Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
31 32 33 34 35 36 … 36 ›
Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM Bankaráð Landsbankans segir að Bankasýslan hafi verið upplýst um áhuga bankans á að kaupa tryggingafélagið TM í desember og ekki gert neinar athugasemdir fyrr en eftir að tilboð bankans var samþykkt. Bankasýslan ætlar að skipta út fimm bankaráðsmönnum á næstu dögum. Viðskipti innlent 12.4.2024 17:55
Munu skoða að losna strax við TM Bankasýsla ríkisins mun funda með nýju bankaráði Landsbankans að loknum aðalfundi bankans og leggja áherslu á að ráðið meti kaup bankans á TM og leiti leiða til þess að losna við tryggingafélagið. Fyrrverandi fjármálaráðherra vildi að skoðað yrði hvernig væri hægt að losa um eignarhlutinn eins fljótt og auðið er. Viðskipti innlent 12.4.2024 16:53
Bjarkey sögð standa vörð um grímulausa sérhagsmuni Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýbakaður matvælaráðherra er milli steins og sleggju, nýkomin í ráðuneytið. Fjöldi manna hefur gagnrýnt harðlega nýsett lög sem Bjarkey vill verja en hún sat í meirihluta nefndarinnar sem samþykkti þessi sömu lög. Innlent 12.4.2024 13:56
Sara Lind settur orkumálastjóri í kosningabaráttunni Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur nú sett Söru Lind Guðbergsdóttur tímabundið í embætti orkumálastjóra fram til 2. júní. 2024. Þetta er gert vegna óskar Höllu Hrundar Logadóttur um að taka sér tímabundið leyfi frá embætti vegna framboðs síns til embættis forseta Íslands. Innlent 12.4.2024 13:15
Málið sé afgreitt og þar við sitji Nýr matvælaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt vegna þeirrar gagnrýni sem komið hefur fram vegna málsmeðferðar á nýsamþykktum búvörulögum, og meðal annars frá sérfræðingum í hennar ráðuneyti. Hún segir að málið hafi verið afgreitt í þinginu og þar við sitji. Innlent 12.4.2024 11:54
Bjarkey stal senunni á fyrsta ríkisstjórnarfundi Bjarna Ný ríkisstjórn Bjarna Benediktsonar kom saman á sínum fyrsta ríkisstjórnarfundi í morgun. Ríkisstjórnin var kynnt á þriðjudaginn og lyklaskipti fóru fram á miðvikudagsmorgun. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra skartaði rauðri blússu og svörtu pilsi í tilefni dagsins. Lífið 12.4.2024 10:09
Ríkisstjórnin leyfir verðsamráð í Öskjuhlíð Er frelsi og heilbrigð samkeppni bara eitthvað skraut hjá Sjálfstæðisflokknum en ekki raunveruleg stefna? Er það orðið að sjálfstæðu markmiði hans að stuðla að hærra matarverði og þar með hærri verðbólgu og vöxtum? Skoðun 12.4.2024 08:30
Til hamingju, verðsamráð er núna löglegt Kapítalismi án samkeppni er ekki kapítalismi, heldur arðrán. Þetta eru orð Joe Biden, forseta Bandaríkjanna. Án heilbrigðrar samkeppni kemur ekkert í veg fyrir að verðlag sé keyrt upp og hagsmunir neytenda séu hafðir að engu. Skoðun 12.4.2024 08:01
„Þetta stappar nærri spillingu“ Afgreiðsla meirihluta atvinnuveganefndar á búvörulögum stappar nærri spillingu að mati formanns Neytendasamtakanna. Nokkur samtök hafa látið vinna fyrir sig greinargerð um málið, þau útiloka ekki málaferli og segja brotið gegn stjórnarskrá. Innlent 11.4.2024 19:10
Ekki nýjar fréttir að Bjarni sé umdeildur stjórnmálamaður Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar gefur ekki mikið fyrir undirskriftalista gegn Bjarna Benediktssyni, nýjum forsætisráðherra. Það séu ekki nýjar fréttir að hann sé umdeildur stjórnmálamaður. Innlent 11.4.2024 18:38
Engin krafa með undirskriftalistanum önnur en að stjórnvöld líti í eigin barm Kona sem stofnaði undirskriftalista gegn Bjarna Benediktssyni á ekki von á því að listinn muni knýja fram kosningar eða afsögn nýs forsætisráðherra, en hann sé haldbær heimild um hversu lítils trausts hann njóti meðal almennings. Yfir þrjátíu og þrjú þúsund Íslendingar hafa nú skrifað undir. Innlent 11.4.2024 15:01
Atvinnurekendur sligi kerfið með kröfum um vottorð Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að í heilbrigðiskerfinu fari allt of mikill tími í skriffinnsku og alltof lítill tími í að sinna sjúklingum. Innlent 11.4.2024 12:49
Valfrelsi í eigin sparnaði Íslendingar standa framarlega á mörgum sviðum. Af þeim sviðum þar sem við skörum fram úr má færa rök fyrir því að lífeyriskerfið okkar sé það mikilvægasta. Kerfið er talið það annað besta í heimi, sjónarmun á eftir Hollandi, að mati ráðgjafafyrirtækisins Mercer. Skoðun 11.4.2024 12:31
Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega. Innlent 11.4.2024 12:25
„Sláturhúsin standa tóm svo mánuðum skiptir“ Nýr forsætisráðherra svaraði því ekki beint hvort hann hygðist bregðast við harðri gagnrýni, meðal annars frá matvælaráðuneytinu, á vinnubrögð í tengslum við breytingar á búvörulögum en bætti við að spyrja mætti hvort eðlilegar framfarir hefðu átt sér stað hjá afurðarstöðvunum með gamla fyrirkomulaginu. Innlent 11.4.2024 12:11
Bjarkey í bobba vegna umdeildra laga Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Breki Karlsson framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda rituðu harðorða grein þar sem þeir fordæma fortakslaust lög sem þeir vilja kalla ólög. Innlent 11.4.2024 10:52
Ekki sjálfgefið að framhald yrði á stjórnarsamstarfinu „Ég veit bara það að formaður Sjálfstæðisflokksins var í einum viðræðum, sem var við forystumenn þessara flokka, Framsóknar og Vinstri grænna. Hvað aðrir þingmenn eða aðrir hafa verið að ræða sín á milli um stöðuna bara þekki ég ekki til.“ Innlent 11.4.2024 10:52
Trúir þessu einhver? Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er svolítið eins og hljómsveitin sem enginn klappaði upp en mætir samt sem áður aftur á sviðið og tekur enn eitt lagið. En nú undir formerkjunum að þetta sé ríkisstjórn „hins breiða samhengis“ eins og það var orðað í vikunni. Skoðun 11.4.2024 10:30
Þrjátíu þúsund skrifað undir gegn Bjarna og bætist í hópinn Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun. Innlent 11.4.2024 06:37
Handtekin í gær og les Bjarna pistilinn í dag Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi. Innlent 10.4.2024 22:10
Ofbeldismenning í ríkisstjórninni Ég er ekki reið en staðráðin. Í gær var ég handtekin af lögreglunni á Bessastöðum af því í dag, eins og í gær, er ég ekki lengur meðvirk með gerendum þessarar þjóðar. Þegar ég sá fréttir af nýrri stöðu Bjarna Benediktssonar upplifði ég ofbeldi. Það er ofbeldi sem fær að viðgangast gagnvart þjóðinni að þessi maður fái að halda ótrautt áfram að valsa um valdastöður þessarar þjóðar óáreittur. Skoðun 10.4.2024 22:00
Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. Innlent 10.4.2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10.4.2024 19:01
Skömmuð af matvælaráðuneytinu degi áður en hún tók við Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd. Innlent 10.4.2024 16:44
„Þetta er sama fólkið með sömu stefnu í nýjum stólum“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var fyrst upp í ræðupúlt eftir að Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra flutti ávarp sitt á þingi og hún gaf ekki mikið fyrir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar. Innlent 10.4.2024 15:40
Magga Stína hrópaði að Bjarna af þingpöllunum Margréti Kristínu Blöndal, Möggu Stínu, var vísað af pöllum Alþingis eftir að hún hrópaði að forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni á meðan hann flutti yfirlýsingu sína á þingi í dag. Innlent 10.4.2024 15:18
Viss um að Svandís yfirgefi Bjarna eins og Katrín Þingkona Viðreisnar er viss um að ríkisstjórnin lifi ekki af kjörtímabilið. Þingkona Pírata segist þreytt á því að hugsa um það og segist hætt að hugsa um það. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur fullvíst að ríkisstjórnin þrauki fram að kosningum næsta haust. Þetta kom fram í Pallborði á Vísi í dag. Innlent 10.4.2024 14:50
Bein útsending: Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun fara með yfirlýsingu fyrir Alþingi klukkan 15. Þetta er fyrsti þingfundur eftir páskafrí og eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér sem forsætisráðherra og tilkynnti framboð til embættis forseta. Innlent 10.4.2024 14:27
Beitir nýr matvælaráðherra sér fyrir afnámi ólaganna? VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda sendu í síðustu viku erindi til matvælaráðherra (sem þá var Katrín Jakobsdóttir) og fóru fram á að ráðherra beitti sér fyrir því að lögin um víðtæka undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum yrðu tekin til rækilegrar skoðunar, enda væru þau skaðleg neytendum, launþegum og verslun í landinu. Skoðun 10.4.2024 13:00
Tugir bætast við andstæðingahóp Bjarna á hverri mínútu Rúmlega ellefu þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem fólk segir Bjarni Benediktsson ekki hafa þeirra stuðning sem forsætisráðherra. Listinn hefur verið í loftinu í tæpan sólarhring og hrannast tugir undirskrifta inn á hverri mínútu. Innlent 10.4.2024 12:09
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent