Bandaríkin

Fréttamynd

Sagður veru­lega ó­sáttur við gagn­rýni Musks

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður verulega ósáttur við Elon Musk, auðugasta mann heims, og gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og leiðtogar Repúblikanaflokksins eru að reyna að koma gegnum þingið. Musk hefur farið hörðum orðum um frumvarpið og sagst ætla að beita sér gegn þeim þingmönnum sem greiða atkvæði með því.

Erlent
Fréttamynd

Endurvekur ferðabannið

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur endurvakið ferðabann sitt frá 2017 gagnvart íbúum nokkurra múslimalanda, auk nokkurra ríkja til viðbóta. Ríkisborgurum frá alls tólf ríkjum verður meinað ferðast til Bandaríkjanna þegar bannið tekur gildi næsta mánudag og verða tálmar settir í veg íbúa sjö ríkja til viðbótar.

Erlent
Fréttamynd

Kveða orð­róminn í kútinn: „Það eru engar deilur“

Aimee Lou Wood og Walton Goggins, sem léku hjónin Chelsea og Rick í þriðju seríunni um Hvíta lótusinn, neita því bæði að kastast hafi í kekki milli þeirra eftir að tökum lauk. Orðrómur þess efnis fór af stað eftir að Goggins hætti að fylgja Wood á samfélagsmiðlum.

Lífið
Fréttamynd

Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur aldrei verið virkari á samfélagsmiðlum en nú. Á fyrstu 132 dögum hans í starfi skrifaði birti hann 2.262 færslur á síðu sinni á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli. Það eru rúmlega sautján færslur á dag og rúmlega þrefalt fleiri færslur en hann birti á Twitter á sama tímabili á hans fyrra kjörtímabili.

Erlent
Fréttamynd

Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjald­gæfra málma

Forsvarsmenn bílaframleiðenda og annarra fyrirtækja víðsvegar um heiminn vara við því að bílaframleiðsla gæti stöðvast vegna skorts á sérstökum seglum, sem eru nánast eingöngu framleiddir í Kína. Verksmiðjum gæti verið lokað víða um heim á næstu vikum felli Kínverjar ekki niður tálma á útflutningi þessara segla og sjaldgæfra málma sem notaðir eru við framleiðslu þeirra.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Musk hraunar yfir „stórt og fal­legt“ frum­varp Trumps

Elon Musk, auðugasti maður heims, sem staðið hefur dyggilega við bak Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, segir hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Trump vill að Repúblikanar samþykki sé „viðurstyggilegur hryllingur“. Hann segir alla þá sem hafa stutt það eiga að skammast sín.

Erlent
Fréttamynd

Tollar á ál og stál hækka

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tvöfaldað almenna tolla á innflutning stáls og áls til Bandaríkjanna. Hann segir fyrri tolla ekki hafa gert nóg til að vernda bandarískan iðnað og hefur því hækkað tollana í fimmtíu prósent, úr 25 prósentum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mun þingið fara fram hjá Trump?

Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagðist í gær styðja hertar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Áhugi fyrir slíkum aðgerðum er mikill í þinginu og þá sérstaklega í öldungadeildinni en hingað til hefur Donald Trump, forseti, ekki viljað taka það skref.

Erlent
Fréttamynd

Yfir­maður FEMA sagðist ekki vita af til­vist fellibyljatímabila

Forsvarsmenn Almannavarna Bandaríkjanna (FEMA) hafa ákveðið að hætta við að nota nýja viðbragðsáætlun við fellibyljum sem ku hafa verið langt á veg komin. Þess í stað ætla þeir að nota áætlunina frá því í fyrra en nýr yfirmaður stofnunarinnar kom starfsmönnum sínum í opna skjöldu í gær þegar hann sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila.

Erlent
Fréttamynd

Skipu­lagði á­rásina í Colorado í heilt ár

Karlmaður sem grunaður er um að hafa kastað eldvörpum í mótmælendur í Colorado með þeim afleiðingum að tólf særðust hefur verið ákærður fyrir manndráp og hatursglæp. Hann á allt að 384 ára fangelsisdóm yfir höfði sér. 

Erlent
Fréttamynd

Skjöl stað­festa að Tice var í haldi Assad-liða

Áður óséð skjöl hafa loksins staðfest að bandaríski blaðamaðurinn Austin Tice var handsamaður af stjórnvöldum Bashars al-Assad, fyrrverandi forseta Sýrlands. Hann hvarf nærri Damascus, höfuðborg landsins, í ágúst 2012 en Assad-liðar höfnuðu því ítrekað að hafa hann í haldi.

Erlent
Fréttamynd

Á­hugi á Bandaríkja­reisum snar­minnkar

Áhugi Íslendinga á ferðalögum til Bandaríkjanna hefur dvínað eftir að Donald Trump sneri aftur í embætti forseta Bandaríkjanna í upphafi árs. Áhuginn hefur dregist mest saman hjá kjósendum Samfylkingar og Viðreisnar.  

Innlent
Fréttamynd

Vopnaður heima­gerðum eld­vörpum

Átta eru sárir eftir að árásarmaður kastaði eldsprengjum að hópi fólks sem kom saman á torgi í borginni Boulder í Colorado í Bandaríkjunum til þess að krefjast þess að ísraelsku gíslunum á Gasa verði sleppt úr haldi. Hinir særðu, sem eru á aldrinum 52 til 88 ára hafa komið saman reglulega á torginu undanfarna mánuði og árásarmaðurinn er sagður 45 ára gamall Egypti, Mohamed Sabry Soliman.

Erlent
Fréttamynd

Valerie Mahaffey er látin

Bandaríska leikkonan Valerie Mahaffey, sem er einna þekktust fyrir leik sinn í Seinfeld og Aðþrengdum eiginkonum, er látin 71 árs að aldri. Hún lést í Los Angeles föstudaginn 30. maí eftir baráttu við krabbamein.

Lífið
Fréttamynd

Einar á Söndru Bullock mikið að þakka

Saga Einars Haraldssonar er eins og spennandi kvikmynd með óvæntu „tvisti.“ Hann fór í lögregluskólann 19 ára, starfaði í rannsóknarlögreglunni á Íslandi, gerðist seinna meir lífvörður Söndru Bullock og er í dag starfandi sem kvikmyndaleikari. Þó hann hafi byrjað seint að elta leikaradrauminn, kominn á eftirlaunaaldur, þá hefur hann engan tíma til að hætta í dag.

Lífið
Fréttamynd

„Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“

Athafnakonan Kylie Jenner og leikarinn Timothee Chalamet eru eitt heitasta par Hollywood í dag. Jenner gaf í vikunni óvænta og spaugilega innsýn inn í kynlífið með Chalamet sem er dyggur stuðningsmaður New York Knicks.

Lífið
Fréttamynd

Engin smit­hætta vegna veikinda í vélinni

Samhæfingarmiðstöð almannavarna var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag vegna veikinda um borð í flugvél. Ekki er um neina smithættu að ræða samkvæmt upplýsingum frá samskiptastjóra almannavarna og hefur því öðrum farþegum verið hleypt frá borði. Vélin verður skoðuð nánar áður en flugfélagið fær leyfi til að halda áfram.

Innlent
Fréttamynd

Tvö­faldar tolla á inn­flutt stál og ál

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Bandaríkin muni tvöfalda tolla á innflutt stál og ál, úr 25 prósent í 50 prósent. Breytingin tekur gildi næsta miðvikudag. Trump greindi frá þessu á baráttufundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump, forseti, megi svipta farand- og flóttafólk frá Haítí, Kúbu, Níkaragva og Venesúela tímabundinni vernd gegn brottvísunum sem þau hafa fengið. Þannig má Trump vísa þeim úr landi áður en umsóknir þeirra um dvalarleyfi eru tekin fyrir.

Erlent