Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Samúel Karl Ólason skrifar 20. maí 2026 21:28 Kirk var skotinn til bana þann 10. september á fjölmennum viðburði á lóð háskóla í Utah. AP/Alex Goodlett Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks.
Kirk var skotinn til bana þann 10. september á fjölmennum viðburði á lóð háskóla í Utah. Hann var áhrifamikill og var vinur fjölskyldu Donalds Trump forseta. Sjá einnig: Hver var Charlie Kirk? Fjölmargir misstu vinnuna sína í kjölfarið vegna ummæla um Kirk, sem var mjög umdeildur vestanhafs. Tilvikin þar sem fólk var ákært vegna ummæla eru þó ekki mörg, samkvæmt AP fréttaveitunni. Sjá einnig: Trump-liðar heita hefndum Larry Bushart er 61 árs gamall fyrrverandi lögregluþjónn frá Lexington í Tennesse. Hann var handtekinn þann 22. september og ákærður fyrir að hóta ofbeldi á skólalóð vegna myndar sem hann hafði birt á Facebook. Myndinni deildi hann á Facebooksíðu íbúa í Perry-sýslu þar sem verið var að skipuleggja minningarathöfn vegna morðsins á Kirk. Myndin var af Donald Trump, þar sem hann sagði: „Við verðum að jafna okkur á þessu.“ Það er bein tilvitnun í forsetann og ummæli hans eftir skotárás í skóla í Iowa í janúar 2024. Með myndinni skrifaði Bushart: „Þetta virðist viðeigandi í dag.“ Þá hafði hann bætt við myndina að Trump myndi segja slíkt hið sama eftir skotárás í Perry-sýslu. Nokkrum klukkustundum síðar var hann handtekinn og sakaður um að hafa hótað skotárás í skóla í sýslunni, samkvæmt frétt Tennessean. Bushart sat í varðhaldi í 37 daga, þar til ákæran gegn honum var felld niður. Honum var boðið að losna úr haldi gegn tveggja milljóna dala tryggingu. Á þessum tíma missti hann starf sitt og missti af bæði brúðkaupsafmæli sínu og fæðingu barnabarns síns. Fékk hundrað milljónir í bætur Yfirmaður lögreglunnar í Perry-sýslu hafði haldið því fram að myndin sem Bushart deildi hefði valdið ofsahræðslu í samfélaginu. Bushart höfðaði mál gegn Perry-sýslu, yfirmanni lögreglunnar og lögreglumanninum sem skrifaði handtökuskipunina á hendur honum. Lögmaður Busharts fór þó fram á það við lögregluna og aðra að sjá einhverjar sannanir fyrir þessari hræðslu eða vera vísað á ummæli þar sem fólk lýsti yfir áhyggjum. Forsvarsmenn skólans sögðu það á borði lögreglu en þaðan fékk lögmaðurinn ekkert. Nú hafa forsvarsmenn Perry-sýslu gert samkomulag við Bushart. Hann mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur, sem samvarar rúmum hundrað milljónum króna. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag segist Bushart ánægður með niðurstöðuna og að búið sé að leiðrétta þetta brot á tjáningarfrelsi hans. Það frelsi væri nauðsynlegt í heilbrigðu lýðræði. Þá sagðist hann hlakka til þess að snúa sér að öðru og verja tíma með fjölskyldu sinni. Vilja loka hurðinni á fjölmiðla Lögmenn Tyler Robinson, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða Kirk, fóru í gær fram á það við dómara málsins að hann meinaði fjölmiðlum aðgang að réttarhöldunum þegar þau hefjast í sumar. Þá fóru þeir einnig fram á að hluti sönnunargagna í málinu yrðu ekki opinberuð. Sá hluti réttarhaldanna sem á að vera opinn fjölmiðlum er hluti fyrirtökunnar en hún á að fara fram í byrjun júlí. Saksóknarar ætla að fara fram á dauðarefsingu en Robinson er 23 ára gamall. Saksóknarar vildu ekki að fjölmiðlum yrði meinaður aðgangur að opnum hlutum réttarhaldanna en þeir voru sammála því að ekki ætti að opinbera öll sönnungargögn í málinu, þar sem mögulega þyrfti að rétta aftur yfir Robinson. Dómarinn ætlar að taka ákvörðun um aðgengi fjölmiðla að réttarhöldunum fyrir 1. júní. Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum um myndina sem Burnhart birti.
Bandaríkin Morðið á Charlie Kirk Skotárásir í Bandaríkjunum Donald Trump Erlend sakamál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira