Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Svona gæti Trump unnið
Kjósendur í nokkrum lykilríkjum gætu enn tryggt Donald Trump Bandaríkjaforseta endurkjör þrátt fyrir að Joe Biden, frambjóðandi demókrata, hafi nú mælst með afgerandi forskot á landsvísu um margra vikna skeið.

Þetta er á kjörseðlinum í Bandaríkjunum
Fleira verður á kjörseðlinum en hver verður næsti forseti þegar Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu þriðjudaginn 3. nóvember. Kosið er til beggja deild Bandaríkjaþings, ríkisstjóra og ýmissa annarra embætta í einstökum ríkjum og sýslum samhliða forsetakosningunum.

Rannsaka aðför stuðningsfólks Trumps að Biden-rútu í Texas
Bandaríska alríkislögreglan FBI rannsakar nú atvik sem varð á hraðbraut í Texas þar sem stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta umkringdu rútu framboðs Demókrata.

Íslenskum nema í Washington ráðlagt að birgja sig upp af mat og fara varlega vegna kosninganna
Bryndís Bjarnadóttir, meistaranemi á öðru ári í öryggisfræðum við Georgetown-háskóla, segir andrúmsloftið í höfuðborginni Washington D.C. eldfimt í aðdraganda kosninganna sem fram fara á þriðjudag.

Fullyrða að Trump muni lýsa yfir sigri áður en úrslit liggja fyrir
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa fullyrt við sína nánustu bandamenn að hann ætli sér að lýsa yfir sigri á þriðjudag ef útlit verður fyrir að hann sé með forskot.

Stærstu hneykslismál Trump
Donald Trump hefur staðið í ströngu í árum sínum í embætti. Hér förum við yfir nokkur mál sem hafa valdið hvað mestu fjaðrafoki.

Trump treystir á kosningafundi í aðdraganda kosninga
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun halda fimm kosningafundi með stuðningsmönnum sínum í fimm ríkjum í dag. Hann stefnir svo á sjö fundi á morgun, síðasta fulla degi kosningabaráttunnar, og stefnir hann einnig á að halda fundi á þriðjudaginn, kjördag.

Helstu málefni Bandaríkjanna og hvar Trump og Biden standa
Afstaða bandarísku forsetaframbjóðendanna tveggja til hinna ýmsu mála er ólík. Hér förum við yfir þau helstu.

Bandaríkin - Kosningar handan við hornið
Það styttist óðfluga í kosningar í Bandaríkjunum og enn sem komið er mælast Joe Biden og Demókratar í betri stöðu en Donald Trump og Repúblikanar.

Kosningaþátttakan í Bandaríkjunum slær öll met
Rúmlega áttatíu milljónir Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum sem fram fara þann þriðja nóvember næstkomandi.

Gullbjörninn hvetur fólk til að kjósa Trump
Sigursælasti kylfingur golfsögunnar er stuðningsmaður Donalds Trump og hvetur fólk til að kjósa hann í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.

Lítil hreyfing á fylgi frambjóðendanna á lokametrunum
Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, mælist enn með afgerandi forskot á Donald Trump Bandaríkjaforseta í skoðanakönnununum á landsvísu nú þegar fimm dagar eru til kosninga.

Trump gerði grín að grímunotkun
Keppinautarnir í forsetakosningunum í Bandaríkjunum reyna hvað þeir geta til að ná hylli kjósenda nú þegar þeir eru á síðustu metrunum aðeins nokkrum dögum fyrir kjördag sem er næstkomandi þriðjudag.

Biden, Trump og 73 milljónir Bandaríkjamanna búnir að kjósa
Samkvæmt samantekt Washington Post hafa alls 73,3 milljónir Bandaríkjamanna þegar kosið í kosningunum

Ríkissjóður greiðir Trump hundruð milljóna: Lét stjórnina greiða fyrir vatnsglas í klúbbnum sínum
Greiðslur bandaríska ríkissjóðsins til fyrirtækja Donalds Trump forseta hafa numið að minnsta kosti 350 milljónum íslenskra króna í forsetatíð hans. Rukkaði klúbbur hans á Flórída skattborgara meðal annars um meira en 400 krónur fyrir vatnsglas þegar Trump fundaði með forsætisráðherra Japans þar.

Fleiri en sjötíu milljónir hafa kosið í Bandaríkjunum
Meira en sjötíu milljónir Bandaríkjamanna hafa kosið utan kjörfundar í forsetakosningunum sem fram fara eftir tæpa viku.

„Við munum skapa störf fyrir eiginmenn ykkar“
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, beindi orðum sínum að konum á kosningafundi í Michigan í gær þegar hann sagði að hann myndi hjálpa eiginmönnum þeirra að finna vinnu eftir kórónuveirukreppuna.

Einvígið um Bandaríkin
Næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum fara fram eftir rúmlega viku. Ef marka má nýjustu tölur hefur kjörsókn aukist allverulega, en nú þegar hafa um 70 milljón manns greitt atkvæði, eða rétt yfir helmingur þeirra sem kusu árið 2016.

„Þeir munu ekki geta gert mikið við þessu í langan tíma“
Þegar þessu kjörtímabili Donalds Trumps lýkur, mun Trump hafa skipað tæpan þriðjung umdæmisdómara Bandaríkjanna.

CBS svarar fyrir sig og birtir myndband af Trump að ganga út úr viðtalinu
Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS hefur birt myndband úr viðtalið fréttaskýringaþáttarins 60 mínútur við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þar sem sjá má hann rífast við fréttamanninn Lesley Stahl, áður en hann gekk út úr viðtalinu.

„Við munum ekki ná stjórn á faraldrinum“
Það má segja að starfsmannastjóri Hvíta hússins, Mark Meadows, hafi verið óvenju hreinskilinn í viðtali við CNN í gær um áætlanir bandarískra yfirvalda í tengslum við kórónuveirufaraldurinn.

Ólafur Ragnar, umheimurinn og framtíðarstaða Íslands í Víglínunni
Ólafur Ragnar Grímsson á um fjörtíu ára feril að baki á sviði alþjóðastjórnmála og hefur komið ótrúlega víða við. Hann fer yfir þennan litríka feril sem og samskipti sín við erlenda ráðamenn og áhrifafólk sem og einstaka ráðamenn á Íslandi í forsetatíð hans í Víglínunni hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag.

Ætluðu að gefa jólasveinum forgang að bóluefni fyrir áróðursherferð
Heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna hefur snarlega hætt við margra milljóna dollara opinbera kynningarherferð sem átti að vekja von á meðal almennings í kórónuveirufaraldrinum.

Nýr faraldur kominn upp í Hvíta húsinu
Starfsmannastjóri Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, og að minnsta kosti tveir aðrir starfsmenn Hvíta hússins greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. Sýni úr Pence sjálfum er sagt hafa verið neikvætt og ætlar hann að halda áfram ferðalögum í kosningabaráttunni.

Ariana Grande í Hvíta húsinu
Ariana Grande frumsýndi í gær tónlistarmyndband við nýjasta lag sitt, Positions. Myndbandið var frumsýnt stuttu eftir að kappræðum Donald Trumps og Joe Biden forsetaframbjóðenda lauk.

Bandaríkin: Sigurlíkur Trumps litlar
Donald Trump mætti Joe Biden í kappræðum í nótt.

Kappræður Trump og Biden: Biden talaði um veiruna en Trump um spillingu
Trump lýsti sjálfan sig „minnsta rasistann“ á staðnum og hélt uppi hörðum en óljósum ásökunum um að Biden væri spilltur í síðustu kappræðum forsetaframbjóðendanna í nótt.

Til mikils að vinna í síðustu kappræðunum
Þeir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans og fyrrverandi varaforseti, munu mætast í öðrum og síðustu kappræðum þeirra.

Trump birti „falskt og hlutdrægt“ viðtal fyrir 60 mínútur
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, stóð við stóru orðin í dag og birti upptöku Hvíta hússins af viðtali hans við Lesley Stahl, fréttakonu 60 mínútna. Trump stöðvaði viðtalið á þriðjudaginn og kvartaði yfir því að Stahl væri ósanngjörn og hlutdræg.

Hæstaréttardómaraefni Trump samþykkt í þingnefnd
Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti tilnefningu Donalds Trump forseta á Amy Coney Barrett sem hæstaréttardómara þrátt fyrir mótbárur demókrata í dag. Repúblikanar breyttu þingsköpum til að geta haldið áfram með staðfestinguna.