
Reykjavík síðdegis

Segir rangt að fólk með ADHD sé útilokað frá lögreglunni
Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, segir reglur um einstaklinga með ADHD innan lögreglunnar ekki hafa verið hertar.

Kominn tími til að rannsaka innihaldsefni íslenskra bláberja
Allt of lítið er vitað um íslensk ber til að hafa traustar upplýsingar um hollustu þeirra.

Mikil aukning kvenna sem taka í vörina
Mikil aukning hefur orðið í notkun kvenna á munntóbaki á síðustu tveimur árum. Þetta sagði Viðar Jensson hjá Landlæknisembættinu í Reykjavík síðdegis í dag.

Segir skipulagsgalla hafa valdið röðinni á Ed Sheeran
"Mér leið náttúrulega bara hræðilega., gjörsamlega skelfilega. Það eru náttúrulega allir sítengdir og fólk stendur bara í röðinni og hraunar yfir okkur, sem er skiljanlegt,“ segir Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdarstjóri Senu Live, um röðina sem myndaðist fyrir utan tónleikasvæði Ed Sheeran á laugardaginn.

Herskáir risamaurar væntanlegir til landsins
Þorkell Heiðarsson, líffræðingur og deildarstjóri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, segir maurana ekki eiga nokkra möguleika á því að lifa af úti í náttúrunni hér á landi. Þess vegna verða þeir í góðu yfirlæti í búrum garðsins.

Efast um að gjöld Póstsins á erlendar sendingar standist EES-samninginn
Frá og með 3. júní síðastliðnum hefur svokallað sendingargjald verið innheimt af Póstinum vegna sendinga frá útlöndum. Nýja gjaldið, sem lagðist ofan á önnur innflutningsgjöld, var lagt á erlendar sendingar í kjölfar þess að Alþingi samþykkti viðauka við póstlög sem heimilaði gjaldtökuna.

Bjarkey segir að koma þurfi í veg fyrir stórtæk eignakaup
"Það skiptir í raun engu máli hvort aðilinn er erlendur eða innlendur í sjálfu sér heldur fyrst og fremst að það sé ekki bara keypt í kippum hérna,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.

Fordæmi fyrir því að hægt sé að fá ösp nágrannans fellda
Trjágróður á það til að spretta upp og sums staðar úr hófi, á einhverjum stöðum má sjá garðeigendur hamast við að grisja gróðurinn í garðinum en hvenær eru tré orðin of há? Hvenær eru tré farin að valda skemmdum eða spilla sólartíma nágranna?

Ráðherra segir misskilning tefja umræðu um nýjan þjóðarleikvang í handbolta
Misskilningur milli HSÍ og ríkisins gerir það að verkum að engar viðræður hafa átt sér stað um nýjan þjóðarleikvang fyrir handbolta á Íslandi.

Borgin hafi mögulega greitt of mikið fyrir fasteign í Vesturbænum
Páll Heiðar Pálsson, fasteignasali, segir kaupverðið vera töluvert yfir því sem gengur og gerist með eignir af þessari stærðargráðu.

Segir námsárangur nemenda aukast ef skólahaldi yrði seinkað
Rannsóknir hafa sýnt að námsárangur nemenda eykst ef skóli byrjar seinna á daginn og því gæti breyting á skólatíma verið til hins betra. Þetta kom fram í viðtali við Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti, í Reykjavík síðdegis í dag.

Fjórir skólar og enn fleiri leikskólar í nýja hverfinu
Þá er ekki útilokað að þar muni einnig rísa nýtt húsnæði undir framhaldsskóla.

„Við þurfum bara að laga okkur að nútímanum“
"Ég efast að við þurfum að breyta miklu. Við erum núna með möguleikann á deildarskiptingu innan nýja fangelsisins á Hólmsheiði þannig að nei, ég held að þetta verði alls ekki vandamál hjá okkur,“ sagði Páll Winkel, fangelsismálastjóri, í tengslum við nýsamþykkt lög um kynrænt sjálfræði.

Fólk tilkynni falsauglýsingar á samfélagsmiðlum
Falsauglýsingar sem beinast að Íslendingum hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum undanfarið.

Nýjar áskoranir vegna rafbílavæðingar: „Menn geta bara fengið banvænan straum“
Rafbílavæðingunni fylgir nýjar áskoranir fyrir slökkviliðsmenn sem hafa nú þurft að temja sér breytt vinnubrögð í umgengni sinni við rafbílana. Ekki þurfi þó að óttast nýjar áskoranir því þvert á móti sé mikilvægt að finna leiðir til að aðlagast nýjum og umhverfisvænni veruleika.

Tekur við stóru verkefni með opnum huga
"Allt sem maður gerir snýst um að vinna með fólki, ekki síst að skapa tónlist og vera í hljómsveitum. Það nýtist gríðarlega í að vinna hefðbundnari vinnu.“

Mikil aukning í sölu á BDSM klæðnaði og búnaði
Eigandi Adam og Evu ræddi málið við félagana í Reykjavík síðdegis.

Framkvæmdastjóri Eurovision gerði úttekt á Kórnum og Egilshöll í vor
Jon Ola Sand framkvæmdastjóri Eurovision kom hingað til lands í vor og skoðaði Kórinn og Egilshöll sem vænlegt húsnæði undir keppnina, kæmi til þess að Ísland bæri sigur úr býtum.

Bensínstöðvar í þéttri íbúðabyggð fyrstar til að fara
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags-og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, segir að bensínstöðvar sem staðsettar eru inni í þéttri íbúðabyggð verði fyrstar til að fara en þær sem eru staðsettar við stofnbrautir aftur á móti síðastar.

Hafnar því að Söknuður byggi á Danny Boy
Jóhann Helgason, tónlistarmaður, hafnar því að lag hans "Söknuður“ sé byggt á írska þjóðlaginu Danny boy eins og lögmenn fyrirtækja, sem Jóhann hefur stefnt vegna líkinda við lagið You Raise Me Up, segja.

40% ökunema falla í fyrstu tilraun við bóklega prófið
40,4% ökunema sem þreyta bóklegt próf, falla í fyrstu tilraun. Fallhlutfall hefur aukist úr 32,9% árið 2017 og 33,3% árið 2016 án þess að sérstakar breytingar hafi verið gerðar á kröfum eða þyngdarstigi prófa.

„Hatrið hefur yfirgefið landið“ og lagt af stað til Tel Aviv
Hópurinn kom saman fyrir utan Útvarpshúsið klukkan 3:45 og flugu úr landi snemma í morgun en millilent verður í London.

Forstjórar Minja- og Mannvirkjastofnunnar munu funda um brunavarnir
Pétur Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun, segir mikilvægt að passa upp á að óbætanleg menningarverðmæti glatist ekki vegna lélegra brunavarna.

Leggur fram breytta bólusetningartillögu: „Eftir hverju er verið að bíða?“
Bólusetningar hafa verið mikið í umræðunni eftir að mislingasmit voru greind í sjö einstaklingum víða um land. Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er ein þeirra sem vill sjá úrbætur í bólusetningum og hefur barist fyrir bólusetningarskyldu í leikskólum borgarinnar.

„Hvernig í ósköpunum stendur á því að þú talar ekki eins góða rússnesku og forseti Íslands?“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heillaði fundarmenn með rússneskukunnáttu sinni þegar hann tók til máls í pallborðsumræðum um norðurslóðir í gær.

Vilja ekki fara sér óðslega
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að ástæðan fyrir þeim töfum sem hafa orðið á undirritun kjarasamninga sé sú að samningagerðin sé tímafrek vinna. Fólk vilji ekki fara sér óðslega. Það sé sérstaklega mikilvægt að vanda til verka í orðalagi samningsins.

Leit að hollensku fjársjóðsskipi heldur áfram
Rætt var við Gísla Gíslason, lögfræðing, í Reykjavík síðdegis í dag, en hann hyggst ekki gefast upp á leit á gullskipinu á Skeiðarársandi þrátt fyrir nokkrar flækjur.

Segir sumarið geta orðið erfitt
Íslensku flugfélögin töpuðu hátt í þrjátíu milljörðum í fyrra

Fljúga alls 7500 strandaglópum heim í kjölfar „sorgardags í íslenskri flugsögu“
Flugfélagið Icelandair mun alls fljúga um 7500 strandaglópum flugfélagsins Wow air, bæði almennum farþegum og áhafnarmeðlimum, til síns heima í kjölfar gjaldþrots síðarnefnda félagsins.

Stofnandi Iceland Express: Hér verða að vera tvö flugfélög
Jóhannes Georgsson, einn af stofnendum flugfélagsins sáluga Iceland Express og fyrsti framkvæmdastjóri þess segir brýnt að tvö íslensk flugfélög sinni flugferðum til og frá landinu. Hann segir það gefa auga leið að farmiðaverð muni hækka með falli WOW air.