Kjaramál
144 145 146 147 148 149 150 151 152 … 157 ›
Boða vinnustöðvun á sunnudag vegna launadeilu Farþegar geta búist við töluverðri röskun á flugi til og frá landinu á sunnudagsmorguninn ef af vinnustöðvun starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli verður. Trúnaðarmenn starfsfólks hafa staðið í árangurslausum viðræðum við stjórnendur Icelandair í tvo mánuði og upp úr sauð á fundi starfsfólks í gærkvöldi. Framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar segir málið í skoðun. Erlent 21.6.2006 07:14
Vill að lífeyriskjör verði reiknuð upp til launa Formaður VR vill að lífeyriskjör æðstu embættismanna verði með sambærilegum hætti og almennra launþega en að núverandi lífeyriskjör þeirra verði reiknuð upp til launa. Hann skorar á stjórnvöld að lýsa yfir vilja til breytinga á kerfinu. Innlent 16.6.2006 22:53
Ríkisstjórnin verði að koma að hugsanlegri sátt Forseti ASÍ vill að ríkisstjórnin komi að hugsanlegri sátt við Samtök atvinnulífsins sem hugsuð er til að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga í haust. Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina vilja leggja sitt af mörkum til að ná böndum á verðbólgunni. Innlent 2.6.2006 19:16
20 prósent dýrara en yfirvinna Íslendinganna Það verður 20 prósent dýrara að fá danska hjúkrunarfræðinga til starfa á Landspítalanum en að fá íslenska hjúkrunarfræðinga til að manna vaktirnar í yfirvinnu. Stjórnendur spítalans segja þetta hins vegar tryggja mönnun á þeim vöktum sem Danirnir eru ráðnir á meðan á sumarfríum starfsmanna stendur. Innlent 23.5.2006 16:51
Samið um kaup í Fjarðaáli Í dag var gengið frá kjarasamningum fyrir þá starfsmenn sem koma til með að vinna hjá álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði. Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls, Starfsgreinafélags Austurlands, Rafiðnaðarsambands Íslands og Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar skrifuðu undir vinnustaðasamninginn í dag. Innlent 17.5.2006 16:06
Samþykktu nýgerðan samning við OR Félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkur sem vinna hjá Orkuveitu Reykjavíkur samþykktu í dag nýjan kjarasamning sem gerður var í fyrradag. Tæplega helmingur félaganna, eða 108 manns, neytti atkvæðisréttar síns og sögðu 85 prósent já við samningnum. Kjaraviðræður hafa staðið lengi en síðasti kjarasamningur rann út 1. desember síðastliðinn. Innlent 17.5.2006 15:16
Greiða atkvæði um samning við OR Félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar greiða í dag atkvæði um kjarasamning við Orkuveitu Reykjavíkur. Samningurinn, sem er fyrsti sjálfstæðis kjarasamningurinn sem félagið gerir við Orkuveituna verður kynntur félagsmönnum síðdegis. Að kynningu lokinni verða greidd atkvæði um samninginn. Innlent 17.5.2006 13:47
Ekkert verður af setuverkfalli Ekkert verður af setuverkfalli stuðningsfulltrúa hjá svæðisskrifstofum fatlaðra sem átti að hefjast í kvöld. Trúnaðarmenn starfsmanna samþykktu nýgerðan stofnanasamning á fundi í hádeginu og var hann undirritaður klukkan þrjú. Innlent 15.5.2006 15:56
Ræðst hvort verður af setuverkföllum Það ræðst í hádeginu hvort stuðningsfulltrúar sem vinna hjá svæðisskrifstofum fatlaðra fara í setuverkfall í kvöld eða ekki. Trúnaðarmenn stuðningsfulltrúa sitja nú fund með forystu SFR þar sem farið er yfir samning sem fulltrúar SFR og svæðisskrifstofa fatlaðra náðu samkomulagi um í gær. Innlent 15.5.2006 12:08
Samningar vegna sambýla nást væntanlega í kvöld Reikna má með að samningar takist í kjaraviðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra í kvöld. Samningsaðilar hafa fundað um helgina með góðum árangri, en um er að ræað launahækkanir fyrir starfsmenn á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða innan svæðisskrifstofanna, á Skálatúni og hjá Styrktarfélagi vangefinna. Innlent 14.5.2006 14:11
Góður gangur í viðræðum SFR og svæðisskrifstofa Góður gangur er í viðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra. Jafnvel er búist við að samningar náist um helgina og þannig verði hægt að afstýra setuverkföllum á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða. Innlent 12.5.2006 12:20
Hefja kjaraviðræður á ný Viðræður SFR og svæðisskrifstofa fatlaðra um kjör stuðningsfulltrúa hefjast aftur á morgun. Upp úr viðræðunum slitnaði fyrir nokkrum vikum en fram kemur á vef SFR að samningafundir hafa verið boðaðir á morgun og föstudag. Innlent 10.5.2006 22:01
Vilja semja við sveitarstjórnarmenn Opinberir starfsmenn á Suðurlandi vilja að sveitarstjórnarmenn semji við þá um kaup og kjör frekar en að fela Launanefnd sveitarfélaga fullnaðarumboð til saminga. Innlent 9.5.2006 14:58
Útlit fyrir að komið verði til móts við launakröfur Útlit er fyrir að komið verði til móts við launakröfur ófaglærðra starfsmanna á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum sem eru í eigu ríkisins eða þar sem ríkið greiðir laun. Starfsmenn á sumum stofnananna ræða hvort hætta eigi við fyrirhuguð setuverkföll sem boðuð hafa verið. Innlent 9.5.2006 12:33
Vilja gagnsæi í starfskjörum þingmanna og ráðherra Samtök atvinnulífsins segja að ekki skapist sátt um starfskjör kjörinna fulltrúa ef þau verði áfram ógagnsæi og ákvörðuð á mörgum stöðum. Þau vilja að þingmenn og ráðherrar deili lífeyriskjörum með öðrum í landinu en miðað við núverandi stöðu geta lífeyriskjör ráðherra umfram almenna launþega eftir þrjú kjörtímabil verið ígildi yfir 100 milljóna króna starfslokagreiðslu. Innlent 4.5.2006 22:58
Fjölmenni í kröfugöngu Fjöldi fólks tekur þátt í kröfuganga dagsins í Reykjavík sem lagði upp frá Hlemmi fyrir hálftíma sem upphafið að hátíðahöldum á baráttudegi verkalýðsins. Nú er fólk að safnast saman á Ingólfstorgi þar sem útifundur hefst tíu mínútur yfir tvö. Innlent 1.5.2006 13:58
Gjá milli ASÍ og verkalýðsfélaga Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýnir forystu Alþýðusambands Íslands harðlega í pistli á heimasíðu verkalýðsfélagsins. Hann segir gjá hafa myndast milli ASÍ og fjölda verkalýðsfélaga. Innlent 1.5.2006 09:49
Rætt hvort halda eigi aðgerðum áfram á Hrafnistu Neyðarástand skapast á dvalar- og hjúkrunarheimilum ef ekki semst við ófaglært starfsfólk á allra næstu dögum. Deilan strandar á svari frá fjármálaráðherra segir formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Nú klukkan hálfeitt var boðað til neyðarfundar á Hrafnistu í Reykjavík þar sem ekki er samstaða meðal starfmannanna um hvort halda eigi setuverkfalli til streitu. Innlent 28.4.2006 12:34
Sex stéttarfélög semja við LN Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svokölluð HugGarðsfélög en Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra fræða og Stéttarfélag lögfræðinga samþykktu samninginn með öllum greiddum atkvæðum. Innlent 28.4.2006 08:59
Setuverkfall á a.mk. sex dvalarheimilum Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á að minnstakosti sex dvalar- og hjúkrunarheimilum á suðvesturlandi hófst á miðnætti vegna óánægju starfólks þar yfir því að fá laun sín ekki hækkuð til jafns við laun annarsstaðar fyrir sambærilega vinnu, fyrr en í upphafi næsta árs. Innlent 28.4.2006 08:33
Setuverkfall á miðnætti Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst á miðnætti. Á fundi starfsmannanna í dag var ákveðið að boða til viku setuverkfalls. Þeir eru ósáttir við ákvarðanir forsvarsmanna heimilanna um að hækka laun einhliða og talsmaður starfsmanna býst við fjöldauppsögnum á næstunni. Innlent 27.4.2006 22:44
Kjarasamningar sex félaga samþykktir Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svo kölluð HugGarðsfélög. Innlent 27.4.2006 21:17
Óttast að laun verkafólks lækki Laun verkafólks geta versnað til muna ef lagafrumvarp um frjálsa för austur-evrópskra launamanna verður að lögum segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Alþingi tekur frumvarpið fyrir á morgun. Innlent 27.4.2006 20:27
Aftur í setuverkfall Ófaglærðir starfsmenn hjúkrunarheimila fara í setuverkfall í kvöld til að knýja á um kjarabætur. Starfsmennirnir hafa tvisvar sinnum áður farið í setuverkfall en frestuðu aðgerðum í þriðja sinn meðan þeir biðu eftir boði um betri kjör. Þeim þótti boðið sem barst óásættanlegt og hefja því aðgerðir á ný. Innlent 27.4.2006 17:06
Skiptar skoðanir um hvort hætta eigi við aðgerðir Skiptar skoðanir eru um það meðal ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hvort hætta eigi við boðað setuverkfall á miðnætti annað kvöld og hugsanlegar fjöldauppsagnir. Vinnuveitendur þeirra ætla að hækka launin, en ekki með þeim hætti sem starfsmenn vildu. Innlent 26.4.2006 18:40
Vilja að hækkanir taki strax gildi Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu ákváðu að hækka laun ófaglærðs starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum eftir að það slitnaði upp úr viðræðum þeirra í dag. Talsmaður starfsmannanna segir þessa einhliða ákvörðun ekki eðlilega starfshætti og segir að hækkunin hefði strax átt að taka gildi. Innlent 25.4.2006 23:37
Samningafundur í dag ráði miklu um framhaldið Samningafundur í kjaradeilu starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum, sem hefst klukkan eitt í dag, ræður miklu um framhaldið og hvort til setuverkfalls og jafnvel uppsagna starfsmanna kemur. Formaður Eflingar er ekki bjartsýnn eftir að deilan hljóp í hnút á fundi í gærkvöldi. Innlent 25.4.2006 12:21
Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra á elliheimilum Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst klukkan tvö hjá ríkissáttasemjara. Það eru fulltrúar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem sitja fundinn en þeir reyna að ná sáttum fyrir föstudag til að koma í veg fyrir að vikulangt setuverkfall skelli á og í framhaldinu fjöldauppsagnir. Innlent 24.4.2006 12:43
Samningfundi lauk án sátta en tillaga þó lögð fram Samningafundi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna kjaradeilu ófaglærðra stafsmanna á dvalarheimilum lauk nú á sjötta tímanum án þess að sættir næðust en svo virðist sem það þokist í samkomulagsátt. Að sögn Jóhanns Árnasonar, formanns SFH, var lögð fram tillaga á fundinum sem forsvarsmenn ófaglærðra ætla að skoða um helgina. Innlent 21.4.2006 18:15
Mikil aukning félagsmanna Rúmlega hundrað nýir félagar bættust í Verkalýðsfélag Húsavíkur á fundi stjórnar og trúnaðarráðs fyrr í vikunni. Þetta er rúmlega tífalt meira en venja er til á slíkum fundum. Innlent 21.4.2006 09:32