Erlend sakamál
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 23 ›
Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu Lögregluyfirvöld á Íslandi áttu aðkomu að aðgerðum á dögunum sem miðuðu að því að taka niður dulkóðaðan samskiptamiðil sem notaður var til skipulagðrar glæpastarfsemi. Innlent 18.9.2024 09:32
Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, neitaði sök þegar hann var dreginn fyrir dómara í New York í gær. Erlent 18.9.2024 06:57
Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum Fyrrverandi heimilislæknir í bænum Frosta í Noregi hefur verið ákærður fyrir að brjóta á 96 konum, og nauðga 88 þeirra. Erlent 17.9.2024 18:04
„Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Dominique Pelicot, sem byrlaði eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni yfir tíu ára tímabil, bar vitni í réttarhöldunum gegn honum og hinum mönnunum í dag. Þar viðurkenndi hann að hafa nauðgað konu sinni og ítrekaði að hann og hinir fimmtíu mennirnir sem hefðu verið ákærðir í salnum væru nauðgarar. Erlent 17.9.2024 09:33
Blóðug barátta um yfirráð yfir Sinaloa-samtökunum Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, biðlaði á dögunum til leiðtoga Sinaloa-samtakanna, sem berjast nú um yfirráð yfir glæpasamtökunum alræmdu, og bað þá um að sýna ábyrgð. Umfangsmikil ofbeldisalda hefur leikið Culiacan, höfuðborg Sinaloa-héraðsins, grátt á undanförnum dögum. Erlent 17.9.2024 08:02
Ákærur gefnar út og Sean Combs handtekinn í New York Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, var handtekinn á Manhattan í New York í gærkvöldi eftir að ákærur voru gefnar út á hendur honum. Erlent 17.9.2024 06:53
Weinstein ákærður fyrir fleiri kynferðisbrot Saksóknarar í máli Harveys Weinstein, bandaríska kvikmyndaframleiðandans, hafa lagt fram ákæru á hendur honum fyrir enn fleiri kynferðisbrot. Réttað verður aftur yfir Weinstein í New York eftir að dómstóll ógilti dóm sem hann hlaut í vor. Erlent 12.9.2024 18:16
„Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu Dómarar í Avignon í Frakklandi hlýddu í gær á frásögn af því hvernig „lærisveinn“ Dominique Pélicot notaði sömu aðferðir og Pélicot til að byrla eiginkonu sinni og nauðga. Erlent 12.9.2024 07:53
171 handtekinn og 402 börnum bjargað í aðgerðum í Malasíu Lögregluyfirvöld í Malasíu hafa handtekið 171 og bjargað 402 börnum og ungmennum í tengslum við misnotkun á um 20 barnaheimilum í Selangor og Negeri Sembilan. Erlent 12.9.2024 07:27
Árásarmaður Ingunnar í sjö og hálfs árs fangelsi hið minnsta Nemandi sem stakk íslenskan dósent í lyfjafræði við Oslóarháskóla ítrekað í fyrra hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm sem er skilyrtur því að hann svari meðferð og sé ekki metinn hættulegur samborgurum sínum. Refsingin er í takti við kröfu saksóknara. Innlent 11.9.2024 16:15
1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bandaríski rapparinn Sean „Diddy“ Combs var í dag dæmdur til þess að greiða meintum brotaþola 100 milljónir dala, um 1,4 milljarða króna, vegna kynferðisbrots fyrir 27 árum síðan. Erlent 11.9.2024 00:02
Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Dómstóll í Svíþjóð hefur snúið við sýknudómi yfir Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra Swedbank, og dæmt hana í eins árs og þriggja mánaða fangelsi fyrir gróf fjársvik. Viðskipti erlent 10.9.2024 12:45
Siðblindur raðlygari sem sýndi aðra hlið út á við Dominique Pelicot, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni yfir tíu ára tímabil, átti að bera vitni í dag í réttarhöldunum gegn honum og fimmtíu öðrum mönnum í dag. Það gekk hins vegar ekki eftir, vegna veikinda Pelicots, og verður réttarhöldunum mögulega frestað þar til hann hefur náð sér. Erlent 10.9.2024 10:44
Rannsókn hafin en efasemdir uppi um sekt Letby Rannsókn er hafin á því hvernig hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby tókst að myrða sjö börn á tveggja ára tímabili án þess að það kæmist upp. Rannsóknin hefur verið gagnrýnd fyrirfram í kjölfar efasemda um sekt Letby. Erlent 10.9.2024 07:27
Auglýsa eftir upplýsingum um 28 ára gamalt morðmál Europol biðlar til almennings í Evrópu um aðstoð við lausn 28 ára gamals morðmáls þar sem grunur leikur á um að morð hafi verið framið í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi. Erlent 10.9.2024 06:56
Meintir nauðgarar kvarta undan birtingu mynda og nafna Verjendur manna sem hafa verið ákærðir fyrir að nauðga konu eftir að eiginmaður hennar byrlaði henni ólyfjan segjast ætla að leggja fram formlegar kvartanir yfir því að nöfnum þeirra og öðrum upplýsingum hafi verið lekið á netið. Þeir segja myndir hafa verið teknar af þeim í dómsal og að þær hafi einnig verið birtar á netinu, sem fari gegn frönskum lögum. Erlent 9.9.2024 16:08
Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir árásina Móðir unglingspilts sem skaut fjóra til bana í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum hringdi í skólann og varaði við „bráðri neyð“ rétt fyrir árásina. Hún hvatti skólaráðgjafa til að fara og finna son hennar strax. Erlent 9.9.2024 08:55
Umfangsmikil leit að manni sem skaut fimm í Kentucky Skólar í miðhluta Kentucky verða lokaðir í dag vegna leitar lögreglu að manni sem skaut á tólf bifreiðar og særði fimm á þjóðvegi norður af borginni London á laugardag. Erlent 9.9.2024 07:54
Breskar konur stíga fram og ásaka Tate um nauðgun Tvær konur hafa rætt við BBC og lýst því að hafa verið nauðgað af áhrifavaldinum Andrew Tate. Þriðja konan segist hafa verið nauðgað af Tristan, yngri bróður Andrew. Erlent 9.9.2024 07:10
Íslendingur horfir fram á 24 ár í fangelsi til viðbótar Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, hefur fallist á dóm án þess að játa sekt í barnaníðsmáli. Innlent 8.9.2024 09:42
Dæmdur fyrir að drepa bófa sem íslensk kona kom upp um Bandaríski glæpamaðurinn Fotios „Freddy“ Geas hefur hlotið 25 ára fangelsisdóm fyrir að verða hinum alræmda James „Whitey“ Bulger að bana í fangelsi árið 2018. Erlent 7.9.2024 14:36
„Faðir þinn byrlaði mér til að nauðga mér með ókunnugum“ Dóttir Dominique Pélicot, sem fékk 72 menn til að nauðga eiginkonu sinni yfir tíu ára tímabil, hefur lýst honum sem „einum versta kynferðisbrotamanni síðustu tuttugu ára.“ Erlent 7.9.2024 10:25
Refsing Trump í þagnargreiðslumáli ákveðin eftir kosningar Dómari í New York féllst á kröfu verjenda Donalds Trump um að fresta ákvörðun refsingar hans í þagnargreiðslumáli hans þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Sagði hann dómstólinn ekki vilja hafa áhrif á kosningarnar. Erlent 6.9.2024 17:54
Gaf syni sínum byssu þrátt fyrir hótanir um skotárás Faðir Colt Gray, fjórtán ára piltsins sem grunaður er um að hafa myrt fjóra í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn og á yfir höfði sér ákæru. Erlent 6.9.2024 06:50
Hunter Biden breytir afstöðu í skattsvikamáli Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, ætlar að breyta afstöðu sinni til sakarefnis í skattsvikamáli gegn honum í dag. Hann hafði áður lýst yfir sakleysi sínu og heldur því í raun áfram en segist ætla að gangast við þeirri refsingu sem dómarinn telur að hann eigi að hljóta. Erlent 5.9.2024 16:45
„Þeir komu fram við mig eins og tuskudúkku“ Frönsk kona sem nauðgað var ítrekað af ókunnugum mönnum eftir að eiginmaður hennar til fimmtíu ára byrlaði henni yfir tíu ára tímabil, segir lögregluna hafa bjargað lífi sínu með því að koma upp um hann. Réttarhöld yfir manninum og 51 öðrum sem nauðguðu henni standa nú yfir en þau fara fram fyrir opnum dyrum, að kröfu konunnar. Erlent 5.9.2024 10:36
Játar að hafa leyft tugum karla að nauðga konu sinni Einhver umtöluðustu réttarhöld síðustu ára hófust í Frakklandi í vikunni, þar sem verið er að rétta yfir 71 árs manni sem sakaður er um að hafa byrlað eiginkonu sinni til fimmtíu ára um árabil og leyft að minnsta kosti 72 mönnum að nauðga henni. Erlent 4.9.2024 11:40
Berjaforkólfar fyrir dóm vegna mansals Réttarhöld yfir forstjóra stærsta berjafyrirtækis Finnlands og taílenskum viðskiptafélaga hans vegna mansals á berjatínslufólki hófust í Lapplandi í dag. Slæmur aðbúnaður farandverkamanna í finnska berjaiðnaðinum hefur verið í brennidepli síðustu ár. Erlent 3.9.2024 10:22
Játaði á sig hundruð brota gegn 60 barnungum stúlkum Barnaníðingur að nafni Ashley Paul Griffith hefur játað að hafa brotið gegn um það bil 60 stúlkum í Brisbane í Ástralíu og á Ítalíu á árunum 2007 til 2022. Hann hefur þegar verið dæmdur sekur en bíður þess að vera gerð refsing. Erlent 2.9.2024 08:55
Handtekin grunuð um innbrot á 22 lúxus heimili á Ibiza Lögregluyfirvöld á Spáni hafa handtekið þrjá, tvo menn og konu, sem eru grunuð um að hafa brotist inn í fjölda íbúða á Ibiza og notað gas til að slæva heimilisfólk. Erlent 2.9.2024 08:01