ÍA vann toppslaginn í Breiðholti Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 23. ágúst 2014 16:02 Garðar tryggði mikilvæg stig vísir/daníel
ÍA lagði Leikni á útivelli 1-0 í uppgjöri toppliða 1. deildar karla í fótbolta. ÍA steig þar stórt skref í að tryggja sæti sitt í Pepsí deildinni á næstu leiktíð.Garðar Gunnlaugsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma þegar allt benti til þess að leikurinn yrði markalaus. ÍA er þar með komið með 36 stig en Leiknir er sem fyrr á toppnum með 40 stig og á sæti í Pepsí deildinni svo gott sem víst þrátt fyrir tapið. HK er í þriðja sæti með 29 stig þegar fjórar umferðir eru eftir en HK gerði markalaust jafntefli við Þrótt í Kópavogi í dag. Þróttur er í fjórða sæti með 28 stig. Manni færri tókst KA að ná jafntefli gegn KV á KR-velli en Vesturbæingar komust tvisvar yfir í leiknum. KV er í næst neðsta sæti með 18 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni en KA er með 26 stig um miðja deild. BÍ/Bolungarvík vann mikilvægan 2-1 sigur á tíu Selfyssingum á heimavelli en Selfoss missti mann af leikvelli á 26. mínútu. BÍ/Bolungarvík lyfti sér upp í 8. sæti deildarinnar með 24 stig með sigrinum en Selfoss er í 10. sæti með 22 stig. Að lokum gerðu Grindavík og Haukar 1-1 jafntefli í Grindavík en bæði lið eru enn í fallhættu. Haukar eru með 24 stig en Grindavík 23. Seinna í dag mætast Víkingur Ólafsvík og Tindastóll á Sauðárkróki en vinni Víkingur fer liðið upp í þriðja sætið og 31 stig.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira