ÍR

ÍR

Fréttir af Íþróttafélagi Reykjavíkur, ÍR, frá Reykjavík.

Fréttamynd

FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild

ÍR er fallið úr Olís-deild karla. Varð það ljóst eftir sigur FH á ÍR í Kaplakrika í kvöld í lokaumferð deildarinnar. Lokatölur 34-28. FH endar því í öðru sæti deildarinnar og mun mæta Íslandsmeisturum Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem fram undan er.

Handbolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“

„Ég var súper ánægður með strákana í dag. Mjög ánægður með varnarleikinn í fyrri hálfleik og sóknarleikinn líka, mér fannst við bara spila vel,“ sagði Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, eftir tap gegn FH í Kaplakrika í loka umferð Olís-deildar karla. Lokatölur 34-28 og þýða úrslitin að ÍR er fallið niður í Grill-66 deildina.

Handbolti
Fréttamynd

Frank Booker eldri látinn

Frank Booker eldri er látinn 61 árs gamall að aldri. Sonur hans, Frank Aron Booker, greinir frá andláti föður síns núna í morgun.

Körfubolti
Fréttamynd

Lifir draumurinn eða raun­gerist leðju­slagur á botninum?

Lárus Jóns­son, þjálfari Þórs Þor­láks­hafnar, segir leik liðsins gegn ÍR í Bónus deildinni í körfu­bolta í kvöld gríðar­lega mikilvægan. Hans lið þurfi að vinna til að eiga séns á að komast í úr­slita­keppnina, tap þýði að leðju­slagur við botn deildarinnar bíði þeirra.

Körfubolti