Viðskipti innlent

Orðnir fjórðu stærstu hluthafar Skeljungs
Félög í eigu Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævarssonar, sem meðal allars eru eigendur fasteignasölunnar RE/MAX, hafa gert framvirka samninga um kaup á rúmum fimm prósenta hlut í Skeljungi.

Tekur líka að sér ritstjórn Húsa og híbýla
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir er nýr ritstjóri tímaritsins Hús og híbýli.

Hlutabréfaverð á blússandi siglingu
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur hækkað um rúm 30 prósent frá upphafi árs. Munar miklu um verðskrið Marels. Greinendur rekja verðhækkanir meðal annars til minni óvissu vegna WOW air og á vinnumarkaði.

Hagnaður Norðuráls minnkaði um þrjá milljarða króna í fyrra
Álver Norðuráls á Grundartanga var rekið með rúmlega 4,5 milljóna dala hagnaði á árinu 2018, jafnvirði um 550 milljóna króna á núverandi gengi, og dróst hagnaðurinn saman frá fyrra ári um nærri 25 milljónir dala, eða sem nemur um þremur milljörðum króna.

Ríkissáttasemjari á meðal umsækjenda
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari, Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari og Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar eru á meðal umsækjenda.

Segir að bregðast verði við mjög slæmri afkomu innanlandsflugs
Forstjóri Icelandair segir afkomu Flugfélags Íslands mjög slæma og verið sé að skoða alvarlega hvernig geri megi reksturinn sjálfbæran.

Verulegur samdráttur hagnaðar hjá Arion vegna WOW air og Wikileaksdóms
Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var 1,0 milljarður króna. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 1,9 milljarðar.

Bilun hjá Valitor truflaði greiðslukortaviðskipti
Vegna bilunar í tölvukerfi Valitor geta korthafar átt í erfiðleikum með að greiða með greiðslukortum.

Bandaríski fjárfestingasjóðurinn búinn að eignast stóran hlut í Icelandair
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn PAR Capital Management hefur eignast 12,4 prósenta hlut í Icelandair Group eftir að kaup félagsins á 11,5 prósenta hlut í félaginu gengu í gegn í gær.

Áliðnaðurinn þarf umhverfi til að vaxa
Stjórnvöld þurfa að vera á tánum til að halda samkeppnishæfni í áliðnaði að sögn forstjóra Alcoa Fjarðaáls. Framleiðslan færist í auknum mæli til Kína þar sem hún er niðurgreidd og óumhverfisvæn.

Apple Pay komið til Íslands
Viðskiptavinir Arion banka og Landsbankans geta nú tengt greiðslukort sín við Apple Pay, greiðslulausn bandaríska tæknirisans Apple. Með Apple Pay geta notendur iPhone, Apple Watch, iPad og Mac-tölva greitt fyrir vörur og þjónustu í verslunum víða um heim sem og á netinu.

Fasteignaverð hér á landi hækkað mest á meðal OECD-ríkja frá 2010
Hvergi á meðal ríkja innan Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) hefur fasteignaverð hækkað meira að raunvirði en á Íslandi frá því að það náði lágmarki hér á landi eftir fjármálahrunið.

Dregur orð forstjóra Festar um „óverulegan“ sameiningarkostnað í efa
Nýjasta verðmat Capacent á Festi hljóðar upp á rúmlega 43 milljarða króna en eldra verðmat hljóðaði upp á tæpa 42,7 milljarða kjróna.

Lítið útstreymi aflandskróna
Aflandskrónustabbinn hefur lækkað um 12 milljarða króna frá því að gildi tóku ný lög í byrjun marsmánaðar sem fela í sér losun fjármagnshafta á aflandskrónueigendur.

Eigandi Cardiff kaupir Icelandair Hotels
Samningar dótturfélags malasíska fjárfestingafélagsins Berjaya Corporation um kaup á 80% hlut í Icelandair Hotels eru á lokametrunum. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins.

Sala Domino's á Íslandi minnkaði um nærri 5 prósent
Sala Domino's á Íslandi minnkaði um 4,6 prósent á samanburðargrundvelli (e. like-for-like) á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Hagnaður Lyfju minnkaði um 55 milljónir
Hagnaður Lyfju, stærstu lyfjakeðju landsins, nam 324 milljónum króna á árinu 2018 og dróst saman um 55 milljónir frá fyrra ári.

Bjóða 15 prósenta hlut í HS Veitum til sölu
Fjárfestar hyggjast selja tæplega 42 prósenta hlut í félagi sem er næststærsti hluthafinn í HS Veitum. Samtals er um að ræða nærri 15 prósenta óbeinan hlut í fyrirtækinu sem er að mestu í eigu sveitarfélaga.

Varnarleikur mun ekki skila árangri
EES-samningurinn á að vera í forgrunni allrar ákvörðunartöku í íslensku atvinnulífi að sögn framkvæmdastjóra SA og SI. Mikilvægt sé að leiða þriðja orkupakkann í lög og einblína á stórar áskoranir fram undan.

Tekjur 66°Norður jukust um 600 milljónir króna
Sjóklæðagerðin 66°Norður skilaði um 100 milljóna króna rekstrarhagnaði (EBITDA) á síðasta ári og dróst hagnaðurinn saman um liðlega 60 milljónir frá fyrra ári.

Gestum Bláa lónsins fækkaði í fyrsta sinn í mörg ár
Gestum Bláa lónsins fækkaði í apríl miðað við sama mánuð í fyrra en þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem ferðaþjónusturisinn fær færri gesti til sín en árið á undan.

Greiddu hluthöfum milljarð í arð
Origo hf. hagnaðist um 213 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Á sama tímabili í fyrra tapaði félagið 26 milljónum.

Næsta rimma ALC og Isavia í dómsal á fimmtudaginn
Boðað hefur verið til fyrirtöku í máli bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins ALC gegn Isavia á fimmtudaginn í Héraðsdómi Reykjaness.

Grundvallarmunur á ostunum þó að þeir kunni að virðast sá sami undir fimm vörumerkjum
Vörumerkin voru sögð villandi fyrir neytendur á samfélagsmiðlum í vikunni.

Stilliró ónóg í Polo
Hekla hefur innkallað nýlegar Volkswagen Polo-bifreiðar vegna galla í handbremsu.

Sigríður leiðir hæfnisnefnd um skipun seðlabankastjóra
Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur við Yale-háskóla, fer fyrir hæfnisnefndinni sem falið er að meta hæfni 16 umsækjenda um embætti seðlabankastjóra.

Hressó til sölu
Hressingarskálinn Austurstræti, ásamt sportbarnum Bjarna Fel, hefur verið settur á sölu

Hefja sölu á flugsætum frá Hollandi til Akureyrar
Hollenska flugfélagið Transavia hefur hafið beina sölu á flugsætum til Akureyrar frá Rotterdam, í ferðir sem farnar verða í sumar og næsta vetur.

Norðmenn stefna á fjárfestingar í íslenskum vindi
Norska vindorkufyrirtækið Zephyr hefur stofnað dótturfyrirtæki á Íslandi, Zephyr Iceland. Markmiðið er að reisa vindmyllur og vindmyllugarða á Íslandi.

„Þetta er ekki dulbúið“
Upplýsingafulltrúi Toyota segir af og frá að samstarf Toyota og Páls Óskars sé dulbúið.