Sjálfstæðisflokkurinn

Fréttamynd

Hjónasjálfa, gleði og faðm­lög í Við­ey

Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið.

Innlent
Fréttamynd

„Orð hennar og þessar upp­hrópanir ekki til sóma“

Búast má við kröftugum lokaspretti í umræðu um þingsályktunartillögu varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi en umræðan þarf að klárast í dag ef fyrirhuguð dagsetning á að halda. Þingkona Sjálfstæðisflokksins talar fyrir tveimur breytingartillögum og segir orðræðu utanríkisráðherra henni ekki til sóma. 

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki frið­þægingu

Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu.

Innlent
Fréttamynd

„Á­kveðin svik við úr­slit kosninganna“

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki.

Innlent
Fréttamynd

Hildur Björns­dóttir nýr borgar­stjóri

Hildur Björnsdóttir verður nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar en þau munu skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027.

Innlent
Fréttamynd

Svona kynntu oddvitarnir nýjan meiri­hluta í Við­ey

Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson, oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík, kynntu nýtt meirihlutasamstarf flokkanna í borgarstjórn á fréttamannafundi í Viðey sem hófst klukkan 11:10 í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur, Við­reisn og Fram­sókn mynda meiri­hluta

Náðst hefur samkomulag milli oddvita Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að mynda meirihluta í Reykjavíkurborg. Þetta herma heimildir fréttastofu. Miðflokkurinn hefur ekkert heyrt í oddvita Sjálfstæðisflokksins síðan á föstudag. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Viðey upp úr klukkan ellefu.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Hildur valdi Við­reisn og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn hafa myndað tólf manna meirihluta í Reykjavík. Skipting verka og áherslur meirihlutans voru kynnt á blaðamannafundi í Viðey upp úr klukkan ellefu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í októ­ber

Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. 

Innlent
Fréttamynd

Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstu­dag

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekkert heyrt í Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, síðan á föstudag. Ekki er von á tíðindum af meirihlutaviðræðum í borginni í dag en dregið gæti til tíðinda á morgun. Hildur var fjarverandi á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Kveðju­stund í ráð­húsinu

Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu fór fram í dag. Gríðarleg endurnýjun er í borgarstjórn en sextán borgarfulltrúar hverfa á braut og sextán nýir koma inn í þeirra stað.

Lífið
Fréttamynd

Sann­færður um að finna eitt­hvað spennandi að gera

Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylkingin í Hafnarfirði náðu samkomulagi um meirihlutasamstarf í gær og nú stendur til að kynna málefnasamning á blaðamannafundi í Hamranesi klukkan fimm í dag. Valdimar Víðisson oddviti Framsóknarflokksins er sáttur við störf sín sem bæjarstjóri en finnst miður að vera ekki á leið í meirihluta. 

Innlent
Fréttamynd

Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi

Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Hamast í því að koma í veg fyrir að Mið­flokkurinn komist að“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, óttast að Sjálfstæðismenn í Reykjavík sniðgangi Miðflokkinn og stökkvi frekar í sæng með Viðreisn og Framsókn. Hann kveðst heyra að „hamast“ sé innan Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að, þrátt fyrir að hann telji megni sjálfstæðismanna vilja samstarf við Miðflokkinn í höfuðborginni.

Innlent
Fréttamynd

D og B endur­nýja heitin í Fjarða­byggð

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Flokkarnir hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2024.

Innlent
Fréttamynd

Enginn kaus Bjarna eða Brynjar

Hugtakið lýðræði felur í sér að lýðurinn ráði, kjósendur velji fulltrúa til setu í sveitarstjórnum eða á alþingi. Veruleikinn er annar. Lýðræðið er mjög takmarkað. Í flestum tilvikum hefur valið þegar farið fram innan stjórnmálaflokkanna áður en kjósendur mæta á kjörstað.

Skoðun
Fréttamynd

Hildur vilji Einar í meiri­hluta hvernig sem fer

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref.

Innlent