
Ísland í dag

Feimin að eðlisfari en milljónir manna fylgjast með
Ásu Steinarsdóttur er margt til lista lagt. Hún er menntaður tölvunarfræðingur og verkfræðingur en starfar núna sem áhrifavaldur í fullu starfi. Ása er meðal fremstu kvenna í heiminum á sínu sviði. Hún sérhæfir sig í ævintýramennsku, ljósmyndun og gerð myndbanda bæði fyrir sína miðla og fyrir fyrirtæki. Rætt var við Ásu í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum?“
Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag, þar sem fjallað var um þau óljósu tilmæli frá stofnunum samfélagsins til almennings, að forðast utanlandsferðir. Slíkar ráðstafanir eigi að styrkja gengi krónunnar.

„Ég væri frekar til í að hlusta á Ingva Hrafn á ÍNN tala um kynlíf en þetta“
Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag en til umfjöllunar í léttum dúr þar voru meðal annars fræðslumyndbönd Ríkisútvarpsins þar sem frægir Íslendingar eru inntir eftir persónulegri reynslu þeirra af kynlífi hvers konar.

Ráðherra og útvarpsmaður í jaðarsettum hópi einhleypra
Tómas Steindórsson útvarpsmaður á X-inu og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fóru yfir það sem hefur verið ofarlega á baugi í vikunni í beinni útsendingu í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Lífið hefði orðið allt öðruvísi ef ég hefði fetað þá leið“
Hann ætlaði í listaháskóla en valdi svo hagfræði. Hann elskar starfið sitt og að rökræða við Sólveigu Önnu. Sindri Sindrason heimsótti Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í morgunkaffi.

Kostulegar lýsingar Jakobs á verkahring nýs verkefnastjóra
Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag á miðvikudag, þar sem hvaðeina markvert úr fjölmiðlaumræðu að undanförnu var til umræðu. Á meðal þess var atvinnuauglýsing Reykjavíkurborgar fyrir hinn svonefnda verkefnastjóra framtíðarinnar. Sjá má innslagið hér að ofan en viðtal við Jakob er strax í upphafi þáttar.

Einstök hönnun á nýju hverfi á Héðinsreit í Vesturbæ
Í Vesturbæ Reykjavíkur á gamla Héðinsreitnum, sem kallast nú Vesturvin, er að rísa spennandi hverfi, alveg niður við sjóinn.

Leiklistarkennarinn hvatti hana til þess að skrá sig í Idol
Hin tuttugu og þriggja ára gamla Bía hefur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna í Idolinu undanfarnar vikur. Ísland í dag heimsótti Bíu til þess að kynnast stelpunni á bak við þessa risastóru rödd.

Gat ekki gengið eftir slysið en gafst aldrei upp á dansinum
Hinn margverðlaunaði dansari og danshöfundur Þyri Huld Árnadóttir lenti í slæmu slysi þegar hún sleit krossband í hné í miðjum dansi og gat ekki gengið í marga mánuði.

Pólitískur rétttrúnaður og aðför að málfrelsinu mjög hættuleg þróun
Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður hóf störf á Morgunblaðinu í dag og lýsir því þar með sé hún komin heim. Það er, eftir um átta ára ferðalag á önnur mið; hún starfaði á Fréttablaðinu 2014-2022. Nú stendur til að taka þátt í umræðunni og halda borgaralegum gildum á lofti.

Allar líkur á að MDMA verði gert löglegt í Bandaríkjunum
Rick Doblin, stofnandi rannsóknar-og menntaseturs um hugvíkkandi efni í Bandaríkjunum, MAPS, telur lögleiðingu MDMA efnisins á næsta leyti þar í landi. Hann segir að önnur lönd muni fylgja eftir.

„Eins og að setja startvökva á gamla díselvél“
Sunna Dís Másdóttir rithöfundur var sigursæl í liðinni viku eftir að hún hlaut hinn svonefnda Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir frumsamið ljóð. Tekið var hús á henni í Gröndalshúsi í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur, þar sem rithöfundar ýmsir hafa aðsetur í góðu yfirlæti. Innslagið má sjá í Íslandi í dag hér að ofan og hefst á níundu mínútu.

Sanngjarnt væri að tvöfalda grunnlaun hjúkrunarfræðinga
Laun hjúkrunarfræðinga eiga að vera þau sömu og lækna, segir Guðríður Kristín Þórðardóttir, sem er með sex ára háskólanám og hefur unnið á Landspítalanum í yfir 25 ár.

Mótstaða við breytingar ekki vegna eigin hagsmuna heldur faglegs mats
Inga Lilý Gunnarsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, segir mótstöðu Lyfjafræðingafélags Íslands við frumvarp um að heimila lausasölu lyfja í almennum verslunum ekki sprottna út frá hagsmunum lyfjafræðinga, heldur faglegum forsendum.

Drepleiðinlegt og erfitt að koma sér í form
Rúnar Hroði Geirmundsson einkaþjálfari segir að það sé ekki til nein skyndilausn til þess að bæta heilsuna.

„Ætla að vera með stráknum mínum eins lengi og ég fæ“
Það var verst að missa hárið en jákvæðnin mun koma mér í gegnum krabbameinið segir baráttukonan Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir, 35 ára einstæð móðir sex ára drengs.

Renndi sér niður af þaki framhaldsskólans
Sýnt var frá því í Íslandi í dag þegar breski snjóbrettakappinn Sparrow Knox gerði atlögu að því að renna sér niður handrið á tiltölulega nýrri skólabyggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ á mánudaginn var. Hefst á mínútu tólf í innslaginu hér að ofan.

Gervigreind samdi kynningu fyrir Ísland í dag
Fyrir forvitnissakir var gervigreind fengin til að semja stutta kynningu á miðvikudagsþætti Íslands í dag í vikunni. Forritið ChatGPT á vegum bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefur vakið mikla athygli notenda, einkum fyrir glettilega færni þess við að setja saman texta.

Kom á óvart hvað íslenskar konur stunda mikið sjálfsniðurrif
Fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir segist brenna fyrir það að hjálpa konum að styrkja sjálfsmynd sína. Það hafi komið henni á óvart hvað íslenskar konur stunda mikið sjálfsniðurrif. Vala Matt ræddi við Lindu Pé í Íslandi í dag.

„Ég vil verða forsætisráðherra og helst ekki fara með Sjálfstæðisflokknum“
„Ég á mánuð eftir,“ segir ófrísk Kristrún Frostadóttir sem gerir ráð fyrir að þurfa að vinna eitthvað í fæðingarorlofinu, enda gangi í raun ekki að vera formaður stjórnmálaflokks og vera frá í lengri tíma.

Undraveröld Breiðamerkurjökuls: „Þetta er algjörlega galið“
„Ég er búinn að vera að fylgjast með ótrúlega fallegum hellum,“ segir Garpur Elísabetarson. Eftir að sjá myndir og myndbönd á netinu fór hann í leiðangur að skoða íshella og svelga í Breiðamerkurjökli.

„Ég var á barmi þess að fyrirfara mér“
Fyrir sjö árum síðan fór íslensk kona á fimmtugsaldri í svokallað „ferðalag“ með hugvíkkandi efninu Ayahuasca. Eftir ferðalagið segist hún hafa hún náð botninum andlega og fór hún sjálfviljug á geðdeild Landspítalans vegna afleiðinga ferðalagsins. Hún var með sjálfsvígshugsanir og var hún greind í djúpri geðlægð.

„Það er svo auðvelt að vera aumingi í dag“
Að hætta í nikótínpúðum, borða meira, fara í nokkra göngutúra - og ekki vera aumingi; þetta er á meðal þess sem Guðmundur Emil Jóhannsson einkaþjálfari, betur þekktur sem Gummi Emil, leggur til að fólk tileinki sér á nýju líkamsræktarári. Hann hefur áhyggjur af heilsu fólks sem hangir á samfélagsmiðlum daginn inn og út.

Segir að karlmenn séu nauðsynlegir og þeir þurfi að vera sterkir
„Það eru vond skilaboð til ungra drengja þegar talað er um eitraða karlmennsku,“ segir Bergsveinn Ólafsson doktorsnemi í sálfræði.

„Alltaf verið dauðhræddur við níu til fimm pælinguna“
Tómas Geir Howser Harðarson vann hug og hjörtu landsmanna með tilfinningaríkum fagnaðarlátum í Gettu betur árið 2015 og hlaut viðurnefnið Tilfinninga-Tómas.

Sjötíu kílóum léttari en með fleiri líkamskomplexa
Fyrir tveimur árum hitti Sindri Sindrason Önnu Sjöfn Skagfjörð 37 ára þriggja barna móður sem vildi gera eitthvað í sínum málum áður en það yrði of seint. Í dag hefur hún misst 72 kíló og elskar að gera hluti sem hún tók algjörlega fyrir að gera eins og að ganga fjöll.

Desertinn líka góður í morgunmat
Sumt sælgæti og sumir desertar eru svo hollir að þeir geta í raun verið morgunmatur.

Fengið sjö heilablæðingar en vill alls ekki láta vorkenna sér
Sindri Freyr Guðmundsson greindist með arfgenga heilablæðingu og hefur fengið sjö heilablæðingar. Hann missti móður sína úr sjúkdómnum þegar hann var aðeins sjö ára.

Merkir myndirnar vel svo fólk haldi ekki að hann sé að falsa verkin
Jóhannes K. Kristjánsson er ekki stórt nafn í myndlistarheiminum þrátt fyrir að vera alveg ótrúlegur myndlistarmaður.

Fékk flott glerhús eftir krabbameinið
Kristín Pétursdóttir fékk krabbamein fyrir tveimur og hálfu ári og þá var sjötugsafmælið hennar framundan.