Ísafjarðarbær

Líðan hins slasaða sögð stöðug
Líðan karlmanns sem slasaðist í alvarlegu slysi við tengivirki í Breiðadal í gær er sögð stöðug. Maðurinn fékk í sig mikinn straum og féll úr töluverðri hæð.

Fluttur með sjúkraflugi suður eftir alvarlegt slys í Önundarfirði
Alvarlegt slys varð í spennistöð Orkubús Vestfjarða á fjórða tímanum í dag. Einn var fluttur slasaður með sjúkrabíl til Ísafjarðar en var skömmu síðar fluttur með sjúkraflugi Mýflugs suður til Reykjavíkur. Straumleysi varð í Önundarfirði eftir að slysið varð og er verið að skoða aðstæður.

Styttist í opnun Dýrafjarðarganga
Endaspretturinn er hafinn í lokafrágangi Dýrafjarðarganga og standa vonir til að unnt verði að opna jarðgöngin um miðjan október. Þau leysa Hrafnseyrarheiði af hólmi og stytta vesturleiðina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um 27 kílómetra.

Lætur gott heita eftir hálfa öld af bakstri: „Einhvern tímann tekur allt enda“
Gamla bakaríið var stofnað árið 1871 af Þorsteini Þorsteinssyni og er næstelsta bakarí landsins. Það hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í heila öld. Skellt verður í lás í nóvember.

Bein útsending: Skoska leiðin kynnt til leiks
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar á í dag klukkan eitt, þar sem kynna á skosku leiðina svokölluðu, sem mun reyndar fá nýtt nafn frá og með deginum í dag.

„Erum ekkert endilega sérlega gott bisnessfólk“
Tjöruhúsið á Ísafirði mun opna aftur.

Berfætt í slæmu ástandi á Ísafirði
Stúlka í slæmu ástandi, berfætt og í náttfötum, svaf öryggis síns vegna af sér í fangaklefa á Ísafirði í síðustu viku.

Engin ný smit á Vestfjörðum síðan fyrir helgi
Fjórir eru smitaðir af COVID-19 á Vestfjörðum.

Borgarverk fellst á ákvörðun Vegagerðar um Dynjandisheiði
„Við gerum ekki athugasemdir við ákvörðunina. Ákvörðunin er rétt miðað við forsendur útboðsins,“ segir Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks ehf., um þá ákvörðun Vegagerðarinnar að hafna tilboði fyrirtækisins í fyrsta áfanga Dynjandisheiðar.

Vegagerðin hafnar lægsta tilboðinu í Dynjandisheiði
Vegagerðin hefur hafnað lægsta tilboði í endurbyggingu þjóðvegarins yfir Dynjandisheiði vegna reynsluleysis verktakans af stórverkum og þess í stað ákveðið að semja við þann verktaka sem átti næstlægsta boð.

Lögregla innsiglar Tjöruhúsið á Ísafirði
Lögreglan á Vestfjörðum lokaði og innsiglaði veitingastaðinn Tjöruhúsið á Ísafirði í umboði Ríkisskattstjóra í gær.

Tveir smitaðir á Ísafirði, tólf í sóttkví
Tólf manns hafa verið settir í sóttkví eftir að tvö ný kórónuveirusmit greindust á Ísafirði í dag. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða segir að unnið sé að smitrakningu með sýnatökum og mótefnamælingum.

100 milljón króna Eurojackpot-vinnningsmiði keyptur á Ísafirði
Stálheppinn miðahafi á Íslandi vann alls 95,6 milljónir króna í annan vinning í Eurojackpot í kvöld. Miðinn var keyptur á N1 á Ísafirði. Miðahafinn heppni var með fimm tölur réttur og eina bónustölu.

Hömlulaust á Hlíf eftir neikvæð sýni
Öllum hömlum sem settar voru á íbúa á hjúkrunarheimili Hlíf á Ísafirði síðastliðið laugardagskvöld hefur nú verið aflétt.

Herða leitina að uppruna smitsins vegna mótsagnakenndra niðurstaðna
Íbúi á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði, sem greindist með kórónuveiruna á laugardag fór aftur í sýnatöku í vikunni. Í þeirri sýnatöku fannst veiran ekki í íbúanum. Hefur mótefnamæling einnig leitt í ljós að íbúinn er ekki með mótefni fyrir veirunni.

Líður illa með að hafa ekki „heillegan söguþráð“ vegna smitsins á Hlíf
Enn hefur ekki tekist að rekja uppruna kórónuveirusmitsins sem kom upp á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði.

Ekkert nýtt smit greindist á Ísafirði
Fjölskyldumeðlimir íbúans á Hlíf voru skimaðir fyrir kórónuveirunni í gær sem og aðrir sem eru í sóttkví vegna smitsins.

Ekki búið að rekja uppruna smitsins á Hlíf
Íbúi á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði, sem er á níræðisaldri hefur greinst með kórónuveiruna og hafa nítján íbúar Hlífar verið skikkaðir í sóttkví vegna smitsins. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða segir að enn sé ekki búið að rekja uppruna smitsins.

Smit í íbúðahúsum eldri borgara á Ísafirði
Íbúi á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði hefur greinst smitaður af kórónuveirunni og hafa 19 íbúar Hlífar í kjölfarið verið skikkaðir í tveggja vikna sóttkví.

Lítil flugvél magalenti á Ísafirði
Lítil flugvél með einn innanborðs lenti í hremmingum á Ísafjarðarflugvelli á fimmta tímanum í dag.

Ókeypis þátttaka í nýsköpunarhemil á Þingeyri
Í október verður haldinn nýsköpunarhemill á Þingeyri sem tólf frumkvöðlum er boðin þátttaka í, þeim að kostnaðarlausu. Fimm reynslumiklir mentorar taka einnig þátt í verkefninu.

Öld frá stofnun öflugrar bókaverslunar á Ísafirði
Á þessu ári eru liðin 100 ár frá því Jónas Tómasson hóf rekstur bókaverslunar á Ísafirði sem þrjár kynslóðir ráku síðan í 86 ár en í dag rekur Penninn Eymundsson verslunina. Í dag var opnuð sýning á munum og ljósmyndum úr rekstrinum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Tveir greindust á Vestfjörðum
Tveir einstaklingar hafa greinst með kórónuveirusmit á Vestfjörðum.

Mikið að gera í ferðaþjónustu á Ísafirði í sumar: „Íslendingar skemmtilegastir því þeir éta og drekka allan daginn“
Ferðamenn hafa streymt til Ísafjarðar í sumar þar sem mikið hefur verið að gera í ferðaþjónustunni. Hótelstjóri segir gaman að fá Íslendinga vestur þar sem þeir bæði drekki og borði mikið.

Halda til leitar að pari á Hornströndum
Björgunarsveitir úr bæjum Ísafjarðardjúps hafa verið kallaðar út vegna ungs pars í vanda á milli Fljótavíkur og Hlöðuvíkur á Hornströndum.

Fyrstu kaflarnir kláraðir á einu ári á Dynjandisheiði
Vegagerðin hefur boðið út tvo fyrstu kaflana í endurnýjun vegarins um Dynjandisheiði, samtals um tíu kílómetra langa. Góð sátt virðist ríkja um þessa áfanga og er ekki vitað til þess að neinn hafi lýst andstöðu við þær veglínur sem núna eru boðnar út.

Ferðamenn á tveimur þyrlum lentu í friðlandi Hornstranda
Þyrluflug og –lendingar eru bannaðar í friðlandinu og hefur Umhverfisstofnun kært málið til lögreglu.

Grjót féll úr hlíðum með miklum drunum á Ísafirði vegna úrkomunnar og kindur leituðu skjóls í göngum
Mikil rigningarspá gékk eftir í gærkvöldi og í nótt á Vestfjörðum. Grjót féll úr hlíðum með miklum drunum á Ísafirði síðdegis vegna úrkomunnar og kindur leituðu skjóls í Vestfjarðargöngum.

Móttaka Rauða krossins á Suðureyri opin áfram í kvöld og nótt
Rauði krossinn á Ísafirði opnaði fyrr í dag móttöku á Suðureyri vegna mikilla aurskriða og grjóthruns úr hlíðum fyrir ofan bæinn. Miðstöðin verður opin áfram í kvöld og í nótt vegna veðurs.

Stóreflis björg hrynja úr hlíðum ofan Ísafjarðarbæjar
Ísfirðingurinn Teitur Magnússon er pollrólegur þó stóreflis björg séu að hrynja niður hlíðina ofan heimilis hans.