Sport

Chelsea vann Arsenal

Chelsea lagði Arsenal 2-1 í hinum árlega úrslitaleik Englandsmeistara og bikarmeistara í knattspyrnu en leiknum var að ljúka í Cardiff. Didier Drogba skoraði bæði mörk Chelsea, það fyrra á 8. mínútu en seinna markið á 58. mínútu eftir sendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen. Eiður var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt úr af fyrir Tiago strax eftir seinna markið.  Francesc Fabregas minnkaði muninn fyrir Arsenal á 65. mínútu eftir mistök hjá Tiago. Chelsea hafði nokkra yfirburði í leiknum ef marka má tölfræðina um skot að marki. Chelsea átti samtals 15 skot en Arsenal aðeins fimm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×