Fótbolti
245 246 247 248 249 250 251 252 253 … 334 ›
Allir vilja treyju númer 30: Rosaleg röð fyrir utan PSG-búðina Það er óhætt að segja að það sé áhugi á vörum með Lionel Messi í verslun franska liðsins Paris Saint Germain. Fótbolti 11.8.2021 08:30
Messi mun spila í treyju númer 30 hjá PSG Lionel Messi gekk í raðir franska stórliðsins París-Saint Germain eins og hefur eflaust ekki farið framhjá einu einasta mannsbarni. Messi hefur feril sinn með PSG með sama númer á bakinu og hann hóf ferilinn hjá Barcelona á sínum tíma, 30. Fótbolti 11.8.2021 07:30
Arnar Hallsson: Sjáum til eftir næstu umferð en þá getum við kannski farið að hugsa um Wembley eða eitthvað stærra Reynir Haraldsson reyndist hetja ÍR-inga í kvöld þegar þeir slógu út Fjölni í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í Grafarvoginum fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 2-3 ÍR í vil en öll mörk ÍR komu á fimm mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks þar sem Reynir skoraði þau öll. Fjölnir var með forystu í hálfleik en detta út því leikmenn liðsins slökktu á sér á þessum kafla. Þjáflari ÍR, Arnar Hallson var að vonum í skýjunum með leik liðsins og úrslitin. Íslenski boltinn 10.8.2021 20:27
Birkir neitaði tilboði Crotone | SPAL áhugasamt Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er enn samningslaus eftir að hafa spilað með Brescia í ítölsku B-deildinni á síðustu leiktíð. Hann sagði takk en nei takk við B-deildarlið Crotone um liðna helgi og því enn óvíst hvar hann mun spila á komandi leiktíð. Fótbolti 10.8.2021 18:00
Abraham á leið til Rómar og kapallinn fullkomnaður Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur samþykkt 34 milljón punda tilboð ítalska liðsins Roma í hinn 23 ára gamla Tammy Abraham samkvæmt heimildum Sky Sports. Þar mun hann spila undir stjórn José Mourinho, fyrrum stjóra Chelsea. Fótbolti 10.8.2021 14:31
Lof og last 16. umferðar: Sigurður Heiðar, Skagamenn skoruðu mörkin, óvæntur Rodri og frammistaða HK 16. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar. Íslenski boltinn 10.8.2021 14:11
Bætti á sig vöðvum til að bjarga ferlinum á Old Trafford Hollenski miðjumaðurinn Donny van de Beek hefur verið orðaður frá Old Trafford nánast frá því að félagið keypti hann frá Ajax. Leikmaðurinn nýtti það litla sumarfrí sem hann fékk til að bæta á sig vöðvum og virðist ætla að láta til sín taka í vetur eftir að hafa eytt nær öllu síðasta tímabili á varamannabekknum. Enski boltinn 10.8.2021 13:30
Guðbjörg í þjálfarateymi Eskilstuna Guðbjörg Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands og atvinnumaður í knattspyrnu, var ekki lengi að finna sér starf eftir að hafa lagt hanskana á hilluna. Fótbolti 10.8.2021 12:57
Segir það hlutverk lífs síns að vera eigandi Wrexham og mun alls ekki nota hugtakið „soccer“ Hollywood-stjarnan Ryan Reynolds hefur leikið nokkur stór hlutverk til þessa á lífsleiðinni. Að hans mati er þó ekkert stærra en að vera eigandi knattspyrnufélagsins Wrexham sem spilar í ensku E-deildinni um þessar mundir. Enski boltinn 10.8.2021 12:00
Segir að Messi verði tilkynntur síðar í dag Samkvæmt öllu ætti Lionel Messi að verða leikmaður París-Saint Germain í dag. Fótbolti 10.8.2021 10:25
Markasyrpa 16. umferðar: Öll mörkin úr Garðabænum, frá Akranesi, sigurmark Leiknis R. og öll hin 16. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk með einum leik í gær. Breiðablik vann þá 3-1 sigur á Stjörnunni er liðin mættust í Garðabæ. Hér að neðan má sjá öll mörkin úr leiknum sem og öll mörk umferðarinnar. Íslenski boltinn 10.8.2021 10:01
Handahófskenndar athuganir í upphafi tímabils á Englandi Enska úrvalsdeildin hefur tilkynnt að það verða gerðar handahófskenndar athuganir á leikvöllum deildarinnar í upphafi tímabils. Fólk sem ætlar sér að fara á leiki mun þurfa sýna fram á bólusetningu eða vera með neikvætt sýni sem er tekið innan við 48 tímum fyrir leik. Enski boltinn 10.8.2021 09:00
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 1-3 | Blikasigur í kveðjuleik Mikkelsens Breiðablik vann 3-1 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í lokaleik 16. umferðar Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik er fjórum stigum frá toppliði Vals og á leik inni á Íslandsmeistarana. Íslenski boltinn 9.8.2021 18:31
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þróttur R. 2-2 | Þróttur náði í stig í lokin Selfoss og Þróttur gerðu 2-2 jafntefli í 14. umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta á Selfossi í kvöld. Liðin eru jöfn að stigum í töflunni. Íslenski boltinn 9.8.2021 18:31
Newcastle að ganga á kaupunum á miðjumanninum efnilega frá Arsenal Enska knattspyrnufélagið Newcastle United er við það að ganga frá kaupum á enska miðjumanninum Joseph George Willock sem sló í gegn í norðurhluta Englands á síðustu leiktíð. Talið er að kaupverðið sé í kringum 22 milljónir punda. Enski boltinn 9.8.2021 17:02
Þeir voru í bölvuðum vandræðum í fyrri hálfleik Kjartan Atli Kjartansson og félagar í Stúkunni fóru yfir uppspil KA er liðið gerði 2-2 jafntefli við Víking í Pepsi Max deild karla um helgina. Þó Akureyringar hafi jafnað metin undir lokin voru þeir í stökustu vandræðum framan af leik. Íslenski boltinn 9.8.2021 16:30
Íhuga að fá Håland til að leysa Lewandowski af hólmi Þýskalandsmeistarar Bayern München íhuga nú kaup á Erling Braut Håland, framherja Borussia Dortmund, til að leysa hinn margreynda Robert Lewandowski af hólmi. Sá síðarnefndi kom einnig frá Dortmund á sínum tíma. Fótbolti 9.8.2021 14:31
Áfall fyrir Fylki: Bryndís Arna viðbeinsbrotin og frá út tímabilið Fylkir rær lífróður í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu og gat því vart fengið verri fregnir en þær að aðalmarkaskorari liðsins, Bryndís Arna Níelsdóttir, hafi viðbeinsbrotnað og verði ekki meira með liðinu á leiktíðinni. Íslenski boltinn 9.8.2021 14:00
Markasúpa gærdagsins: Sigurmark Leiknis, mörk Skagamanna, fyrsta mark Stefáns Árna og óvænt tvenna Alls fóru fimm leikir fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu um helgina. Í þeim voru 14 mörk skoruð og má sjá þau öll hér að neðan. Íslenski boltinn 9.8.2021 12:30
Meistarar Manchester City mæta laskaðir til leiks Phil Foden verður frá í mánuð vegna meiðslanna sem héldu honum á hliðarlínunni er England tapaði fyrir Ítalíu í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í síðasta mánuði. Manchester City mætir með laskað til leiks er enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi. Enski boltinn 9.8.2021 11:30
Hljóp inn á til að húðskamma Carrasco og lét dómara leiksins fá það óþvegið í leikslok Diego Simeone, þjálfari Spánarmeistara Atlético Madríd, verður seint talinn rólegur í skapinu. Hann missti stjórn á skapi sínu er lið hans tapaði 2-1 gegn Feyenoord frá Hollandi um helgina. Fótbolti 9.8.2021 10:31
Guðbjörg leggur hanskana á hilluna Hin margreynda Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur ákveðið að leggja markmannshanskana á hilluna. Hún mun þó vera áfram tengd fótbolta en vill ekki gefa upp hvað framtíðin ber í skauti sér. Fótbolti 9.8.2021 09:31
Hefði ekki mátt spila launalaust með Barcelona Lionel Messi hefur yfirgefið spænska stórveldið Barcelona og mun að öllum líkindum semja við franska knattspyrnufélagið París-Saint Germain síðar í dag. Vegna regluverks La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, gátu Börsungar ekki samið við Argentínumanninn á nýjan leik þar sem hann hefði ekki mátt spila launalaust með félaginu. Fótbolti 9.8.2021 08:00
Stuðningsfólk Tottenham klappaði Saka lof í lófa Erkifjendurnir Tottenham Hotspur og Arsenal mættust í vináttuleik í gær. Stuðningsfólk beggja liða klappaði Bukayo Saka lof í lófa er hann kom inn af varamannabekk Arsenal eftir rúmlega klukkutíma leik. Enski boltinn 9.8.2021 07:31
Kanadísku stelpurnar Ólympíumeistarar eftir vítakeppni Kanada tryggði sér sitt fyrsta Ólympíugull í knattspyrnu kvenna eftir sigur á Svíþjóð í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Fótbolti 6.8.2021 14:55
Trump: Konan með fjólubláa hárið spilaði hræðilega Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir að Megan Rapinoe og vinstri sinnuðu brjálæðingarnir í bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta hafi kostað það gullið á Ólympíuleikunum í Tókýó. Fótbolti 6.8.2021 12:01
Færa úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum vegna mikilla hita Kanada og Svíþjóð spila til úrslita í knattspyrnukeppni kvenna á Ólympíuleikunum í Tókýó og þau fengu í gegn breytingar á leiktíma. Fótbolti 5.8.2021 16:01
Sonur Michaels Ballack lést í fjórhólaslysi Emilio, sonur Michaels Ballack, lést í fjórhjólaslysi í Portúgal í morgun. Hann var átján ára. Fótbolti 5.8.2021 12:23
Bandarísku stelpurnar tryggðu sér bronsið eftir mikinn markaleik Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta klúðraði tækifærinu á að spila um gullið á Ólympíuleikunum í Tókýó en þær unnu bronsið í dag eftir sjö marka leik. Fótbolti 5.8.2021 09:56
Rannsaka slagsmál í flugvélinni á leiðinni heim frá Ólympíuleikunum Knattspyrnusamband Ástralíu og Rúgbýsamband Ástralíu eru komin af stað með rannsókn eftir að fréttir bárust af slagsmálum á milli liðsmanna tveggja landsliða þjóðarinnar á leið heim frá Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 3.8.2021 14:30