
Franski boltinn

Þjálfari franska kvennalandsliðsins neitar að hætta og talar um rógsherferð
Corinne Diacre er þjálfari franska kvennalandsliðsins í fótbolta og vill vera það áfram þrátt fyrir að hafa fengið á sig mikla gagnrýni síðustu vikur.

Mbappe: Leikurinn í kvöld mun ekki ráða framtíð minni hjá PSG
Framtíð Kylian Mbappe hjá Paris Saint-Germain veltur ekki á útkomu leiks liðsins á móti Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld ef marka má viðtal við kappann.

Rekinn fyrir að gera lítið úr kynferðisbroti
Franska fótboltafélagið Angers rak í gær þjálfara sinn Abdel Bouhazama. Ástæðan er ekki bara slæmt gengi liðsins.

Segir að meiðsli Neymars skapi ótrúlegt tækifæri fyrir PSG
Meiðsli Neymars búa til ótrúlegt tækifæri fyrir knattspyrnustjóra Paris Saint-Germain, Christophe Galtier. Þetta segir Christophe Duggary, fyrrverandi landsliðsmaður Frakklands.

Fer með PSG til München þrátt fyrir að hafa verið kærður fyrir nauðgun
Achraf Hakimi, hægri bakvörður París Saint-Germain, mun ferðast með liðinu til München þar sem síðari leikur PSG og Bayern í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram. Hakimi var nýverið sakaður um nauðgun og hefur verið kærður vegna málsins.

Neymar undir hnífinn og frá næstu þrjá til fjóra mánuðina
Vonir Frakklandsmeistara París Saint-Germain um að vinna Meistaradeild Evrópu minnkuðu til muna í dag þegar staðfest var að Brasilíumaðurinn Neymar þurfi að fara í aðgerð á hægri ökkla. Verður hann frá næstu þrjá til fjóra mánuðina.

Mbappé markahæstur í sögu PSG
Franska stórstjarnan Kylian Mbappé varð í gærkvöld, laugardag, markahæsti leikmaður í sögu franska knattspyrnuliðsins París Saint-Germain. Hann hefur nú skorað 201 mark í aðeins 247 leikjum fyrir félagið.

Hakimi sætir rannsókn eftir ásakanir um nauðgun
Marokkóski fótboltamaðurinn Achraf Hakimi, varnarmaður PSG í Frakklandi, sætir rannsókn eftir að hafa verið sakaður um nauðgun.

Neymar missir af seinni leiknum á móti Bayern
Paris Saint-Germain þarf að sætta sig við það að spila án Brasilíumannsins Neymar í leiknum mikilvæga á móti Bayern München í Meistaradeildinni.

Handhafi markametsins á HM látinn
Just Fontaine, sem á metið yfir flest mörk skoruð í einni heimsmeistarakeppni, er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Toulouse.

Hakimi hafnar ásökunum um nauðgun
Marokkóski fótboltamaðurinn Achraf Hakimi, varnarmaður PSG í Frakklandi, hefur vísað á bug ásökunum um nauðgun. Hann er sagður sæta lögreglurannsókn vegna gruns um að hafa nauðgað konu um síðustu helgi.

Hættur eftir ásakanir um kynferðislega áreitni og fleiri hneyksli
Hinn afar umdeildi Noël Le Graët er endanlega hættur sem forseti franska knattspyrnusambandsins, eftir að hafa meðal annars verið sakaður um kynferðislega áreitni.

Hakimi sakaður um nauðgun
Samkvæmt franska miðlinum Le Parisen hefur kona sakað hinn gifta tveggja barna föður Achraf Hakimi, leikmann París Saint-Germain, um að hafa nauðgað sér.

Mbappe upp að hlið Edinson Cavani
Kylian Mbappe mun eigna sér markametið hjá franska stórveldinu PSG innan skamms.

Messi og Mbappe sáu um Marseille
PSG vann öruggan sigur á Marseille í stórleik helgarinnar í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Óvænt endurkoma Tuchel til Parísar í kortunum
Thomas Tuchel gæti óvænt tekið við París Saint-Germain á nýjan leik en hann var rekinn frá liðinu í desember 2020. Núverandi þjálfari, Christophe Galtier, fær til 8. mars til að bjarga starfi sínu.

Dramatískur sigur PSG sem missti tvo menn af velli vegna meiðsla
Frakklandsmeistarar París Saint-Germain virtust hafa hent frá sér tveggja marka forystu gegn Lille í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Leiknum lauk með 4-3 sigri PSG sem missti bæði Nuno Mendes og Neymar af velli vegna meiðsla.

Eigendur Chelsea og PSG hittust og ræddu möguleg kaup á Neymar
Paris Saint-Germain vill losa sig við brasilíska knattspyrnumanninn Neymar og það lítur út fyrir að enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hafi áhuga.

Kynlífsmyndband tekið upp á vellinum þar sem Ísland vann sinn fræknasta sigur
Forráðamenn franska knattspyrnuliðsins Nice eru ósáttir þessa dagana eftir að þeir komust að því að kynlífsmyndband var tekið upp inni á salerni á heimavelli félagsins.

PSG úr leik í bikarnum
Marseille gerði sér lítið fyrir og sló risalið PSG út úr frönsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld.

Messi tryggði PSG stigin þrjú í endurkomusigri
Lionel Messi tryggði Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain 2-1 endurkomusigur er liðið tók á móti Toulouse í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Mbappé klúðraði vítaspyrnum, meiddist og missir af Meistaradeildarleik
Kylian Mbappé, framherji Paris Saint-Germain, vill eflaust gleyma gærkvöldinu sem fyrst þrátt fyrir 3-1 sigur liðsins gegn Montellier í frönsku úrvalsdeildinni í gær. Mbappé misnotaði tvær vítaspyrnur áður en hann fór meiddur af velli strax á 21. mínútu leiksins.

Arsenal strákur markahæstur í frönsku deildinni: Ofar en Mbappe og Neymar
Folarin Balogun skoraði þrennu fyrir Reims í frönsku deildinni í gær og er þar með orðinn markahæsti leikmaðurinn í Ligue 1.

Mbappé klikkaði á vítaspyrnu og meiddist | Barcelona fékk á sig mark
Stórliðin París Saint-Germain og Barcelona unnu bæði sigra þegar þau juku forskot sitt á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta og þeirri spænsku.

Nýliðarnir fá þrefaldan Evrópumeistara
Nýliðar Nottingham Forest hafa fengið markvörðinn Keylor Navas á láni frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain.

Sektaðir um 3,8 milljónir fyrir hvern leik sem þjálfarinn stýrir liðinu
William Still er að skapa sér nafn í fótboltaheiminum enda að gera mjög flotta hluti með franska liðið Reims.

Reims náði að jafna í uppbótartíma gegn PSG
Stórskotalið PSG tókst ekki að leggja Reims að velli í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Chelsea áfram með veskið opið
Hinn 19 ára gamli Malo Gusto er búinn að skrifa undir samning við Chelsea. Hann mun þó ekki ganga í raðir Lundúnafélagsins fyrr en í sumar.

Mbappé skoraði fimm þegar PSG skoraði sjö
Frakklandsmeistarar París Saint-Germain unnu einstaklega þægilegan sigur á 6. deildarliði Pays de Cassel í frönsku bikarkeppninni í kvöld.

Greiðir 370 milljónir króna vegna miða á fótboltaleik
Sádi-arabíski fasteignamógúllinn Mushref Al-Ghamdi hefur greitt andvirði 370 milljóna íslenskra króna fyrir miða á fótboltaleik í kvöld. Miðanum fylgja nefnilega ýmis konar fríðindi.