Sport

Glæsilegur sigur Vals

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki unnu í dag frábæran 4-1 sigur á Noregsmeisturum Roa Idrettslag í Evrópukeppni félagsliða kvenna, en liðin leika í riðli sem fram fer í Finnlandi. Sigurinn hlýtur að teljast enn merkilegri fyrir þær sakir að norsk kvennalið eru talin með þeim bestu í Evrópu. Margrét Lára Viðarsdóttir gerði tvö mörk fyrir Val, en Dóra María Lárusdóttir og Guðný Óðinsdóttir sitt markið hvor. Næsti leikur Vals er á fimmtudag gegn finnska liðinu FC United.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×