Viðskipti innlent

Hægir verulega á hagvexti
Verulega hægir á hagvexti á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Birgitta Björg stýrir Into the Glacier
Birgitta Björg Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Into the Glacier og hefur hún þegar hafið störf.

Grindavíkurhöfn dýpri og mikill hugur í hafnarstjóranum
Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun.

Stjórnin hafi hagsmuni allra hluthafa að leiðarljósi
Stjórn Marel hefur svarað harðri gagnrýni evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital Partners, sem birti í dag opið bréf til stjórnarformannsins. Stjórnin segist hafa ýtrustu hagsmuni allra hluthafa og annarra hagaðila að leiðarljósi.

Norvik eignast 95 prósent í nítján milljarða króna félagi
Mikill meirihluta hluthafa í Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði, hefur samþykkt yfirtökutilboð íslenska félagsins Norvik. Norvik á eftir yfirtökuna ríflega 95 prósent hlutafjár í Bergs en átti fyrir um 59 prósent hlut.

Fjörutíu prósent þjóðarinnar færðust um áhættuflokk um lánshæfismat
Fjörutíu prósent þjóðarinnar færðist um áhættuflokk um lánshæfismat við uppfærslu á matinu hjá Creditinfo sem átti sér stað síðasta fimmtudag. Við uppfærsluna er nú litið til eldri upplýsinga um vanskil einstaklinga, en áður.

Verðbólgan hækkar lítillega í átta prósent
Verðbólga hefur hækkað lítillega og í nóvember mældist hún átta prósent hér á landi, sé litið til síðastliðinna tólf mánaða.

Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Á rauðu ljósi?
Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag og er yfirskriftin að þessu sinni Á rauðu ljósi? Dagskráin hefst klukkan 13 og stendur til klukkan 15, en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Tekjur jukust mikið en tapið áfram gríðarlegt
Heildarsölutekjur Alvotech fyrstu níu mánuði ársins jukust í 29,8 milljónir dollara, samanborið við 11,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra. Félagið tapaði þó 275,2 milljónum dollara, samanborið við 193,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra.

Landsbankinn selur hlutinn í Keahótelum sem tekinn var upp í skuldir
Landsbankinn hefur auglýst 35 prósent hlut sinn í Keahótelum ehf. til sölu. Bankinn eignaðist hlutinn eftir endurskipulagningu félagsins sem fól í sér að skuldum við bankann var breytt í hlutafé.

Breytt afkomuspá vegna jarðhræringa: Hlutir hafi verið teknir úr samhengi
Flugfélagið Play hefur tilkynnt að afkomuspá fyrir árið eigi ekki lengur við. Jarðhræringar á Reykjanesskaga og áhrif þeirra á eftirspurn til skemmri tíma orsaki það.

ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi
Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum.

Þýðingarmikið að sjá líf kvikna í Grindavík
Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Arctic Saga, og Jóhann Vignir Gunnarsson sem sér um markaðsmál hjá Þorbirni hf. í Grindavík mættu til vinnu í fiskvinnslu í Grindavík í dag. Þeir segja flesta jákvæða en skjálfta í mörgum.

Bein útsending: Nýting á jarðhita í Ölfusdal
Orkuveita Reykjavíkur, sveitarfélagið Ölfus og Títan ásamt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu boða til blaðamannafundar í Elliðaárstöð í dag.

„Enginn góður kostur í stöðunni“
Fólk flýr í auknum mæli óverðtryggð lán og færir sig yfir í verðtryggð lán samkvæmt nýrri skýrslu. Fjármálaráðgjafi segir verðtryggð lán ákveðna frestun á vandamáli og að engin góður kostur sé í stöðunni.

Snjólaug ráðin til Svarma
Dr. Snjólaug Ólafsdóttir hefur verið ráðin til Svarma sem leiðtogi vöruþróunar og viðskiptavinatengsla (Chief Product Officer & Client Relations Lead).

Ómar Gunnar og Örn til PwC
Ómar Gunnar Ómarsson, löggiltur endurskoðandi, og Örn Valdimarsson hagfræðingur hafa verið ráðnir til PwC.

Nýtt skip til Grindavíkur fyrir sjómannadag
Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík sjósetti nýtt skip, Huldu Björnsdóttur GK-11, á Spáni í gær. Um er að ræða fyrstu nýsmíðina í yfir hálfa öld hjá fyrirtækinu. Stefnt er á að skipið komi siglandi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadag.

Mögulegt tilboð ekki í þágu hagsmuna hluthafa Marel
Stjórn Marel hefur hafnað óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT Corporation varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel.

Flestir sem missa vinnuna á Íslandi
Flestir þeirra áttatíu starfsmanna Controlant, sem var tilkynnt í morgun að yrði sagt upp störfum, starfa í starfsstöð félagsins á Íslandi. Forstjóri félagsins segir hagræðinguna vegna samdráttar í Covid-tengdum verkefnum fyrirtækisins.

Áttatíu missa vinnuna hjá Controlant
Áttatíu misstu vinnuna hjá Controlant í hópuppsögn í morgun. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn fyrirtækisins það sem af er degi.

Fjöldauppsagnir hjá Controlant
Að minnsta kosti tíu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Controlant. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Kristín Soffía til RARIK
RARIK hefur ráðið til sín Kristínu Soffíu Jónsdóttur sem framkvæmdastjóra Þróunar og framtíðar RARIK. Um er að ræða nýja stöðu samkvæmt nýju skipulagi RARIK sem tók gildi 1. október síðastliðinn.

Spá því að verðbólgan aukist
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan aukist um 0,2 prósent milli mánaða og verði 8,1 prósent. Þá muni hún hækka enn meira í desember og verða 8,3 prósent.

Benedikt semur um starfslok
Benedikt K. Magnússon, framkvæmdastjóri fjármála hjá OR, hefur látið af störfum hjá félaginu eftir að þeir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri OR gerðu með sér samkomulag um starfslok.

Skerða orku til fiskverkunar og gagnavera
Landsvirkjun hefur tekið ákvörðun um að skerða orku til fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkana og gagnavera sem stunda rafmyntagröft. Þetta kemur fram í tilkynningu, þar segir að afhending á víkjandi orku verði stöðvuð frá og með 1. desember og verði í gildi þar til miðlunarstaða hafi batnað.

Meira jafnvægi virðist að komast á fasteignamarkaðinn
„Merki eru um að meira jafnvægi sé að komast á fasteignamarkaðinn,“ segir í samantekt um nýja mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Fengu á baukinn fyrir að neita fatlaðri konu um útgáfu skilríkja
Auðkenni, útgefandi rafrænna skilríkja braut jafnréttislög með því að synja fatlaðri konu um útgáfu á rafrænum skilríkjum og neita henni um viðeigandi aðlögun.

Semja aftur um flug til Húsavíkur
Samningar hafa náðst milli Flugfélagsins Ernis og Vegagerðarinnar um áframhaldandi flug til Húsavíkur næstu þrjá mánuði og verður í kjölfarið ákveðið með framhaldið.

„Þetta líktist helst rokktónleikum“
Svartur föstudagur, einn stærsti verslunardagur ársins, er í dag. Fjöldi verslana bauð upp á afslátt í dag, en sumar þeirra fóru fjölbreyttari leiðir við að halda upp á daginn. Dagurinn er að bandarískri fyrirmynd og markar upphaf jólainnkaupatímabilsins.