Skeiða- og Gnúpverjahreppur

„Upp með pelana og fjörið“
Smölun er nú að ljúka eftir níu daga rekstur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Vísir var að sjálfsögðu á staðnum og náði tali af hinum knáa fjallkóngi Guðmundi Árnasyni, sem hafði reyndar takmarkaðan tíma til að spjalla við blaðamann.

Virkjanaleyfið kært aftur
Önnur kæra hefur borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna veitingar Orkustofnunar á virkjanaleyfi fyrir vindorkuver í Búrfellslundi. Að þessu sinni eru það náttúruverndarsamtökin Náttúrugrið sem kæra.

Að skapa sér stöðu og heimta pening!
Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er því slegið upp að Skeiða- og Gnúpverjahreppur sé að skapa sér stöðu og að sveitarfélagið hafi heimtað greiðslu frá Landsvirkjun til þess að Landsvirkjun fengi að byggja Búrfellslund.

Framkvæmdaleyfi að hluta í höfn fyrir lundinn umdeilda
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að veita Landsvirkjun leyfi til framkvæmda vegna vindorkuversins Búrfellslundar við Vaðöldu.

Rangar fullyrðingar forstjóra Landsvirkjunar – kafli 2
Áfram held ég fjalla um þær rangfærslur sem komu fram í Speglinum á Rás 2, miðvikudaginn 4. september, þegar rætt var rætt við forstjóra Landsvirkjunar um Búrfellslund. Fyrir þá sem sáu ekki greinina mína frá því í gær undir á visir.is, Rangar fullyrðingar forstjóra Landsvirkjunar – kafli 1, þá er um að gera að byrja á því að lesa hana áður en þú heldur áfram.

Gæti tafið virkjanaframkvæmdir um tvö ár og skaðað samfélagið
Forstjóri Landsvirkjunar segir kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjanaleyfi Búrfellslundar geta tafið framkvæmir um tvö ár og skaðað samfélagið sem þurfi á orkunni að halda. Hreppurinn hafi ekkert með útgáfu framkvæmdaleyfis að gera og hafi ekki nýtt sér ítrekuð tækifæri til athugasemda.

Meirihluti vill að hið opinbera nýti vindinn
Mikill meirihluti þjóðarinnar telur mikilvægt að vindorkuframleiðsla sé í höndum opinberra aðila, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Helmingur þjóðarinnra er hlynntur fyrirhugaðri vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi.

Rangar fullyrðingar forstjóra Landsvirkjunar – kafli 1
Í Speglinum á Rás 2 í gær, miðvikudaginn 4. september, var rætt við forstjóra Landsvirkjunar. Viðtalið var rúmar 7 mínútur og átti ég í fullu fangi við að punkta niður allar þær röngu fullyrðingar sem forstjórinn hélt fram. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin eyrum hvað var hægt að koma fyrir mörgum staðreyndavillum á framfæri á jafn stuttum tíma!

Skeiða- og Gnúpverjahreppur kærir leyfi vegna Búrfellslundar
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti í gær að fela oddvita í samráði við lögmenn að kæra virkjunarleyfið sem Orkustofnun hefur gefið út fyrir Búrfellslund til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Segir sveitarfélögin á landsbyggðinni „eins og þriðja heims ríki“
„Ég hef sagt það í langan tíma að þessi sveitarfélög úti á landi sem eru með orkumannvirki eru eins og þriðja heims ríki þar sem aðrar þjóðir koma og taka auðlindirnar og fara með þær.“

Hver þvælist fyrir hverjum!
Það var ánægjulegt að lesa grein Ásmundar Friðrikssonar í Morgunblaðinu í gær undir fyrirsögninni „Verst af öllu að þvælast fyrir“. Gott er að vita að þingmaðurinn sé sammála málflutningi mínum þegar kemur að tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga af orkumannvirkjum.

Ekki lengur hægt að valta yfir lítil sveitarfélög úti á landi
Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir ekkert munu verða af áformum um uppbyggingu grænnar orkuvinnslu án þess að tekjur sveitarfélaga þar sem orkuvinnslan fer fram verði tryggð.

Haraldur baunar á forstjóra Landsvirkjunar
Haraldur Þór Jónsson, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ósammála fullyrðingum Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, um umfangsmikið samráð við hagaðila tilætlaðs vindorkuvers í Búrfellslundi við Vaðöldu. Haraldur vænir Landsvirkjun um vindasöm vinnubrögð í stað vandasamra.

Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund
Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum.

Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið
Orkustofnun veitti í dag virkjunarleyfi fyrir vindorkuverið Búrfellslund við Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Landsvirkjun hyggst þar byggja upp fyrsta vindorkuver landsins. Gert er ráð fyrir að 28 til 30 vindmyllur rísi sunnan Sultartangastíflu á 17 ferkílómetra svæði og uppsett afl verði um 120 megavött.

Þjórsárdalur heillar og synt í Gjánni
Stöng og Gjáin í Þjórsárdal eru vinsælir ferðamannastaðir og ekki síst fossinn í Gjánni þar sem margir vaða eða stinga sér jafnvel til sunds eins og ekkert sé.

Íslenskir jöklar minnka um fjörutíu ferkílómetra á ári
Heildarflatarmál íslenskra jökla minnkar um það bil um 40 ferkílómetra á ári, eða sem nemur einu Mývatni á ári. Frá aldamótum hefur flatarmál íslensku jöklanna minnkað um um það bil 850 ferkílómetra eða sem samsvarar næstum tíu Þingvallavötnum. Hop íslensku jöklanna er sagt skýrt merki um hlýnandi loftslag. Jöklafræðingar segja áríðandi að fylgjast vel með og minna á alvarlega stöðu.

Ófagleg vinnubrögð HSU og FSRE
Mikil umræða er þessa dagana um heilsugæslumál í Uppsveitum Árnessýslu. Engan skal undra þar sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hafa ákveðið að flytja Heilsugæsluna í Laugarási að Flúðum.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur enn Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps greiddu atkvæði samhliða forsetakosningum um helgina um hvort breyta skyldi nafni hreppsins. Íbúar ákváðu að halda í nafnið og því lifir Skeiða- og Gnúpverjahreppur.

Fór á sveitaball og keypti kálfa á klósettinu
Það var ævintýraþráin og hvatvísin varð til þess þau Ása Sif og Ævar Austfjörð ákváðu nokkuð óvænt að gerast bændur, þá bæði komin yfir fertugt.

Fjármálastjórinn orðinn sveitarstjóri
Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps í gær lagði Haraldur Þór Jónsson, oddviti og sveitarstjóri, fram tillögu að nýju skipuriti fyrir sveitarfélagið og óskaði jafnframt eftir því að fjármálastjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Sylvía Karen Heimisdóttir, tæki við starfi sveitarstjóra frá og með deginum í gær og út kjörtímabilið.

Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen
Það var ævintýraþráin og hvatvísin varð til þess þau Ása Sif og Ævar Austfjörð ákváðu nokkuð óvænt að gerast bændur, þá bæði komin yfir fertugt.

Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur
Orkumál eru formanni Samfylkingarinnar hugleikinn en að mati hennar þarf fimm terawött af orku í viðbót fyrir landið, sem yrði um fjórðungs aukning á næstu tíu árum. Þá vill Samfylkingin verja um 20 milljörðum til viðbótar á ári til nýfjárfestinga og viðhalds á samgönguinnviðum.

Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum
Samfylkingin segist staðráðin í því að rjúfa það sem hún kallar framkvæmdastopp í valdatíð núverandi ríkisstjórnar í orkumálum. Mikilvægt sé til dæmis að Hvammsvirkjun verði að veruleika.

Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar
Ellefu landeigendur við bakka Þjórsár hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu og Landsvirkjun og freista þess að fá felld úr gildi með dómi leyfi Fiskistofu og heimild Umhverfisstofnunar fyrir Hvammsvirkjun frá því fyrr í þessum mánuði. Hafa þeir fengið flýtimeðferð í málinu.

Hætta með Pizzavagninn eftir tuttugu ára rekstur
Petrína og Björgvin Þór hafa ekið Pizzavagninum um uppsveitir Árnessýslu í tuttugu ár en ætla að hætta rekstri í vikunni. Óvissa er um það hvort einhver taki við rekstrinum. Pizzavagninn verður á balli á Flúðum á miðvikudaginn og hættir eftir það.

Svín drekka bjór af bestu lyst
Svínum þykir bjór góður og er hann meðal annars notaður til að örva mjólkurframleiðslu gyltna þegar þær eru með grísi á spena.

Búrfellslundur – fyrir hvern?
Landsvirkjun vinnur hart að undirbúningi á því að byggja Búrfellslund þessa dagana. Svo hart að þrátt fyrir að Búrfellslundur sé ekki kominn í skipulag sveitarfélagsins sem hann á að rísa í og Orkustofnun hafi ekki gefið út virkjanaleyfi, þá er samt búið að bjóða út vindmyllurnar, það liggur svo mikið á!

Segir áætlaðan vindmyllugarð alfarið innan marka Rangárþings ytra
Landsvirkjun segir greinilega einhvern misskilning á ferð hjá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps um staðsetningu áætlaðrar uppbyggingar vindmyllugarðs. Fyrirhugaður Búrfellslundur sé alfarið innan marka nágrannasveitarfélagsins Rangárþings ytra.

Hella sér yfir Landsvirkjun vegna útboðs á vindmyllum
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps mótmælir harðlega vinnubrögðum Landsvirkjunar við undirbúning útboðs á vindmyllum við Vaðöldu. Sveitarstjórnin segir að uppbyggingu vindmyllugarðs myndi vinna gegn hagsmunum nærsamfélagsins og valda óbætanlegu tjóni til framtíðar.