til að koma í veg fyrir samþykkt ályktunarinnar, sem lögð var fram af sendiherra Bandaríkjanna.

Er of seint að koma í veg fyrir hungursneyð?
Vannæring er orðinn svo almenn og umfangsmikil á Gasaströndinni að hungursneyð virðist óhjákvæmileg. Nærri því hver einasti íbúi svæðisins eru sagður eiga erfitt með að verða sér út um mat og er búist við að 1,1 milljón manna muni falla inn í alvarlegasta hungurflokk Sameinuðu þjóðanna á komandi vikum.

Segja Rafah síðasta virki Hamas og eru staðráðnir í að fara inn
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, ávarpaði þingmenn í gær og sagðist enn staðráðinn í því að ráðast inn í Rafah þrátt fyrir viðvaranir Bandaríkjanna og fleiri ríkja.

Veita aftur fé til UNRWA
Ísland mun greiða kjarnaframlag landsins til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fyrir 1. apríl. Það framlag samsvarar 110 milljónum króna á ári frá þessu ári til og með ársins 2028.

Ísraelsher ræðst aftur inn á al Shifa sjúkrahúsið í Gasaborg
Ísraelsher hefur ráðist inn á al-Shifa sjúkrahúsið í Gasaborg og fregnir borist af byssubardögum inni og umhverfis sjúkrahúsið. Herinn segir um að ræða hnitmiðaða aðgerð en sjúkrahúsið hafi verið notað sem stjórnstöð Hamas.

Opið bréf til Heru Bjarkar
Sæl Hera, við lásum við þig viðtal sem var unnið upp úr Mannlega þættinum á RÚV. Í því virðist gæta ákveðins misskilnings, að við getum ekki hjálpað fólki eða að staðan á Gaza sé eitthvað sem við getum ekkert gert til að breyta.

Hungrinu beitt sem vopni segir utanríkismálastjóri ESB
Josep Borrell, framkvæmdastjóri utanríkismála hjá Evrópusambandinu, segir hungursneyð beitt eins og vopni á Gasa. Hann segir skort á neyðargögnum á svæðinu „manngerðan harmleik“.

Segir íbúa Gasa ekki geta beðið en ítrekar rétt Ísrael til að verja sig
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur kallað eftir tafarlausu mannúðarhléi á átökum á Gasa en jafnframt ítrekað að Ísraelsmenn eigi rétt á því að verja sig gegn Hamas.

Palestínumenn ekki lengur í forgangi hjá Útlendingastofnun
Umsóknir Palestínumanna um fjölskyldusameiningu njóta ekki lengur forgangs hjá Útlendingastofnun. Ákvörðunin tók gildi í gær í samráði við dómsmálaráðuneytið.

Íslendingar funda með UNRWA
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins sækir í dag fund norrænna þróunarmálaráðherra með framkvæmdastjóra UNRWA, í fjarveru utanríkisráðherra, til að fá upplýsingar um stöðu mála hjá stofnuninni. Kanada og Svíþjóð hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til UNRWA.

Bjartsýn á að þeim takist að koma öllum dvalarleyfishöfum í skjól
Tvær íslenskar konur, sem eru úti í Kaíró í sjálfboðaliðastarfi, eru bjartsýnar á að þeim takist á næstu dögum að bjarga þeim sem hafa dvalarleyfi á Íslandi, og enn eru fastir á Gasa, út af svæðinu. Þær hafi í dag komið öllum 49 dvalarleyfishöfunum á svokallaðan landamæralista.

Kæru Maríu Lilju á hendur Mbl vísað frá
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp á hendur Mbl.is og Árvakri fyrir brot á siðareglum í frétt miðilsins. Ástæðan var sú að María Lilja var hvorki til umfjöllunar í fréttinni né hafði bein tengsl við umfjöllunarefnið.

Segir átökin munu vara fjórar til átta vikur til viðbótar
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur hafnað þeirri staðhæfingu Joe Biden Bandaríkjaforseta að aðgerðir Ísraelsmanna á Gasa séu að gera þeim meiri skaða en þau eru að hjálpa þeim.

Bandaríkjaher lagður af stað til Gasa til að smíða bryggju
Bandaríska herskipinu Frank S Besson ofursti var siglt úr höfn í Virginíu í gær og stefnan tekin á Gasaströndina. Þar stendur til að smíða tímabundna flotbryggju, sem ætlað er að auðvelda afhendingu hjálpargagna.

Mikilvægt fyrir sálrænan bata að fá góðar móttökur
Rauði krossinn býðst til þess að veita öllum sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum sem var bjargað út úr Gasasvæðinu á dögunum áfallahjálp. Sérfræðingur hjá samtökunum segir að geri megi ráð fyrir að flestir þeirra beri mörg áföll á bakinu og því sé mikilvægt fyrir sálrænan bata þeirra að Íslendingar taki vel á móti þeim.

Svíar og Kanadamenn hefja greiðslur á ný
Svíar og Kanadamenn hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) eftir að hafa fryst þær í kjölfar ásakana um aðild starfsmanna samtakanna að hryðjuverkaárásum Hamasliða sjöunda október 2023.

Yndisleg stund sem allir sem eigi fjölskyldur hljóti að skilja
Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað.

Hjartnæmar myndir af endurfundum palestínskra fjölskyldna
Á áttunda tug palestínskra flóttamanna komu í dag til landsins í dag eftir að hafa hlotið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Þau komu með rútu frá Keflavíkurflugvelli fyrr í kvöld og tóku fjölskyldur þeirra við þeim með faðmlögum, kossum og gleðitárum.

Höfundur sigurlagsins fylgir laginu ekki út í lokakeppnina
Ásdís María Viðarsdóttir, einn höfunda sigurlags Söngvakeppninnar Scared of Heights segir að samviska sín leyfi henni ekki að fylgja laginu út í lokakeppnina.

Palestínskar fjölskyldur í skýjunum með langþráða endurfundi
Fjölskyldur Palestínumannanna sem komu frá Gasa til Íslands í dag bíða óþreyjufull eftir að sjá ástvini sína eftir margra ára aðskilnað í tilfelli þeirra margra í húsnæði á vegum Rauða krossins í Reykjavík.

Fimm dóu þegar hjálpargögn lentu á þeim
Að minnsta kosti fimm manns eru sagðir hafa látið lífið þegar hjálpargögn sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Gasaströndina úr lofti í gær lentu á þeim. Fallhlíf allavega eins vörubrettis opnaðist ekki og það féll til jarðar á miklum hraða.

Palestínskar konur í broddi fylkingar
Frelsi og mannréttindi palestínskra kvenna verða í forgrunni í kvennagöngu sem gengin verður frá Arnarhóli síðdegis í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Skipuleggjandi hvetur fólk til að fjölmenna í gönguna, það hafi sjaldan verið mikilvægara.

Ábyrgð BNA á þjóðarmorðinu á Gaza
Framganga stjórnvalda í Bandaríkjunum (BNA), sem ítrekað hafa beitt neitunarvaldi innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafarlausa stöðvun árása á Gasa, er forkastanleg og ber skilyrðislaust að fordæma.

Bandaríkjamenn hyggjast reisa bráðabirgðahöfn á Gasa
Bandaríkjamenn hyggjast reisa tímabundna höfn við strendur Gasa til að greiða fyrir umfangsmiklum flutningum neyðargagna til svæðisins. Frá þessu greindi Joe Biden Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni í gær.

Hróp og köll gerð að Bjarna
Hróp og köll voru gerð að utanríkisráðherra þegar hann hélt erindi í Veröld- Húsi Vigdísar í hádeginu. Mótmælendur eltu Bjarna út úr byggingunni og háreysti heyrðist inn í sal. Vitni segir þó ekkert uppnám hafa skapast.

Vongóður um að stjórnvöld geti staðið við kjarnagreiðslu til UNWRA
Utanríkisráðherra segist vongóður um að íslensk stjórnvöld geti staðið við kjarnagreiðslu til palestínuflóttamannaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNWRA, í ljósi þeirrar vinnu sem hefur verið unnin í ráðuneytinu.

Hamas bæta við kröfur sínar og viðræðurnar í sjálfheldu
Viðræður milli Ísraelsmanna og Hamas um vopnahlé á Gasa virðast í sjálfheldu og heldur hefur dregið úr vonum að hlé verði gert á átökum fyrir Ramada, föstuhátíð múslima, sem hefst á sunnudag.

Ísraelar gefa grænt ljós á ný hús á landtökusvæðunum
Ríkisstjórn Ísraels hefur samþykkt áætlanir sem gera ráð fyrir því að um 3400 ný heimili verði reist á landtökusvæðum á Vesturbakkanum.

Nokkrir tugir sem hafa dvalarleyfi á Íslandi enn fastir á Gasa
Stofnandi Solaris hjálparsamtakanna gerir athugasemd við íslensk stjórnvöld hafi bara sótt sjötíu og tvo Gasabúa út af svæðinu en ekki alla sem hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameingar. Nokkrir tugir Palestínumanna sem hafa dvalarleyfi á Íslandi eru enn fastir á Gasa. Sjálfboðaliðar hyggjast bjarga þeim ef stjórnvöld gera það ekki.