Fótbolti

Rakel Logadóttir: Ætlum að sjálfsögðu að verja titilinn

„Mér líst bara mjög vel á að fá KR," sagði Rakel Logadóttir leikmaður Vals í dag þegar ljóst var að bikarmeistaralið Vals fékk útileik gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna. Dregið var í hádeginu í dag. Þessi lið áttust við í úrslitum keppninnar í fyrra.

„Ég hefði alveg viljað fá heimaleik en þetta verður erfiður leikur eins og allir leikir í bikarkeppninni. Að sjálfsögðu á að verja titilinn," bætti Rakel við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×