Viðreisn

Meirihlutinn í Reykjavík fallinn og Framsókn í stórsókn
Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna, jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkurinn tapi tveimur borgarfulltrúum frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn er í stórsókn og fengi þrjá borgarfulltrúa.

Reykjanesbrautin í stokk – lífsgæðabylting fyrir íbúa Kópavogs
Nú hefur verið kynnt niðurstaða úr hugmyndasamkeppni um nýja sýn fyrir næsta uppbyggingaráfanga Glaðheimasvæðisins. ASK arkitektar báru sigur úr býtum en vinningstillagan gerir ráð fyrir nútímalegu og sjálfbæru hverfi með áherslu á mannvænt og spennandi miðbæjarumhverfi fyrir Kópavog.

Grænar og ábyrgar fjárfestingar til framtíðar
Garðabær hefur verið í örum vexti undanfarin ár svo eftir hefur verið tekið. Vexti sem hefur laðað að sér fjölbreytta flóru af nýjum íbúum, ungu fólki á öllum aldri og af ólíkri fjölskyldustærð og samsetningu.

Ný hugsun, nýr heimur
Heimurinn hefur skroppið saman á síðustu árum, með aðstoð tækninnar erum við ekki lengur bundin við innlendan atvinnumarkað. Margir leita í dag að tækifærum í þekkingariðnaði þvert á landamæri, landshluta og sveitarfélagamörk á sama tíma og þau kjósa að búa áfram í heimabænum.

Guðmundur nýr fréttastjóri Markaðarins
Guðmundur Gunnarsson, fréttamaður og fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hefur verið ráðinn fréttastjóri Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins. Hann hóf störf í morgun en Guðmundur er með meistaragráðu í viðskiptafræði og starfaði sem fréttamaður á RÚV árin 2006 til 2011.

Þegar upp er staðið!
Það er aðdáunarvert að sjá hvað barátta Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar hefur skilað miklu. Á sama tíma og það er sorglegt að lögbundin réttindi fatlaðs fólks ná ekki öll fram að ganga.

Snemmtækur stuðningur í þágu velferðar barna og samfélagslegrar hagsældar
Mikilvægasti tíminn þegar kemur að þroska og velferð barna er tíminn frá getnaði til tveggja ára aldurs. Með góðum grunni á þessum mikilvæga tíma getum við aukið líkur á farsæld barna inn í framtíðina sem skilar sér einnig í samfélagslegri hagsæld.

Lilja boðar breytingu á skattaumhverfi frjálsra fjölmiðla
Sérstök umræða um stöðu fjölmiðla fór fram á þinginu fyrr í dag. Þingflokksformaður Viðreisnar var málshefjandi. Flestir sammála um fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og kölluðu eftir heildstæðri stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu. Ráðherra boðar skattaaðgerðir en vill ekki stofna „enn eina nefndina” til að greina stöðuna.

Þjóðarleikvangar og brostin loforð ríkisstjórnarinnar
Þjóðarleikvangar okkar Íslendinga, fyrir bæði inni- og útiíþróttir, eru börn síns tíma og standast ekki nútímakröfur. Ekki fyrir leikmenn, ekki fyrir starfsfólk og ekki fyrir áhorfendur. Þetta vita allir sem það vilja vita. Þar á meðal ríkisstjórn VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem síðustu 5 ár hefur reglulega hrist loforðapokann sinn svo það hefur glumið duglega í. Í pokanum er meðal annars loforð um nýja þjóðarleikvanga.

Ekkert fundarboð vegna „mikilmennskuæðis“ stjórnarflokkanna
Í morgun var fjármálaáætlun til næstu fimm ára kynnt en það fórst fyrir að bjóða tveimur áheyrnarfulltrúum stjórnarandstöðunnar í fjárlaganefnd á kynninguna. Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, sagði á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins að hann hefði fylgst með tölvupóstinum sínum til miðnættis í von um fundarboð en það barst aldrei.

Gylfi leiðir Í-listann og Arna Lára er bæjarstjóraefni
Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, mun leiða lista Í-listans á Ísafirði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 14. maí. Arna Lára Jónsdóttir, sem skipar fimmta sæti listans, er hins vegar bæjarstjóraefni listans.

Bjarney leiðir lista Samfylkingar og Viðreisnar í Borgarbyggð
Bjarney Bjarnadóttir, grunnskólakennari og meistaranemi í forystu- og stjórnun, mun leiða framboðslista Samfylkingarinnar og Viðreisnar í komandi sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara þann 14. maí næstkomandi.

Frían mat í grunnskóla Kópavogs
Viðreisn í Kópvogi vill að börn fái frían mat í grunnskólum. Heitur matur í hádeginu, ávextir og grænmeti er mikilvægt lýðheilsumál og mikilvæg forgangsröðun í þágu velferða. Það kostar hins vegar peninga og hvar ætlum við að fá þá?

Lovísa leiðir lista Viðreisnar í Mosfellsbæ
Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi, mun leiða lista Viðreisnar í Mosfellsbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi.

Jón Ingi leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði
Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi mun leiða lista Viðreisnar í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara 14. maí. Framboðslisti flokksins var samþykkur á félagsfundi í gærkvöldi.

Virkt lýðræði og áhrif íbúa
Við í Viðreisn viljum miklu meira samtal við íbúa og auka lýðræðislega þátttöku í ákvörðunum. Sérstaklega þeim sem snúa að nærumhverfinu. Við viljum ganga lengra en núverandi lýðræðisstefna og tryggja virkt samráð við ákvarðanatöku á einstaka verkefnum og framkvæmdum.

Ísland getur stutt rannsókn á stríðsglæpum Rússlands
Enginn vafi leikur á því í mínum huga að rússneski herinn fremur stríðsglæpi í Úkraínu. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, hefur sagt sannanir fyrir að rússneski herinn hafi beitt klasasprengjum.

Hvenær verða réttindi fatlaðra barna í Garðabæ virt?
Þjónusta við fatlað fólk skal miða að því að fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að geta notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og að skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Þetta er ekki bara skoðun Viðreisnar í Garðabæ á góðri þjónustu, heldur eru þessi skilyrði bundin í lög, skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Leggja til að greiðslumat leigjenda taki mið af greiddri húsaleigu
Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að fjármála- og efnahagsráðherra geri breytingar á reglugerð um lánshæfis- og greiðslumat til að auðvelda fólki á leigumarkaði að kaupa sér íbúðarhúsnæði til eigin nota.

Að bæta kjör sín með fasteignakaupum
Leigumarkaðurinn á Íslandi er gjörólíkur hinum skandinavíska. Hlutdeild leigufélaga á markaði er mun lægri hér, regluverkið annað, leiguverð hærra og húsnæðisöryggi minna. Víða erlendis getur fólk valið hvort það vilji festa peningana sína í fasteign eða búa við sveigjanleika á leigumarkaði. Þar sem best lætur er ekki hægt að segja að annar hópurinn hafi það betra en hinn.

Theodóra leiðir lista Viðreisnar í Kópavogi
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, mun leiða lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí næstkomandi. Listinn var samþykktur á félagsfundi í gærkvöldi.

„Við erum með þingmeirihluta sem treystir ekki þjóðinni“
Þrír stjórnarandstöðuflokkar hafa lagt fram tillögu um að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Formaður Viðreisnar segir mikilvæga hagsmuni í húfi en þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir vilja Alþingis til aðildarumsóknar liggja fyrir. Formaður Viðreisnar segir það miður að þingmeirihluti treysti ekki þjóðinni.

Þrír flokkar vilja kjósa um áframhaldandi ESB-viðræður fyrir árslok
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður lögð fram á Alþingi í dag en þingfundur hófst núna klukkan þrjú.

Framtíð okkar í Evrópu
Ljóst er að innrásin í Úkraínu mun hafa mikil og langvarandi áhrif á sviði alþjóðamála og innan allrar Evrópu. Þegar friði og lýðræði er ógnað með þeim hætti sem við sjáum í dag kallar það á viðeigandi viðbrögð af okkar hálfu.

Stríð sem breytir heimsmyndinni
Stríðið í Úkraínu hefur breytt öllu. Hlutverk stjórnmálanna núna er að bregðast við breyttri heimsmynd af ábyrgð. Það þarf að ræða og mynda skilning á hvaða áhrif hin breytta staða hefur á Evrópu og á Ísland. Út frá því tökum við svo næstu skref.

Þórdís Lóa leiðir Viðreisn í Reykjavík
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir mun leiða lista Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún sigraði í prófkjöri flokksins en Pawel Bartoszek er í öðru sæti og Þórdís Jóna Sigurðardóttir í því þriðja.

Reykjavík hefur opinn faðm
Hér á Íslandi getum við boðið upp á frið, öryggi og samfélag frjálslyndra gilda sem býður fólk velkomið. Sveitarfélög á Íslandi, með Reykjavík í broddi fylkingar, eiga að opna faðminn fyrir flóttafólki sem hingað kemur.

Ábyrg fjármálastjórn? Kanntu annan betri?
Sjálfstæðisflokkarnir tveir, sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, hreykja sér mjög nú í aðdraganda kosninga af ábyrgri fjármálastjórn og láta í veðri vaka að engum öðrum sé treystandi fyrir skattpeningum Hafnfirðinga. Þessari hendingu fylgir aldrei skilgreining á ábyrgri fjármálstjórn né heldur góðum raundæmum um slíka fjármálastjórn.

Diljá kveður borgarpólitíkina ósátt við kosningafyrirkomulag
Diljá Ámundadóttir Zoëga hefur ákveðið að þiggja ekki fimmta sæti á lista Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Núna er rétti tíminn
Núna er ekki rétti tíminn til að ræða þetta segja þeir sem ekki vilja breyta. Hvort það sé húsbóndi sem nennir ekki að fara í það endurgera baðherbergið eða stjórnmálaleiðtogi sem hugnast ekki þær breytingar sem verið er að skoða þá er svarið alltaf að núna sé ekki tími til breytinga.